Joe McCann opnar sig eftir grunsamlegt andlát unnustu sinnar
📅2026-05-06 13:23:00
👁️ 0 lesið
Joe McCann opnar sig eftir grunsamlegt andlát unnustu sinnar
Joe McCann og Ashlee Jenae
Mynd: Ashlee Jenae/Instagram
Joe McCann hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta sinn eftir skyndilegt andlát unnustu sinnar, Ashlee Jenae, sem lést meðan parið var í fríi í Tansaníu.
McCann birti yfirlýsingu á samfélagsmiðlum eftir að rannsókn á andláti Robinson tafði heimför hans, en samkvæmt fréttum höfðu yfirvöld haldið eftir vegabréfi hans meðan rannsókn stóð yfir.
Í yfirlýsingunni segir McCann meðal annars að engin orð geti lýst þeirri sorg og vanmáttarkennd sem hann upplifi eftir missinn.
„Það eru engin orð til að lýsa þeirri algjöru eyðileggingu, tómleika og sorg sem ég finn eftir að hafa misst bestu vinkonu mína, trúnaðarmann og unnustu, Ashly Jenae Robinson,“ skrifaði hann.
Hann sagðist jafnframt vera miður sín fyrir hönd fjölskyldu hennar, sérstaklega foreldra hennar, Yolöndu Endres og Harry Robinson.
Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar
„Sem faðir sjálfur er ég einnig harmi sleginn fyrir hönd foreldra Ashly. Andlát hennar er óskiljanlegur harmleikur,“ bætti hann við.
McCann sagði einnig að það sem unnusta hans hefði þráð mest væri að stofna fjölskyldu.
„Ashly óskaði sér mest af öllu að verða móðir og ala upp fjölskyldu með mér. Það leikur enginn vafi á því að hún hefði orðið frábær móðir.“
Ashlee Jenae, sem hét fullu nafni Ashly Jenae Robinson, fannst meðvitundarlaus í villu parsins í Tansaníu í síðasta mánuði. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin. Andlátið átti sér stað aðeins nokkrum dögum eftir að McCann bað hennar.
Samkvæmt staðbundnum fjölmiðlum beindist rannsókn lögreglu í fyrstu að mögulegu sjálfsvígi, en fjölskylda Robinson hefur lýst efasemdum um þá niðurstöðu og ákveðið að láta framkvæma óháða krufningu til að fá skýrari svör um dánarorsökina.
Lík Robinson var afhent fjölskyldu hennar fyrir um einni og hálfri viku síðan. Faðir hennar hefur þó sagt að persónulegir munir hennar hafi enn ekki verið skilað, þar á meðal trúlofunarhringurinn hennar.