Jarðböðin í Mývatnssveit voru opnuð í dag, nokkrum dögum á eftir áætlun. Framkvæmdir hafa staðið yfir í nokkur ár og hefur ýmislegt komið upp á, að sögn framkvæmdastjóra. Mikil ánægja er þó með hvernig framkvæmdirnar tókust til.
Jarðböðin hafa verið mikið aðdráttarafl í Mývatnssveit og var þeim mikið keppikefli að opna á meðan ferðamannastraumurinn er sem mestur. Þau eru langstærsti atvinnurekandinn á þessum slóðum með um 70 starfsmenn þegar mest lætur.
Í samtali við fréttastofu í upphafi júní sagði Guðmundur Birgisson framkvæmdastjóri að þeir stefndu á að opna 30. júní. Það tókst ekki alveg en 9. júlí varð að duga.
Jarðböðin lögðu mikið upp úr sjálfbærni í byggingarfasanum þar sem jarðvegur og grjót úr nágrenninu voru nýtt í þakkanta hússins og gufubaðið á staðnum er kynnt með jarðhitanum á staðnum.
Nýtt aðstöðuhús er þrefalt stærra en það gamla og lónið sjálft stækkar um 35% og er nú með pláss fyrir allt að 600 gesti í einu.
Kostnaðurinn við nýframkvæmdirnar hleypur á milljörðum.
Gríðarstór hellir fannst í byggingarferlinu, tafði framkvæmdir töluvert og er í friðlýsingarferli. Hellirinn er rúmir 100 metrar að lengd og standa vonir til þess að hægt verði að sýna hluta hans þegar fram líða stundir.