Bæjarhátíðin Í túninu heima var sett í Mosfellsbæ í dag og var Jakob Smári útnefndur á setningarhátíðinni. Menningar-, íþrótta- og lýðheilsunefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamannsins ár hvert.
Jakob Smári er einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar Tappi Tíkarrass sem var ein af áhrifamestu pönkhljómsveitum Íslands. Hún varð síðar heimsþekkt eftir að tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir söng með henni. Jakob Smári spilaði jafnframt með Bubba Morthens í Das Kapital, Egó og fleiri hljómsveitum ásamt því að spila á mörgum af sólóplötum Bubba.
Hann var einnig einn af stofnendum hljómsveitarinnar SSSÓL auk þess að vera með í Grafík, Pláhnetunni, Reiðmönnum vindanna og fleiri hljómsveitum. Jakob Smári starfaði með John Grant í sjö ár og spilaði með honum á tónleikum víða um heim.