Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem sérhæfir sig í að leita að týndum börnum, segist hafa fengið morðhótun í tengslum við störf sín og að margir mánuðir hafi liðið án viðbragða. Þetta kom fram í Vikulokunum á laugardagsmorgun, samkvæmt frétt RÚV.
„Níu eða tíu mánuði“
Guðmundur sagði hótunina hafa komið fram á opinberum vef:
„Á opinberum vef þar sem einstaklingur sagði að það væri réttast bara að hann myndi fara og drepa mig. Ég tilkynnti það og það tók held ég níu eða tíu mánuði þar til komu einhver viðbrögð við því. Ég er ekki viss um að það verði neitt meira úr því.“
Samkvæmt RÚV hafa um 58 prósent lögreglumanna orðið fyrir hótunum eða ofbeldi í starfi. Þrátt fyrir hótunina segir Guðmundur að hann lendi sem betur fer sjaldan í slíku eða að fólk streitist á móti honum.
„Litla réttarvernd“
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, var einnig gestur í Vikulokunum. Hann segir lögreglumenn upplifa að þeir hafi litla réttarvernd. Á Íslandi, ólíkt öðrum löndum, viðgangist að streitast á móti handtöku, hrækja á lögreglumenn og slá til þeirra.
Fjölnir er ánægður með að lögreglan hafi fengið rafvarnarvopn. „Eftir að lögreglan fékk þessi rafvarnarvopn hafa meiðsl lögreglumanna minnkað og átök hafa minnkað. Það er mjög ánægjulegt,“ segir hann. Hann segir ástæðuna þá að lögreglumenn neyðist ekki til að vera jafn nálægt fólki og áður.
Framhald af umræðu síðustu daga
Fjölnir lýsti reiði meðal lögreglumanna í viðtali við RÚV á föstudag, eftir dóm yfir þremur mönnum sem kveiktu í bíl rannsóknarlögreglukonu. Nútíminn sagði frá því, þar á meðal að lögreglumenn upplifi enga réttarvernd í starfi.
Átti að fá 100 þúsund frá „mafíunni“ fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
Fangageymslur fullar í nótt
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt. Samkvæmt frétt mbl.is upp úr dagbók lögreglunnar, vegna verkefna frá klukkan 17 á laugardag til klukkan 5 á sunnudagsmorgun, voru fangageymslur fullar og rúmlega það. Ein kona sparkaði í lögreglubíl og var færð á lögreglustöð en sleppt eftir skýrslutöku.