Samkvæmt nýrri könnun á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands eru um sextíu og fimm prósent landsmanna fylgjandi því að refsað sé fyrir kaup á kynlífsþjónustu, líkt og gert er hér á landi.
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og Jónas Orri Jónasson, sérfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, stóðu fyrir könnuninni sem verður kynnt á ráðstefnu á vegum Rannsóknarseturs í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri.
Helgi hefur á síðustu tíu árum reglulega kannað afstöðu fólks til refsinga fyrir kaup á kynlífsþjónustu og hefur hlutfall þeirra sem eru fylgjandi þeirri leið aldrei verið hærra en nú.
Stuðningurinn var næstmestur árið 2018 þegar sextíu og eitt prósent voru hlynnt því að kaupendum yrði refsað en árið 2020 lækkaði hlutfallið niður í fjörutíu og sex prósent. Síðan þá hefur hlutfallið verið á hraðri uppleið, var fimmtíu og fimm prósent árið 2022 og hefur á síðustu fjórum árum hækkað um tíu prósentustig.
Helgi segir um að ræða málaflokk þar sem afstaðan litast af ríkjandi siðferðismati í þjóðfélaginu hverju sinni og að opinber umræða hafi þar mikil áhrif. „Sú mynd sem dregin er upp af kynlífssölu er að seljendur séu þolendur mansals og þvingunar. Í því ljósi þarf ekki koma á óvart að löggjafinn vilji loka fyrir sölu með því að herða refsingar fyrir kaupin, koma í veg fyrir mansal með því að refsa kaupandanum,“ segir Helgi.
Hann bendir einnig á umræðan gæti litast af því að stefna flokkanna sem nú eiga sæti á Alþingi sé á þessum nótum. Aftur á móti hafi þingmenn Pírata, sem ekki eiga lengur sæti á þingi, talað fyrir öðrum lausnum.
Ekki einsleitur hópur
Afstaða fólks er þó afar breytileg þegar litið er til einstaka hópa í samfélaginu. Á sama tíma og einungis fjörutíu og sjö prósent karla eru hlynnt refsingu fyrir kaup er yfirgnæfandi meirihluti kvenna, eða áttatíu og fjögur prósent á þeirri skoðun.