Ingó segir að hann hafi vissulega ekki alltaf verið „kórdrengur“ á yngri árum en flestar þeirra sagna sem gengið hafa um hann eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Hann gagnrýnir það sem hann kallar markvissa atlögu að atvinnuöryggi sínu.„Ég var aldrei að níðast á neinum eða beita ofbeldi eða nauðga eða neitt… það sem fólk segir stundum er bara glórulaust,“ segir Ingó.
Í viðtalinu lýsir Ingó því sem hann kallar vaxandi útilokunarmenningu í samfélaginu, þar sem einstaklingar sem víkja frá ríkjandi skoðunum geti átt á hættu að vera teknir og jarðaðir.„Ef þú ferð ekki eftir línunni þá áttu bara í mikilli hættu á að vera tekinn og jarðaður með þeim leiðum sem eru í boði,“ segir hann.
Umræðan löngu komin úr böndunum
Hann segir umræðuna hafa farið úr böndunum þegar nafnlausar sögur fóru á flug í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Í kjölfarið hafi myndast það sem hann kallar „histeríu“ þar sem hann hafi verið stimplaður á grundvelli ósannaðra frásagna.„Það er verið að segja að ég sé að níðast á unglingsstúlkum eða álíka rugl sem ég þarf að lesa um sjálfan mig.“ „Ég get viðurkennt mín mistök – en þetta er allt annað“Ingó viðurkennir að hann hafi ekki alltaf hagað sér fullkomlega á yngri árum, meðal annars þegar hann hóf feril sinn ungur í tónlistarheiminum.„Ég get alveg viðurkennt alla mína verstu parta í lífinu… en þeir eru ekkert af þeim sem eru sagðir um mig í þessu rugli.“Hann bendir á að hegðun sem hann sýndi sem tvítugur maður á böllum sé nú notuð gegn honum áratugum síðar.„Ég var óviðeigandi þegar ég var 21 árs á menntaskólaballi – á það að þýða í dag að ég megi ekki halda tónleika til styrktar góðu málefni?“En boðaðir tónleikar hans til stuðnings Sólheimum í Grímsnesi voru nýverið slegnir af vegna mótmæla einhverra sem ekki vildu að hann kæmi fram.
Almenningur taki virkan þátt í aðförinni
Í viðtalinu nefnir Ingó nýlegt dæmi þar sem hann segir almenning taka virkan þátt í því sem hann upplifir sem aðför að sér.Hann lýsir því hvernig kennari við Menntaskólann á Akureyri hafi skrifað opinberlega að hann væri „að níðast á 15 ára stúlkum“, sem hann segir vera alrangt.„Hvernig getur manneskja leyft sér að skrifa þetta opinberlega um fólk sem hún þekkir ekki neitt?“ spyr Ingó. Í seinni hluta viðtalsins beinir Ingó gagnrýni sinni að kerfinu og segir sig hafa staðið varnarlausan gagnvart grófum ummælum. Hann höfðaði meiðyrðamál vegna ummæla sem hann segir hafa verið „eins gróf og hægt er“, þar sem fullyrt var að hann hefði brotið gegn börnum. Sá sem lét ummælin falla var þó sýknaður í héraði.„Þetta er bara skólabókardæmi um mannorðsmorð,“ segir Frosti.
Gagnrýnir kerfið og fjölmiðla
Ingó gagnrýnir einnig umfjöllun ríkisfjölmiðilsins RÚV og segir aðila sem hafi ráðist að honum hafa fengið jákvæða umfjöllun án þess að honum sjálfum hafi verið gefinn kostur á að svara fyrir sig.„Mér er ekki einu sinni boðið að útskýra hvað sé búið að vera í gangi.“Þrátt fyrir áralangan storm segir Ingó að hann vilji fyrst og fremst fá að starfa í friði og sjá fyrir fjölskyldu sinni.„Ég er bara einn maður með einn gítar sem fer og syngur fyrir fólk. Ég hef engin meiri völd en það.“Ingi segir að endingu að hann sjái þetta viðtal sem lið í því að segja sína hlið sögunnar í eitt skipti fyrir öll og binda enda á langvarandi umræðu sem hann telur hafa verið byggða á misskilningi og ósönnum ásökunum.
Bandaríski leikarinn Johnny Depp (63) kom aðdáendum á óvart með því að mæta á San Diego Comic-Con á fimmtudaginn, klæddur sem Ebenezer Scrooge.Depp mæ...
Ég er ekki að skrifa þetta sem maður sem er annaðhvort með eða á móti ESB. Ég er bara að horfa á þetta út frá reynslu minni áralöngu af íslenskum stjó...
Ótrúlegt myndband af birni sem sat fastur efst á rafmagnsstaur í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga....
Elon Musk, eigandi Tesla, SpaceX og fleiri fyrirtækja, segist ætla að láta gervigreindarforrit sitt Grok búa til kvikmynd í fullri lengd byggða á Ódys...
Jarðboranir hf. hafa undirritað samning við Orkuveituna um borun á rannsóknarholu. Markmiðið er að finna nýjar leiðir til nýtingar á ofurheitum jarðhi...
Gervigreindarlíkön OpenAI fundu áður óþekktan öryggisgalla, brutust út úr lokuðu tilraunaumhverfi fyrirtækisins og réðust inn í framleiðslukerfi Huggi...
Í byrjun febrúar voru tveir starfsmenn Hraunbúða handteknir vegna rannsóknar lögreglunnar á andláti konu á tíðræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Nú í jú...
Engin lán Landsvirkjunar eru lengur með ríkisábyrgð eftir að félagið greiddi upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð í dag. Þetta kemur fram í tilkyn...
Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki síst um framtíð unga fólksins á Íslandi. Neikvæða fólkið sem vill ekki leyfa landsmönnum að ákveða framtíð s...
Eftir rigningatíð á suðvesturhorni landsins síðustu daga létti til eftir hádegi í gær og sást í bláan himinn sem ekki hefur verið algeng sjón að undan...
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi Rabbíni gyðinga á Íslandi virðist hafa safnað 436 millj...
Þar koma saman tónlist, myndlist, vísindi, geimferðir, tækni og vellíðan í kringum almyrkva á sólu og takmarkaður miðafjöldi í boði. Jón Bjarni segir ...
Visitors enjoying a morning at Las Canteras Beach in Las Palmas de Gran Canaria were treated to an unexpected sight yesterday (Thursday) when a woman ...
Ferjan Baldur hefur siglingar í Breiðafirði á ný í dag eftir að hafa siglt milli lands og Vestmannaeyja síðustu vikur. Jakob Björgvin Sigríðarson Jako...
„Mér blöskrar þegar ég les fréttir þar sem menn eru að segja að þetta sé bara allt í góðu og komi engum á óvart,“ segir Hallgrímur Lárusson, framkvæmd...
Þúsundir hafa flúið heimili sín í Frakklandi og Spáni vegna þessa og hafa Frakkar farið fram á aðstoð frá Evrópusambandinu til að tækla elda sem þar b...
Umræða um innleiðingu svokallaðs „kill switch“, það er að segja úrræðis til að gera gervigreindarforrit óvirk, hefur aukist samfara miklum framförum t...
Stefnunum var ætlað að þvinga þrjá blaðamenn til að bera vitni fyrir svokölluðum ákærudómstól og opinbera þar hverjir heimildarmenn þeirra vegna frétt...
„Í dag hreyfist smálægð til austurs, skammt suður af landinu. Breytileg og síðar norðlæg átt 3-10 m/s og skýjað með lítilsháttar vætu af og til í fles...
Í júlí 2024 gekk Axel Rudakubana inn á dansnámskeið fyrir börn í Southport og stakk þar þrjár stúlkur til bana. Þá særði hann átta önnur börn og tvo f...
Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, veltir því fyrir sér hvers vegna gerðar séu strangari líkamlegar kröfur til karla en...
Lögregla leiðbeindi tveimur ungum stúlkum sem töldu sig vera fastar inni í „samkomumannvirki“ eftir lokun í gærkvöld eða nótt. Þær komust út um neyðar...
Tvær ungar stúlkur töldu sig vera fastar inni í Egilshöll eftir lokun í gærkvöld. Þær höfðu farið á salernið eftir bíóferð og ekki komist út úr höllin...
Í síðustu viku bárust fregnir af því að Valgeir Örn Ragnarsson hefði sagt skilið við fréttastofu Rúv og væri orðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsn...
Í flestum landshlutum verður skýjað í dag með lítilsháttar vætu af og til en eftir hádegi léttir til sunnan- og vestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjas...
Nýju tollarnir eru á bilinu tíu til 12,5 prósent en athygli vekur að þeir eru lagðir á með vísan til löggjafar gegn vinnuþrælkun. Það er að segja, Ban...
Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig Landsbankinn jók hagnað sinn um næstum 4 milljarða á milli ára. „Uppgjör bankans á fyrri hluta þessa árs...
Þetta segir Mike Nicolaisen, eigandi og framkvæmdastjóri Arctic Wonderland Tours, Hotel Angmagssalik og Hotel Kulusuk á Austurgrænlandi. Hann segir ák...
A 45-year-old man has been arrested by the Guardia Civil after being caught allegedly carrying out a burglary inside a house in Las Americas in the so...
Frá þessu greinir í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni næturinnar. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fallið af rafhlaup...
The Canary Islands are facing a challenging spell of weather today (Friday), with four separate pre-alerts in force for high temperatures, strong wind...
Aðeins eitt olíuflutningaskip sigldi um Hormússund í gær. Skipið, sem var á leið til Rizhao við austurströnd Kína, er af næststærstu gerð olíuflutning...
The new Gordie Howe International Bridge between Michigan and Ontario is about to open, but Donald Trump's latest tariffs on Canada have muted celebra...
25 hið minnsta særðust í loftárás Rússa á borgina Zaporizhzhia í Úkraínu í gærkvöld. Sex börn særðust í árásinni.Nokkur heimili og barnaskóli urðu fyr...
Veðrið lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins síðdegis í gær en þegar fór að kvölda tók himininn á sig hvítgulan lit og yfir lagðist dulúðlegt mistur. Eina...
Highs of 30C are expected in the south on Friday before wet weather arrives for the weekend - although it is unlikely to be enough, as Ben Rich explai...
Highs of 30C are expected in the south on Friday before wet weather arrives for the weekend - although it is unlikely to be enough, as Ben Rich explai...
Arkady Dvorkovich forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, ákvað í gær að láta tímabundið af störfum. Það gerði Dvorkovich því hann er kominn á lista Evr...
Stjórnstöð Bandaríkjahers segir herinn hafa gert árásir á stjórnstöðvar Íranshers, drónageymslur, samskiptanet og strandeftirlitsstöðvar í nótt. Þetta...
Bandaríkin leggja nýja innflutningstolla á vörur frá 85 ríkjum frá og með morgundeginum. Stjórn Donalds Trumps sakar ríkin um að hafa ekki gert nóg ti...
Bandaríkin leggja nýja innflutningstolla á vörur frá 85 ríkjum frá og með morgundeginum. Stjórn Donalds Trumps sakar ríkin um að hafa ekki gert nóg ti...
Vegagerðin vekur athygli á því að á morgun, föstudag, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í austurátt fram hjá Vatnsleysustrandarvegi. Vegurinn ...