Inga Sæland segir skilyrðin skýr – „Engin ESB aðild án fullra og óafturkræfra yfirráða“
Að hennar mati sé þó ljóst að án trygginga um yfirráð yfir auðlindum sé slíkur samningur óraunhæfur.
„Ef við fáum ekki varanleg og óafturkræf yfirráð yfir okkar auðlindum, þá er ekkert um að tala,“ segir hún og bætir við að hún telji þjóðina ekki myndu samþykkja annað.
Gagnrýnir umræðu og áhrif „spunameistara“
Í viðtalinu kemur Inga einnig inn á það sem hún kallar ruglingslega og villandi umræðu um Evrópumál. Hún segir erfitt að greina á milli staðreynda og rangfærslna, sérstaklega á tímum þar sem tækniframfarir á borð við gervigreind geri það oft óljóst hvort um sé að ræða falskar upplýsingar eða sannar.
Hún varar við áhrifum „spunameistara“ sem reyni að móta skoðanir almennings með markvissum áróðri.
Segir viðbrögð við pizza partýi hafa farið úr böndunum
Þá gagnrýnir hún harðlega viðbrögð við svokölluðu „pizza partýi“ ráðherra sem vakti mikla athygli í samfélaginu. Að hennar sögn hafi verið um óformlegt kvöldverðarboð að ræða þar sem ráðherrar komu saman til að ræða mál í rólegheitum.
Hún segir umræðuna í kjölfarið hafa verið vægast sagt ósanngjarna: „Ég hef sjaldan séð annað eins rugl og upphrópanir,“ segir hún og bætir við að gagnrýnin hafi farið yfir strikið og orðið að persónulegum árásum.
Segir stjórnmálamenn eiga rétt á einkalífi
Inga tekur gagnrýnina á Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra sérstaklega fyrir en hún fékk yfir sig holskelfu fúkyrða fyrir að mæta ekki á viðburð í Grindavík. Inga segir það dæmi um ósanngjarna umræðu þar sem ekki sé tekið tillit til einkalífs og fjölskylduaðstæðna.
Að hennar mati sé mikilvægt að stjórnmálamenn geti átt sér líf utan opinberra starfa án þess að þurfa að gera grein fyrir hverri mínútu sem þeir eyða utan skyldustarfa og segir að það minni stundum á hlekki.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.