Brotist var inn í heimahús í miðborginni í gær eða nótt. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að nágrannar hafi staðið innbrotsþjófinn að verki og yfirbugað hann þegar hann reyndi að brjótast inn í mannlausa íbúð. Nágrannarnir héldu innbrotsþjófnum þar til lögregla kom á vettvang.
Húsráðandi í Hafnarfirði eða Garðabæ hrakti innbrotsþjófa á brott í nótt þegar þeir gerðu tilraun til innbrots.
Þá var annað innbrot í verslun í hverfi 108.
Þrjú ungmenni voru stöðvuð í Hafnarfirði en þau voru án ökuréttinda á sínum ökutækjum. Eitt þeirra ók krossara án ökuréttinda og reyndi að flýja en hætti fljótlega við það.
Þá var annað ungmenni stöðvað á 60 km/klst á rafmagnsbifhjóli á gangstétt um bæinn, einnig án ökuréttinda og auk þess með öryggisbúnað í ólagi. Þriðja ungmennið var einnig án ökuréttinda á rafmagnsbifhjóli sínu.