Þetta kom fram í könnun sem var lögð fyrir íbúa samhliða sveitarstjórnarkosningunum í maí. 99 prósent af þeim sem kusu í sveitarstjórnarkosningum á kjörstað tóku þátt í íbúakönnuninni. Alls bárust 449 svör, þar af voru 432 gild og 17 auð eða ógild.
308 íbúar, eða 71,3 prósent, sögðu nei við spurningu um hvort skoða ætti sameiningu sveitarfélaga frekar. Já sögðu 124, eða 28,7 prósent.
Í íbúakönnuninni var jafnframt spurt hvaða sveitarfélögum eða svæði þeir vildu helst snúa sér til varðandi sameiningu ef til sameiningar kæmi. Þar gátu þeir bæði valið fyrsta og annað val, en eftirfarandi tölur sýna samantekin stig úr þeim báðum:
Skeiða- og Gnúpverjahreppur (189)
Ásahreppur (171)
Sveitarfélagið Árborg (148)
Uppsveitir Árnessýslu (106)
Öll Árnessýsla (104)
Vestursvæði Árnessýslu (Árborg, Ölfus og Hveragerði) (59)
„Niðurstöðurnar sýna skýrt að meirihluti íbúa Flóahrepps vill ekki fara í sameiningarviðræður að svo stöddu og vilja íbúar að Flóahreppur verði áfram sjálfstætt sveitarfélag. Niðurstöðurnar gefa sveitarstjórn mikilvæga og gagnlega innsýn í viðhorf íbúa og gefa skýra mynd af þeim sveitarfélögum sem helst kæmu til greina ef slíkar umræður yrðu teknar upp síðar,“ segir í bókun sveitarstjórnarinnar.