Íslendingar streyma nú austur að sögn Elís Þórs Vito, en hann situr í stjórn Þjónustusamfélagsins á Héraði og var til viðtals í Bítinu í morgun. Hann hafi séð Íslendingana koma „með hjólhýsin og skuldahalana“ en hins vegar hafi erlendir ferðamenn stefnt í gagnstæða átt, norður. „Við tökum glöð á móti öllum gestum, enda mikið hægt að gera hérna á Egilsstöðum,“ segir Elí.
Umferðin austur hafi byrjað fyrr í vikunni og tjaldsvæðið á Egilsstöðum sé þegar fullt. Tjaldsvæðið í Hallormsstaðarskógi sé „orðið vel þétt“ og hann hafi sjálfur fengið fyrirspurnir frá ferðalöngum um hvort þeir megi leggja húsbílum á túninu heima hjá honum. Aðsóknin sé slík.
Samkvæmt vef tjaldsvæðisins á Egilsstöðum er allt uppbókað eða frátekið þar fyrir dagana 10. - 12. júlí.
Þó svo að tjaldsvæðið á Egilsstöðum sé fullbókað séu önnur tjaldsvæði í nærliggjandi sveitarfélögum sem geti boðið sólarþyrstum ferðamönnum upp á næturstað. Heimamenn hafi búið sig undir ferðamannastrauminn en þegar hafi verið hugað að því að fylla vel á hillur verslana.
„Það er búið að leggja mikla áherslu þegar þessi langtímaspá kom að við skulum nú vera tilbúin, skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið,“ segir hann.
Uppselt eða fáir miðar eru eftir í flug frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða ef síða Icelandair er skoðuð.
Lágmark viku í að skoða Austurland
Elí segir ferðamenn þurfa að lágmarki viku til þess að skoða það sem Austurland hefur upp á að bjóða. „Þú getur verið í tvær, þrjár vikur hérna og bara upplifað brotabrot af fjórðungnum Austurlands í heild sinni.“
Hallormsstaðir sé mögnuð upplifun og verðugt sé að fara á útsýnispallinn í Hafnarhólma og skoða einn stærsta lundahól á Íslandi á Borgarfirði eystra. Eins sé mikið að hægt að gera og skoða á Egilsstöðum, „hvort sem það sé að fara og njóta náttúrunnar eða fara og fá sér gott í gogginn.“ Væri hann að koma af suðvesturhorninu austur hæfi hann ferðina á að fá sér ís, en fyrsta lúgusjoppa Egilsstaða opnaði fyrir stuttu.