Hvar standa viðræður milli Bandaríkjanna og Írans?

Hvar standa viðræður milli Bandaríkjanna og Írans?

Hvar standa viðræður milli Bandaríkjanna og Írans?

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir aðgerðir Ísraels í Sýrlandi og Líbanon hafa umtalsverð áhrif á önnur lönd, þar á meðal Tyrkland.

Erdogan hefur gagnrýnt framferði ísraelskra yfirvalda harðlega að undanförnu, bæði í átökunum í Mið-Austurlöndum og í átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þar að auki hefur hann slitið öllum viðskiptasamböndum milli ríkjanna og hvatt alþjóðasamfélagið til þess að gera slíkt hið sama.

Í samtali við tyrkneska ríkisfjölmiðilinn Anadolu segir forsetinn öryggi Tyrklands langt frá því að vera að fullu tryggt innan landamæra þess. Hann segir Tyrki ekki geta horft framhjá árásum sem beinist að löndum bræðra sinna.

Þá sagði Erdogan Ísraela halda fast í „blekkinguna um fyrirheitna landið“ og að Tyrkir væru fullkomlega meðvitaðir um það hvert sitt lokatakmark væri. Hann varaði við því að ef „bófar Ísraels yrðu ekki stöðvaðir fengi allur heimurinn að finna fyrir afleiðingunum.“

Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur svarað ummælum Erdogan. Í svari sínu sagði Netanjahú Tyrklandsforseta vera einræðisherra, uppfullan gyðingahaturs. Hann sagði hann jafnframt vera „síðasta manninn sem prédikað gæti siðferði fyrir Ísraelsríki.“

Netanjahú hét því að Ísrael héldi áfram að beita sér gegn Íran og áhangendum þess með valdi.

Friðarviðræður milli Bandaríkjanna og Ísraels eru enn í pattstöðu og erfiðlega gengur að ná málamiðlunum um lykilatriði samninga. Þá standa upptök árása á síðustu sólarhringum í vegi fyrir frekari framgangi viðræðna.

Í dag fór sendinefnd frá Katar til Teheran, höfuðborgar Írans, að hitta íranska fulltrúa írönsku samninganefndarinnar, í viðleitni til þess að brúa bilið í samningaviðræðum milli ríkjanna.

Í umfjöllun CNN er haft eftir heimildamanni að heimsóknin gefi til kynna að friðarviðræður séu enn á borðinu þrátt fyrir árásir ríkjanna í nótt.

Fyrr í dag sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðlinum X að Íranar ættu eftir að gjalda fyrir það að eyða of löngum tíma í að semja við Bandaríkin. Fyrir fáeinum dögum, áður en árásir ríkjanna hófust að nýju, sagði forsetinn í samtali við fjölmiðla að samningar ættu að geta verið í höfn á næstu dögum.

Þrettán hafa látið lífið og fimmtán særst í árásum ísraelska hersins í grennd við Týros í suðurhluta Líbanon í dag.

Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum létust níu manns og sjö særðust í bænum Tirdaba en í bænum Deir Qanoun létust þrír og þrír særðust.

Þá lést að minnsta kosti einn og fimm særðust í Týros, þar sem björgunarsveitir vinna að því að hreinsa til í rústunum.

Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna ætlar að senda teymi rannsakenda til Líbanons í næstu viku til þess að meta hvort þar hafi verið framin brot á alþjóðalögum á undanförnum mánuðum.

Þetta segir Volker Türk, yfirmaður mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.

Í byrjun mars réðust Hezbollah-samtökin á Ísrael og sýndu þannig fram á samstöðu samtakanna með Íran, sem þá sat undir árásum Bandaríkjanna og Ísraelsmanna.

Eftir árás Hezbollah svaraði Ísraelsher með umfangsmiklum loftárásum og innrásum í Líbanon.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írana eiga eftir að gjalda fyrir það að hafa tekið of langan tíma í samningaviðræður um endalok stríðsins.

„Íran talar bara og gerir ekkert,“ segir forsetinn í færslu á samfélagsmiðlinum X.

„Harðsstjórinn í Mið-Austurlöndum er DAUÐUR!!! Þeir hafa tekið of langan tíma í að semja um samning sem hefði verið frábær fyrir það, nú verða þeir að greiða verðið!!!.“

Í færslunni tilgreinir Trump ekki hvernig Íranar komi til með að gjalda fyrir árásir sínar á bandarískar herstöðvar í Barein, Jórdaníu og Kúveit. Hann hefur ítrekað sagt að Bandaríkin séu nálægt því að landa samkomulagi við Íran um lok stríðsins en litlar blikur eru á lofti um að framfarir hafi náðst að undanförnu.

Masoud Pezeshkian, forseti Írans, segir brýnt að friðarumleitanir haldi áfram. Í samtali við íranska fjölmiðla í dag segir forsetinn fyrrverandi æðsta leiðtoga íslamska ríkisins Ali Khamenei hafa ítrekað lagt áherslu á mikilvægi þess að reyna að semja til þess að komast hjá því að festast í ástandi sem fæli hvorki í sér stríð né frið.

„Ef við viljum komast yfir þetta ástand þar sem hvorki stríð né friður er, hvað ættum við þá að gera? Ef við tökum ekki þátt í viðræðum, hvaða kosti eigum við þá?“ segir Pezeshkian.

„Það var á þessum forsendum sem Khamenei féllst á það að viðræðurnar héldu áfram og á lokastigum voru fyrirmæli hans að við ættum að fara og leysa málin.“

Fjöldi ríkja hefur gagnrýnt hefndarárásir Írana á þrjú ríki í Persaflóa í nótt. Árásirnar beindust að bandarískum hernaðarskotmörkum í Kúveit, Jórdaníu og Barein.

Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Egyptalands segir að stjórnvöld þar í landi fordæmi árásirnar harðlega. Með þeim hafi verið brotið á fullveldi og landhelgi „systurlanda“ Egyptalands. Ráðuneytið segir árásirnar afar hættulegar og að þær ógni bæði öryggi og stöðugleika svæðisins í heild sinni.

Utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna hefur kallað árásirnar „hryðjuverkaárásir“ og lýst yfir fullum stuðningi sínum við löndin þrjú sem fyrir þeim urðu.

Utanríkisráðuneyti Katar segir árásirnar gróft brot á reglum alþjóðalaga. Í yfirlýsingu ráðuneytisins draga stjórnvöld í Katar einnig fram mikilvægi þess að hlífa svæðinu við „afleiðingum óréttmætra árása“ og því að vinna markvisst að því að endurheimta öryggi á alþjóðavettvangi.

Herstjórnin í Barein hefur virkjað hæsta viðbúnaðarstig landsins vegna árása íranska hersins í nótt. Yfirvöld segja markvissar árásir á óbreytta borgara og einkaeignir vera gróft brot á alþjóðlegum mannúðarlögum.

Í samtali við fjölmiðla segja yfirvöld í Barein loftvarnir hersins hafa stöðvað og eytt fjölda hættulegra loftárása Írans í viðleitni til þess að vernda konungsríkið. Þar segir jafnframt að Teheran haldi kerfisbundnum árásum sínum áfram með eldflaugum og drónum sem miði á óbreytta borgara.

Herinn þar í landi hefur hvatt almenning til að gæta varúðar og að snerta hvorki né fara nálægt „grunsamlegum hlutum sem stafi frá leifum hinnar grimmu írönsku árásar.“

Esmaeil Baghai, talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, segir alþjóðasamskipti ekki eiga sér stað í tómarúmi. Þau þurfi að eiga sér stað við ásættanleg skilyrði til þess að skila árangri.

„Síoníska stjórnin er einnig að skaða þetta ferli með því að brjóta endurtekið á vopnahléinu í Líbanon,“ segir Baghai í samtali við fjölmiðla.

„Öll ferli stjórnmála hljóta skaða af þegar valdbeiting og ólöglegar aðgerðir eru í forgrunni.“

Baghai segir árásir Írans á Persaflóaríkin Kúveit, Barein og Jórdaníu sýna það að „herinn hiki ekki við að verja landið“. Hvar sem þess þurfi bregðist herir landsins við óvinum af styrk og ákveðni.

Ísraelski herinn hóf í dag röð árása í suðurhluta Líbanon eftir að hafa hótað áframhaldandi aðgerðum í morgun. Þá fyrirskipaði herinn íbúum þó nokkurra sveitarfélaga að flýja heimili sín tafarlaust.

Árásirnar hafa meðal annars hafnað á þremur sveitarfélögum nærri hafnarborginni Týros. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Líbanon hafa átta manns fallið í árásunum.

Fyrr í vikunni hótuðu írönsk stjórnvöld því að ráðast á Ísrael ef það hætti ekki aðför sinni að Líbanon. Ísraelsk stjórnvöld svöruðu hótunum Írana með því að heita áframhaldandi árásum sínum gegn Hezbollah-samtökunum. Meira en 3.660 hafa verið drepnir og 11.300 særðir frá því Ísraelsher jók umsvif árása sinna á Líbanon í mars. Um tvær milljónir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

Esmaeil Baqaei, utanríkisráðuneytis Írans, segir árásir Bandaríkjamanna á skotmörk í suðurhluta Íran í nótt gera það að verkum að erfitt verði að tryggja áframhaldandi framgang friðarumleitana milli ríkjanna.

„Því miður eru Bandaríkjamenn að skaða þetta diplómatíska ferli með því að senda frá sér mótsagnarkennd skilaboð, breyta afstöðu sinni og kröfum endurtekið, og verst af öllu, með endurteknum brotum á vopnahléinu,“ segir Baquaei í myndskilaboðum sem íranskir fjölmiðlar birtu í morgun.

Hann segir það óhjákvæmilegt að valdbeiting og ólöglegar aðgerðir muni hafa neikvæð áhrif á framgang friðarviðræðna.

Samkvæmt írönskum fjölmiðlum hafa að minnsta kosti 20.000 Íranar misst aðgang að drykkjarvatni eftir að Bandaríkjamenn skutu niður tvö vatnsból í eldflaugaárásum sínum í nótt.

Í umfjöllun írönsku fréttastofunnar Tasnim er haft eftir Abdul Hamid Hamezehpour, forstjóra Hormozgan-vatns- og skólpsveitunnar, að tveir stærðarinnar steinsteyptir vatnsgeymar í Bamani-héraði hafi verið skotnir niður af eldflaugum Bandaríkjamanna og séu nú gereyðilagðir.

Forstjórinn segir vatnsbólin hafa útvegað bænum Kouhestak og 10 nærliggjandi þorpum drykkjarvatn. Hann segir neyðaraðgerðum hafa verið ýtt úr vör til þess að vinna á tjóninu. Þær feli meðal annars í sér flutning vatns á tankbílum og uppsetningu tímabundinna dælukerfa.

Kínversk og rússnesk stjórnvöld hafa brugðist við fregnum af átökunum milli Íran og Bandaríkjanna í nótt.

Stjórnvöld í Kína hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna átakanna og varað við slæmum afleiðingum þess ef ekki takist að koma í veg fyrir áframhaldandi árásir beggja vegna.

„Þeir sem málið varðar ættu að halda ró sinni, sýna hófsemi og grípa til raunhæfra aðgerða til að draga úr spennunni,“ sagði talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins á blaðamannafundi.

Rússnesk yfirvöld hafa einnig hvatt til þess að Íran og Bandaríkin haldi aftur af sér.

„Við höfum miklar áhyggjur af nýrri umferð vopnaðra átaka milli Bandaríkjanna og Íran, sem hófust með tilefnislausri árás Bandaríkjanna og Ísraels gegn íslamska lýðveldinu Íran,“ er haft eftir talskonu rússneska utanríkisráðuneytisins.

„Við hvetjum bæði ríki til þess að sýna aðgát og hætta árásum sínum tafarlaust.“

Góðan daginn og velkomin á þessa fréttavakt. Ég heiti Mist Grönvold og fylgist með framvindu mála í átökunum í Mið-Austurlöndum í dag.

Átökin milli Íran og Bandaríkjanna stigmögnuðust í nótt og hafa ekki verið harðari frá því í byrjun apríl þegar vopnahlé var komið á.

Á mánudag grandaði íranski herinn bandarískri þyrlu við strendur Óman. Í hefndarskyni segist miðstjórn Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum hafa gert nákvæmar árásir á loftvarnarkerfi Írana, stjórnstöðvar á jörðu og ratsjárstöðvar við Hormússund.

Í nótt gerði Íransher eldflaugaárásir á bandarískar herstöðvar í þremur ríkjum við Persaflóa, Barein, Jórdaníu og Kúveit, til þess að hefna fyrir árásir Bandaríkjanna. Hermálayfirvöld beggja ríkja hafa greint frá árásunum og segja loftvarnarkerfum landanna hafa tekist að bægja hættunni frá í bili.

Íranar segja Persaflóaríkin bera lagalega og siðferðislega ábyrgð á því að koma í veg fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels.

Hér að neðan má lesa fréttavakt næturinnar.

#bandaríkjanna #hvar #milli #standa #viðræður


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-10-hvar-standa-vidraedur-milli-bandarikjanna-og-irans-477607

📰 Aðrar fréttir

US launches new strikes on Iran after Trump vows to hit 'hard'
📅 10.06.2026 👁️ 0
US launches new strikes on Iran after Trump vows to hit 'hard'
The US military has launched new strikes on Iran after President Donald Trump said US forces would hit the country "hard" after both sides exchanged f...
Ari þiggur stjórnarformennsku í OR – „Ég hlakka til samstarfsins“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 0
Ari þiggur stjórnarformennsku í OR – „Ég hlakka til samstarfsins“ - DV
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, hefur ákveðið að þiggja boð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að taka að sér stjórnarfo...
Watch: Fireworks illuminate Barcelona's Sagrada Família during Pope Leo visit
📅 10.06.2026 👁️ 0
Watch: Fireworks illuminate Barcelona's Sagrada Família during Pope Leo visit
Pope Leo XIV says Barcelona's iconic Sagrada Família is a masterpiece of "stones, colours and light" during his visit to Spain.
Ari þiggur stöðu stjórnar­for­manns - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
Ari þiggur stöðu stjórnar­for­manns - Vísir
Þetta tilkynnir hann í færslu á Facebook. „Það vakti athygli er nýr meirihluti D, C og B var myndaður í borgarstjórn 27. maí, að borgarstjóri sagðist ...
Samkeppnin eigi á brattann að sækja í litlu hagkerfi
📅 10.06.2026 👁️ 0
Samkeppnin eigi á brattann að sækja í litlu hagkerfi
Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem birt var í...
„Stað­reynd að matarkarfan mun lækka í verði“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
„Stað­reynd að matarkarfan mun lækka í verði“ - Vísir
„Vextir húsnæðislána á Íslandi eru níu til tíu prósent á meðan þeir eru þrjú til fjögur prósent á evrusvæðinu,“ sagði Pawel í eldhúsdagsumræðum sem fr...
NASA mun fylgjast með ís­lenska himin­hvolfinu - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
NASA mun fylgjast með ís­lenska himin­hvolfinu - Vísir
Þegar klukkan mun nálgast sex að kvöldi þann 12. ágúst næstkomandi mun athygli flestra á Íslandi beinast að almyrkvanum, sem er sá fyrsti sem er sjáan...
Um fjörutíu vísindamenn NASA væntanlegir til landsins
📅 10.06.2026 👁️ 1
Um fjörutíu vísindamenn NASA væntanlegir til landsins
Hátt í fjörutíu vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, koma hingað til lands í ágúst til að rannsaka áhrif almyrkva á sólu á andrúmslof...
Árásarmaðurinn í Belfast ákærður fyrir tilraun til manndráps – miklar óeirðir hafa brotist út í Írlandi
📅 10.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Belfast ákærður fyrir tilraun til manndráps – miklar óeirðir hafa brotist út í Írlandi
Árásarmaðurinn í Belfast ákærður fyrir tilraun til manndráps – miklar óeirðir hafa brotist út í Írlandi Fréttin10. júní 2026ErlentLeave a Comment Þrít...
„Er eitt­hvað til sem heitir Ís­lendingur?“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Er eitt­hvað til sem heitir Ís­lendingur?“ - Vísir
Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld og tók Snorri til máls fyrir hönd Miðflokksins í fyrri umferð umræðanna. Hann byrjaði á því að hrósa Kri...
Sakar ráð­herra um alræðistilburði í nafni mann­réttinda - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
Sakar ráð­herra um alræðistilburði í nafni mann­réttinda - Vísir
Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld og tók Snorri til máls fyrir hönd Miðflokksins í fyrri umferð umræðanna. Hann byrjaði á því að hrósa Kri...
Vísbending um að lögreglumenn á Akureyri hafi beitt harðræði - Hné fór í háls á 17. júní - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Vísbending um að lögreglumenn á Akureyri hafi beitt harðræði - Hné fór í háls á 17. júní - DV
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur komist að þeirri niðurstöðu að mögulega hafi lögregla beitt harðræði og að lögreglumaður hafi gerst sekur um refi...
„Ríkis­stjórnin getur ekki flúið eigin vand­ræði inn í Evrópu­sam­bandið“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Ríkis­stjórnin getur ekki flúið eigin vand­ræði inn í Evrópu­sam­bandið“ - Vísir
„Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið,“ sagði Guðrún sem skaut föstum skotum að ríkisstjórninni. „Þegar ríkisstjórnin s...
Óeirðir annað kvöldið í röð
📅 10.06.2026 👁️ 1
Óeirðir annað kvöldið í röð
Óspektir halda áfram í Norður-Írlandi vegna hnífaárásar á mánudagskvöld. Um 200 söfnuðust saman í Newtonabbey þar sem fólk sást henda hlutum í átt að ...
Hvað veistu um… árið 2010? - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Hvað veistu um… árið 2010? - Vísir
Efnahagslífið var enn að jafna sig eftir fjármálakreppuna sem hófst árið 2008 og samfélagsmiðlar urðu sífellt mikilvægari í samskiptum fólks. En hvað ...
„Það má herma“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Það má herma“ - Vísir
Uppáhalds flík Ásthildar er í eigu Sóldaggar kærustu hennar og á undanförnum árum hefur Ásthildur þorað að fara meira út fyrir kassann í fatavali. Ást...
Bill Gates says Epstein wanted a personal relationship but he 'never reciprocated'
📅 10.06.2026 👁️ 2
Bill Gates says Epstein wanted a personal relationship but he 'never reciprocated'
Billionaire Bill Gates told a congressional committee on Wednesday that he never had a personal relationship with Jeffrey Epstein, and cut ties with t...
Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“ - DV
Hann Adam Jones hefur fyrir svo margt að lifa með konunni sinni, Gyðju Kolbrúnu Jones. Ekki síst er hann glaður yfir að verða afi og litla barnbarnið,...
Essex Police given new David Sullivan information
📅 10.06.2026 👁️ 2
Essex Police given new David Sullivan information
Police have been contacted with new information about David Sullivan following a BBC Panorama and Times investigation into the West Ham co-owner.Essex...
Eldhúsdagsumræður – Viðræður um þinglok ganga hægt
📅 10.06.2026 👁️ 2
Eldhúsdagsumræður – Viðræður um þinglok ganga hægt
Jóhann Páll Jóhannsson segir að ríkisstjórnin ætli ekki að hvika frá stefnu um hallalaus fjárlög árið 2027. „Meðalið er ábyrgur ríkisrekstur eftir ára...
Eldhúsdagsumræður – ESB og efnahagsmálin í brennidepli
📅 10.06.2026 👁️ 2
Eldhúsdagsumræður – ESB og efnahagsmálin í brennidepli
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, segir ríkisstjórnina hafa stuðlað að versnandi efnahagsástandi og ekki staðið við loforð um að lækka vex...
Tyggjóklessubaninn söðlar um og ræðst á veggjakrot
📅 10.06.2026 👁️ 1
Tyggjóklessubaninn söðlar um og ræðst á veggjakrot
Guðjón Óskarsson, tyggjóklessubaninn, hefur bætt um betur og hreinsar nú einnig krot af veggjum miðborgarinnar. Listaverk sem hann lét vinna á útkrota...
ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla reynir á styrk fjölmiðla segir fyrrverandi utanríkisráðherra
📅 10.06.2026 👁️ 2
ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla reynir á styrk fjölmiðla segir fyrrverandi utanríkisráðherra
Alþingi hefur samþykkt að þjóðaratkvæðagreiðsla verði hér á landi laugardaginn 29. ágúst um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.Stæ...
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Al­þingi - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Al­þingi - Vísir
Eldhúsdagsumræður fara venju samkvæmt fram undir lok þingvetrar og halda þingmenn úr öllum flokkum ræður. Samkvæmt starfsáætlun verður þingi slitið á ...
20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík - Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB - „Lífið líka fullt af áskorunum“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík - Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB - „Lífið líka fullt af áskorunum“ - DV
Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir kynntust fyrst í borgarstjórn fyrir 20 árum, Segjast þær hafa átt gott samstarf, þrátt fyrir að v...
Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun
📅 10.06.2026 👁️ 1
Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun
Hvammsvirkjun verður gangsett árið 2030 gangi allt eftir, segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli landeigenda sem...
World Cup expected to be the biggest betting event in history
📅 10.06.2026 👁️ 1
World Cup expected to be the biggest betting event in history
The Fifa Men's World Cup is set to be the biggest betting event of all time, with more than $50bn (37.4bn) in wagers placed globally. The tournament w...
„Það skortir enn úrræði fyrir börnin sem eru í mestum vanda“
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Það skortir enn úrræði fyrir börnin sem eru í mestum vanda“
Ríkisendurskoðandi skilaði í morgun stjórnsýsluúttekt á innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Málið var rætt á...
Stur­laugur nýr bæjar­stjóri Akranessbæjar - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Stur­laugur nýr bæjar­stjóri Akranessbæjar - Vísir
Sturlaugur er fæddur og uppalinn á Akranesi en hefur að mestu búið í Bretlandi síðustu tvo áratugi. Hann lék á árum með knattspyrnuliði ÍA, fagnaði fj...
Whale graveyard dating back five million years discovered
📅 10.06.2026 👁️ 1
Whale graveyard dating back five million years discovered
An enormous whale graveyard around 1,200km (745 miles) long has been discovered in the south-eastern Indian Ocean.The site, which is 7km (four miles) ...
Sturlaugur ráðinn bæjarstjóri á Akranesi
📅 10.06.2026 👁️ 2
Sturlaugur ráðinn bæjarstjóri á Akranesi
Ný bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að ráða Sturlaug Haraldsson sem bæjarstjóra. Hann hefur formlega störf 19. ágúst.Sturlaugur hefur star...
Evrópu­met í matvöruhækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Evrópu­met í matvöruhækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir
Rússar virðast byggja upp hernaðargetu sína nálægt landamærum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Sameiginleg rannsókn norrænna ríkisfjölmiðla og e...
Evrópu­met í verð­hækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Evrópu­met í verð­hækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir
Rússar virðast byggja upp hernaðargetu sína nálægt landamærum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Sameiginleg rannsókn norrænna ríkisfjölmiðla og e...
Krónan léleg til að varðveita verðmæti og verðtrygging býr til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Krónan léleg til að varðveita verðmæti og verðtrygging býr til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu - DV
Íslenska krónan hefur reynst lélegt tæki til að varðveita verðmæti og víðtæk notkun verðtryggingar hefur búið til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar ve...
Fangi á Litla-Hrauni ekki sáttur - Ófullnægjandi eldhús og vanstilltar sturtur - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Fangi á Litla-Hrauni ekki sáttur - Ófullnægjandi eldhús og vanstilltar sturtur - DV
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun fanga á Litla-Hrauni yfir aðbúnaði í fangelsinu. Var hann ósáttur við aðbúnað í eldhúsinu á s...
Changing visa rules for care workers is wrong, says Rayner
📅 10.06.2026 👁️ 2
Changing visa rules for care workers is wrong, says Rayner
Former Deputy Prime Minister Angela Rayner has said changing visa rules for migrants already living in the UK would be "the wrong thing to do", repeat...
Mál Steinu fer fyrir Hæsta­rétt - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 3
Mál Steinu fer fyrir Hæsta­rétt - Vísir
Steina var ákærð fyrir að hafa banað sjúklingi á geðdeild Landspítala árið 2021 með því að hella næringardrykk upp í munn hans. Sjúklingurinn var kona...
Ekki næg vinnsla til að halda öllum í heilsársvinnu
📅 10.06.2026 👁️ 1
Ekki næg vinnsla til að halda öllum í heilsársvinnu
Varaformaður AFLs stéttarfélags segir uppsagnir hjá Brim á Vopnafirði hafa verið þungt högg því fyrirtækið sé stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélagin...
Sofandi á ak­braut - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Sofandi á ak­braut - Vísir
85 mál voru skráð í kerfi lögreglunnar í dag og voru tveir vistaðir í fangageymslu nú síðdegis samkvæmt dagbók lögreglu.  Meðal tilkynninga var umferð...
Trump says US will hit Iran 'hard' again today
📅 10.06.2026 👁️ 1
Trump says US will hit Iran 'hard' again today
President Donald Trump has said the US will hit Iran "hard" on Wednesday, after the two sides exchanged strikes overnight."We hit them hard yesterday ...
Þarf að borga sekt þrátt fyrir að hafa bara stoppað í tvær mínútur - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Þarf að borga sekt þrátt fyrir að hafa bara stoppað í tvær mínútur - DV
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert sé athugavert við að Bílastæðasjóður Reykjavíkur hafi lagt gjald á bifreið sem stöðvu...
Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM - Vísir
Hver og ein þeirra sem sauma kjóla í starfsteyminu valdi sér lið sem hún taldi sigurstranglegast og úr varð að sex kjólar voru saumaðir. Þeir eru í fá...
Heitavatnslaust í mið­borg í kvöld - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Heitavatnslaust í mið­borg í kvöld - Vísir
Þetta segir í tilkynningu frá Veitum. Heitavatnsleysið stafar af viðhaldi á tengingu við dælustöð í Öskjuhlíð.  Einnig má búast við þrýstingsfalli á h...
Vets advise ban on over the counter flea treatment for pets
📅 10.06.2026 👁️ 1
Vets advise ban on over the counter flea treatment for pets
Over the counter flea treatments which are used by pet owners in the UK should be banned, a panel of vets has told a parliamentary inquiry.Some enviro...
Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló
📅 10.06.2026 👁️ 2
Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló
Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verður ekki leystur úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið móður sinnar sem er alvarlega ve...
Forstjóri Kviku óskar eftir að láta af störfum
📅 10.06.2026 👁️ 2
Forstjóri Kviku óskar eftir að láta af störfum
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá bankanum. Þetta kemur f...
Flytja aftur út sökum myglu
📅 10.06.2026 👁️ 1
Flytja aftur út sökum myglu
Fiskistofa hefur beðið starfsfólk sitt að vinna heima eftir að mygla greindist á nýjan leik í húsnæði þeirra á Borgum, við Norðurslóð á Akureyri. Fisk...
Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar - Vísir
Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Hildur segist ekki geta grein...
„Erfitt að horfa á mjúka flokkinn sinn vera orðinn svona harðan“ - Eiríkur: „Sorglegt, ömurlegt og sárt“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Erfitt að horfa á mjúka flokkinn sinn vera orðinn svona harðan“ - Eiríkur: „Sorglegt, ömurlegt og sárt“ - DV
„Það var sorglegt, ömurlegt og sárt að hlusta á ýmsa þingmenn sem ég treysti og hafði trú og álit á greiða atkvæði með frumvarpi sem heimilar að börn ...
Leikkonan lýsir martröð eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu megrunarlyfi - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Leikkonan lýsir martröð eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu megrunarlyfi - DV
Leikkonan Mayim Bialik hefur greint frá alvarlegum aukaverkunum sem hún varð fyrir eftir að hafa tekið einn skammt af vinsælu GLP-1 lyfi. Hún segir re...