Uppreisnarsveitir Húta í Jemen segjast hafa skotið dróna með mikilli nákvæmni að olíuhreinsistöð við Rauðahafsströnd Sádí Arabíu í morgun.
Í yfirlýsingu segir að árásin hafi verið gerð í hefndarskyni fyrir innrás sádiarabískra hersveita í suðurhluta Jemens. Átök hafa stigmagnast frá því í júlí þegar stjórnarher Jemens gerði loftárásir á flugvöllinn í höfuðborginni Sanaa, þar sem Hútar ráða ríkjum.
Á undanförnum dögum hafa Hútar gert nokkrar árásir á Sádi Arabíu og drepið tugi stjórnarhermanna í loftárásum innanlands. Sádar hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður jemenska stjórnarherinn í baráttunni við uppreisnarmennina.