Hugsanlegur eldsvoði reyndist misheppnuð eldamennska

Slökkviliðið að störfumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu átti nokkuð erilsaman sólarhring samkvæmt Facebook-færslu þeirra í morgun.
Alls voru sjúkrabílar boðaðir í 112 verkefni og þar af voru 50 í forgangi. Verkefni fyrir dælubíla voru fjögur en eitt þeirra snérist um hugsanlegan eld. Reyndist eldurinn aðeins vera misheppnuð eldamennska.
Þá var krútti bjargað úr tré í vikunni en köttur hafði klifrað upp í tré og ekki þorað niður. Samkvæmt færslu Slökkviliðsins var kisi hálf ræfilslegur í byrjun en síðan frelsinu feginn. „Þetta er eitt af þessum verkefnum sem koma brosi á mannskapinn þrátt fyrir smá brölt,“ segir í færslu slökkviliðsins.
Mynd: Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu