Veðrið verður gott í dag og á morgun víðast hvar á landinu og vindur hægur, þökk sé hæðarhrygg sem liggur yfir landinu úr suðvestri. Austanlands verður yfirleitt bjart með hita allt að 20 stigum, en annars skýjað með köflum. Stöku skúrir og hiti á bilinu 9 til 15 stig.
Á fimmtudag hörfar hæðarhryggurinn austur fyrir land en þá verður lægð tekin að myndast suðvestur af landinu sem veldur rigningu síðdegis. Lægðin stefnir í austurátt en talsverð óvissa er um bæði dýpt hennar og feril með suðurströndinni. Hún dregur fremur kalt loft yfir landið og því má búast við því að hitatölur fari heldur lækkandi um tíma.
Á föstudag má gera ráð fyrir rigningu í flestum landshlutum og fremur ákveðnum norðaustlægum áttum, einkum norðvestan til. Á laugardag og sunnudag er útlit fyrir að það verði úrkomulítið suðvestan- og sunnantil, en áfram úrkomusamt norðan- og austanlands.