„Við fáum töskurnar með slori og öllu framan á,“ segir Ásdís Elva Kristinsdóttir, sem segir farir sínar ekki sléttar eftir ferðalag með Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar á laugardag.
Þegar Ásdís og eiginmaður hennar fengu töskur sínar afhentar að flugferð lokinni voru þær blautar og mjög illa lyktandi. Framan á þeim var eitthvað sem Ásdís heldur að hafi verið leifar af fiski.
„Þetta var viðbjóður. Við skemmdum leigubílinn,“ segir hún.
Eftir ferðalagið þurftu þau að henda tveimur af þremur töskum sínum ásamt hluta farangursins. „Þetta var ekkert sem er hægt að þrífa. Ég henti fullt af fötunum.“
Ásdís segir tjónið nokkuð þótt ekki liggi enn fyrir hve mikið það gæti verið í krónum talið.
Þau höfðu flogið til Kaupmannahafnar til að halda áfram áleiðis til Svíþjóðar og Ásdís segir að mestallur tíminn í Danmörku hafi farið í að útvega nýjar töskur fyrir ferðalagið. „Þetta var bara hræðilegt.“