Dagskrá ríkisheimsóknar Englandskonungs til Bandaríkjanna stendur óhögguð þrátt fyrir að skotárás hafi verið beint gegn Bandaríkjaforseta og ráðherrum í ríkisstjórn hans, á hátíðarkvöldverði með blaðamönnum í fyrrakvöld.
Donald Trump sagði í viðtali í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum í gærkvöld, að Hvíta húsið væri mjög öruggt og að Karl III yrði öruggur þar.
Konungurinn lendir í Washington um klukkan 15 síðdegis, um svipað leyti og Cole Tomas Allen, grunaður árásarmaður, kemur fyrir dómara í borginni og mál hans verður þingfest.
Karl og Kamilla drottning verja nokkrum dögum vestra og heimsækja meðal annars Ground Zero, minningarreit um árásirnar 11. september 2001.
Vonir breskra stjórnvalda eru að eitthvað takist að lappa upp á samband Bretlands og Bandaríkjanna. Brestir hafa komið í „sérstaka sambandið“ milli ríkjanna síðan Trump tók við sem forseti öðru sinni í janúar í fyrra, nú síðast vegna þess að Trump fannst Bretar ekki styðja Bandaríkin nægilega í stríðinu við Íran. Svo hefur Trump á síðustu dögum sagt að endurskoða þurfi mögulega tilkall Breta til Falklandseyja úti fyrir Argentínu.
Stjórnarandstöðuþingmenn í Bretlandi hafa hvatt til þess að konungurinn hætti við heimsóknina og sagt Trump ekki áreiðanlegan bandamann. Jafnvel formaður utanríkismálanefndar breska þingsins, Emily Thornberry, úr Verkamannaflokki, hefur sagst vera á nálum vegna heimsóknarinnar. Hún telur þó fáa betri í að takast á við aðstæður sem þessar en Karl III, sem fékk Trump í ríkisheimsókn til Bretlands í fyrra.
Þar var öllu til tjaldað til þess að heilla forsetann upp úr skónum. Hrifning hans á öllu því sem viðkemur bresku konungsfjölskyldunni er enda vel þekkt. Karl III verður að reyna að nýta sér það til góðs, ef heimsóknin á að skila árangri.