Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá norsku konungshöllinni sem birt var í morgun. Þar segir að Hákon krónprins og Sonja drottning hafi afboðað sig á fyrirhugaða viðburði í dagskrá sinni.
Norskir fjölmiðlar segja frá því að Sonja drottning og Hákon krónprins og eiginkona hans, Mette-Marit, séu öll stödd á Ríkissjúkrahúsinu í Osló. Þar eru einnig Ingiríður Alexandra prinsessa og Sverrir Magnús, börn Hákonar og Mette-Marit, og Ástríður, systir Haraldar konungs.
Hinn 89 ára Haraldur hefur legið inni á spítala síðan 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms. Hann hefur tekið sýklalyf vegna sjúkdómsins.
Á dögunum var greint frá því í annarri tilkynningu frá konungshöllinni að konungurinn hefði glímt við sjálfnæmisblóðleysi en það er blóðsjúkdómur þar sem líkaminn byrjar að ráðast á eigin rauðu blóðkorn og eyðileggja þau of hratt.