Heilbrigðisstarfsfólk gagnrýnir undanþágur – „Er álið orðið mikilvægara en heilsa fólks?“
Segir kerfið ganga gegn öryggi starfsfólks
Starfsmaður á krabbameins- og blóðlækningadeild Landspítalinn, sem býr á Akranesi, segir stöðuna skapa bæði hættu og álag. Hún lýsir því að eftir langar vaktir þurfi hún að keyra Hvalfjörðinn þar sem oft sé erfitt sé að halda sér vakandi.
„Það er ekki auðvelt að keyra eftir næturvaktir og halda einbeitingu. Þetta hefur bein áhrif á öryggi okkar,“ segir hún.
Hún bendir á að margir heilbrigðisstarfsmenn búi sitt hvoru megin við göngin og að núverandi fyrirkomulag hafi þegar valdið röskun á vöktum og mönnun.
Telja mismununina augljósa
Gagnrýnin beinist sérstaklega að því að starfsmenn Norðuráls fái fylgd í gegnum göngin á meðan heilbrigðisstarfsfólk þurfi að aka Hvalfjörðinn.
„Við gætum auðveldlega sýnt starfsmannaskírteini eða staðfest okkur í gegnum vinnukerfi. Ef þarf væri hægt að hafa samband við vakstjóra. Það er engin ástæða fyrir því að þetta eigi ekki við um okkur líka,“ segir hún.
Að hennar mati sendir þetta skýr skilaboð um forgangsröðun.
„Það virðist vera að álverið sé talið mikilvægara en heilsa landsmanna.“
Uppnám á vöktum og aukið álag
Samkvæmt heimildum hefur staðan þegar haft áhrif á skipulag vakta á Landspítalanum, þar sem starfsfólk á í erfiðleikum með að mæta eða þarf að leggja af stað mun fyrr en áður. Önnur heilbrigðisstarfskona, sem starfar á bráðamóttöku og býr á Akranesi, tekur undir þessa gagnrýni og segir álagið eftir næturvaktir sérstaklega erfitt.
Kalla eftir viðbrögðum stjórnvalda
Gagnrýnendur segja lítið hafa heyrst frá bæjaryfirvöldum á Akranesi eftir fyrstu viðbrögð og kalla eftir skýrari afstöðu frá bæði heilbrigðisráðherra og Alþingi.
„Við vitum öll að það þarf að halda spítölum gangandi. Spurningin er hvort það sé raunverulega forgangsmál hjá stjórnvöldum,“ segir starfsmaðurinn.
Lokun Hvalfjarðarganga, sem hófst í apríl vegna endurnýjunar á lýsingu, stendur yfir sex nætur í viku frá klukkan 21:30 til 06:00.
