Rúmlega 500 manns hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista gegn ákvörðun innviðaráðherra um að taka ferjuna Baldur úr siglingum um Breiðafjörð og færa hana til Vestmannaeyja. Þess er krafist að ákvörðuninni verði umsvifalaust breytt eða að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segi af sér.
Undirskriftasöfnunin stendur til 15. júní. Björn Samúelsson, einn af forsprökkum hennar, segir á BB.is að markmiðið sé þrjú þúsund undirskriftir, jafn margar og atkvæðin sem Flokkur fólksins fékk í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum.
Baldur siglir milli lands og Eyja fram í miðjan júní og hefur áætlunarferðir á Breiðafirði 19. júní. Ferjan Særún siglir milli Stykkishólms og Flateyjar á Breiðafirði þar til Baldur kemur aftur vestur.