Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin.
Þetta kemur fram í tilkynningu, en vinna við málefnasamning er þegar hafin.
Stefnt er að því að ljúka viðræðunum hratt og örugglega með það að markmiði að kynna málefnasamning nýs meirihluta þriðjudaginn 26. maí næstkomandi.
„Aðilar leggja áherslu á gagnkvæmt traust og trúnað á meðan á viðræðunum stendur,“ segir í tilkynningunni.
Mikið gengið á í vikunni
Greint var frá því í gær að Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði, Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingar, og Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, hefðu fundað þrjú saman og hafa þau nú ákveðið að hefja formlegar viðræður.
Fyrr í vikunni slitu sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsókn og var ástæðan sögð vera trúnaðarbrestur. Hafði Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar, þá einnig verið í samtali við Samfylkinguna og Viðreisn um mögulegan meirihluta. Sagði Hildur, oddviti Samfylkingarinnar, hann hafa leikið tveimur skjöldum. Farið hefði verið yfir skiptingu embætta og ræða málefnagrunn.
Í samtali við mbl.is sagði Valdimar það hins vegar hafa komið honum á óvart að vera sakaður um trúnaðarbrest og óheilindi. Hann hafi átt samtöl og verið í þreifingum, en aldrei formlegar viðræður.