Norska karlalandsliðið í fótbolta kom til Noregs frá Bandaríkjunum á sjötta tímanum í dag.
Þrátt fyrir að Norðmenn hafi tapað 2-1 fyrir Englandi í framlengdum leik í átta liða úrslitum á laugardagskvöld hefur árangurinn vakið mikið þjóðarstolt meðal Norðmanna. Fótboltaæði hefur gripið um sig í Noregi síðustu vikur og þegar leikmennirnir sneru heim í dag var þeim fagnað eins og þjóðhetjum.
Við komuna til Óslóar héldu leikmennirnir beint í konungshöllina þar sem Haraldur Noregskonungur og konungsfjölskyldan tóku á móti þeim.
Gríðarlegur mannfjöldi hefur safnast saman fyrir framan konungshöllina í Ósló. Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi verið mættir til að fagna landsliðinu. Þar tók Hákon krónprins þátt í hátíðarhöldunum og sló taktinn á trommur þegar leikmenn og stuðningsmenn framkvæmdu hinn svokallaða „víkingaróður“.