Haraldur Noregskonungur er látinn

Haraldur Noregskonungur er látinn

Haraldur Noregskonungur er látinn

Haraldur V. Noregskonungur er látinn á nítugasta aldursári eftir stutta sjúkdómslegu. Heilsu konungs hafði farið nokkuð hrakandi síðustu misseri og ár og hann var lagður inn á sjúkrahús til sýklameðferðar 17. ágúst.

Hann gerðist nokkuð heilsuveill þegar aldurinn færðist yfir. Hákon ríkisarfi hefur því stundum þurft að sinna konungsskyldum og verður nú konungur.

Haraldur fæddist 21. febrúar 1937 og var þjóðhöfðingi Noregs frá 17. janúar 1991 þegar hann tók við embætti við andlát föður síns, Ólafs V. Hann hefur setið konunga og drottninga lengst í Evrópu eftir að Elísabet II. Bretadrottning lést.

Haraldur var fyrsti ríkisarfinn sem fæddist í Noregi í um það bil 600 ár, á Skaugum í Asker. Móðir Haraldar, Märtha krónprinsessa, flúði með hann og systur hans til Svíþjóðar og loks til Bandaríkjanna þegar Þjóðverjar réðust inn í Noreg.

Faðir Haraldar og Hákon VII., afi hans, bjuggu í Lundúnum þar til heimsstyrjöldinni lauk. Fjölskyldan sneri aftur til Noregs í júní 1945, við mikinn fögnuð landsmanna. Við andlát Hákons VII. varð Haraldur ríkisarfi þegar Ólafur tók við krúnunni.

Haraldur konungur var af svonefndri Lukkuborgarætt sem kennd er við bæinn Glücksburg, eða Lyksborg, í Slésvík-Holstein. Ættin hefur ríkt í Danmörku frá 1863 og með hléum í Grikklandi til 1973. Hún varð konungsætt Noregs 1905.

Haraldur stundaði nám við Háskólann í Osló, norska herskólann og Balliol-háskóla í Oxford á Englandi þar sem hann nam sagnfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Hann var mikill íþróttamaður og keppti fyrir Noregs hönd í siglingum á Ólympíuleikunum 1964, 1968 og 1972. Haraldur varð heimsmeistari í siglingum 1987.

Árið 1968 gekk Haraldur ríkisarfi að eiga jafnöldru sína, Sonju Haraldsen. Ráðahagurinn vakti talsvert uppnám enda Sonja af alþýðuættum. Ólafi konungi, stjórnmálamönnum og mörgum Norðmönnum þótti það hin mesta ósvinna að tilvonandi konungur veldi slíka konu. Þau héldu sambandinu leyndu lengi vel.

Haraldur stóð fast við sinn keip og almenningsálitið snerist fljótt þeim Sonju í vil eftir níu ára bið eftir formlegu hjúskaparleyfi. Konungshjónin hafa verið afskaplega vinsæl og notið mikillar virðingar.

Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. Marta Lovísa prinsessa fæddist 1971 og Hákon krónprins 1973. Þar til Stórþingið gerði stjórnarskrárbreytingu 1990 sem tryggði algert jafnrétti til erfða gekk konungstignin aðeins milli karla. Breytingin var þó ekki afturvirk.

Haraldur valdi sér kjörorðið Allt fyrir Noreg, Alt for Norge, þegar hann tók við embætti. Hann lagði alla tíð mikið kapp á að Noregur skyldi nútímavæddur og að konungsfjölskyldan væri tengdari almenningi í landinu en áður var.

Haraldur þótti alúðlegur og hlýr konungur ef marka má fréttir af honum, með ríka kímnigáfu og framsækinn meðal annars á sviði mannréttindamála. Hann vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Hann er sagður hafa litið á það sem sitt hlutverk að hughreysta þjóðina þegar á móti blés, ekki síst eftir hryðjuverkin í Osló og Útey 2011. Haraldur heimsótti allar byggðir Noregs í valdatíð sinni og fór í fjölda heimsókna erlendis.

Hann heimsótti Ísland sem krónprins 1967 og átti stuttan fund með Ólafi Ragnari Grímssyni á leið sinni til Bandaríkjanna 2015. Hann tók einnig á móti íslenskum ráðamönnum, þar á meðal Guðna Th. Jóhannessyni forseta og Elízu Reid konu hans í opinberri heimsókn 2017. Halla Tómasdóttir hefur tvisvar farið í opinbera heimsókn til Noregs.

Þegar Margrét Þórhildur Danadrottning ákvað að segja af sér um áramótin 2024 kvaðst Haraldur alls ekki ætla að fylgja fordæmi frænku sinnar. Hann myndi sitja til æviloka og standa þannig við þann eið sem hann sór fyrir Stórþinginu 1991.

Nokkuð hefur gustað um norsku konungsfjölskylduna undanfarið sem virðist hafa dregið úr fylgi almennings við konungdæmið á mjög skömmum tíma. Sögulega séð hafa átta af hverjum tíu Norðmönnum stutt það en fylgið féll niður í sextíu af hundraði í könnun Norstat fyrir NRK fyrr á þessu ári.

Haraldur konungur sjálfur fékk hins vegar einkunnina 9,2, Sonja drottning 8,6 og Hákon ríkisarfi 7,9. Hins vegar hlaut Mette Marit eiginkona hans einkunnina 3,7, helmingi lægri en hún fékk áður en ljóstrað var upp um tengsl hennar og fundi með bandaríska kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein.

Sonur Mette Marit, Marius Borg Høiby, hefur einnig valdið almenningi uppnámi vegna lögreglurannsóknar og dómsmála vegna alvarlegra ofbeldismála. Einnig hefur gustað um prinsessuna Mörtu Lovísu vegna hjónabands hennar við Bandaríkjamanninn Durek Verrett, sem kallar sig seiðskratta.

Greinendur segja að Haraldur og Sonja hafi ávallt staðið sem óbugandi klettar í þessum brimskafli hneykslismála og haldið virðingu konungsfjölskyldunnar.

Stjórnmálamenn í Noregi hafa kallað hjónin sameiningartákn í brotthættri veröld, sem hefðu gegnt mikilvægu hlutverki á erfiðum tímum. Nú þegar Haraldur er allur og Hákon tekur við sem Noregskonungur má velta fyrir sér viðbrögðum við því að Mette Marit verði drottning.

Ákveðið ferli fer í gang þegar konungur deyr, til dæmis er almenningi og fjölmiðlum ekki tilkynnt andlátið umsvifalaust.

Áður en það er gert skal öll nánasta fjölskylda látin vita. Forvígismenn ríkisstjórnar, forsætisráðherra og lykilstarfsmenn hirðarinnar eru upplýstir á undan almenningi og þá gildir einu á hvaða tíma sólarhrings konungur andast.

Formlega séð varð Hákon konungur á sama augnabliki og Haraldur andaðist enda þarf að viðhalda stjórnskipulegri samfellu; Noregur má ekki verða án þjóðhöfðingja. Hákon tekur sér konungsnafn, sennilega Hákon VIII., og Ingiríður Alexandra verður ríkisarfi.

Hann tilkynnir ríkisstjórninni andlát föður síns formlega og konungsnafnið á ríkisráðsfundi sem halda þarf umsvifalaust. Samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar þarf nýr konungur að sverja eið fyrir Stórþinginu um að stýra ríkinu í samræmi við stjórnarskrá og lög þess.

Hefðbundin krýning var afnumin í Noregi snemma á 20. öld en nýr konungur og drottning verða blessuð í Niðarósdómkirkju í Þrándheimi nokkrum mánuðum eftir valdatökuna. Hákon hefur einnig það hlutverk að skipuleggja opinbert sorgarferli eftir andlát Haraldar og hann ber einnig ábyrgð á ríkisútför föður síns.

#haraldur #látinn #noregskonungur


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-28-haraldur-noregskonungur-er-latinn-484776

📰 Aðrar fréttir

Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“
Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir greindist með æxli í hnénu, en síðar komu í ljós meinvörp um allan fót og þurfti að fjarlægja hann fyrir ofan hné. Hún hvetu...
Landsliðsmarkmaður orðinn húsgagnaframleiðandi á Akureyri
📅 12.10.2026 👁️ 1
Landsliðsmarkmaður orðinn húsgagnaframleiðandi á Akureyri
„Þegar ég var atvinnumaður í handbolta í Danmörku hafði ég óþarflega mikinn frítíma. Við bjuggum í húsi með stórum garði og garðurinn var tómur. Ég fó...
Bein út­sending: Ár­leg friðarráð­stefna Höfða friðar­seturs - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Ár­leg friðarráð­stefna Höfða friðar­seturs - Vísir
Í tilkynningu segir að í tilefni þess að í ár séu 40 ár liðin frá hinum sögulega leiðtogafundi í Höfða verði litið til fortíðar og rætt hvaða lærdóm m...
Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna sendir Bjarna Ben tóninn: „Þessu fylgja afleiðingar“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hafi þurrkað út það traust sem hafi orð...
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
📅 12.10.2026 👁️ 1
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands seg­ist hafa feng­ið skýra stað­fest­ingu á ...
Sólveig Anna segir traustið algjörlega horfið eftir komu Bjarna
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sólveig Anna segir traustið algjörlega horfið eftir komu Bjarna
Traustið milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er algjörlega horfið, segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Hún rekur það til starfa Bja...
Sólveig Anna segir Bjarna hafa eytt traustinu – „Þessu fylgja afleiðingar“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sólveig Anna segir Bjarna hafa eytt traustinu – „Þessu fylgja afleiðingar“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, hafa eytt traustinu sem byggðist upp m...
Sektaður fyrir að geyma lík for­eldranna í frysti í ára­tugi - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sektaður fyrir að geyma lík for­eldranna í frysti í ára­tugi - Vísir
Líkin geymdu bræðurnir í frystikistum í skúr í Turku í suðvestanverðu Finnlandi. Foreldrarnir létust af náttúrulegum orsökum um miðjan tíunda áratugin...
Sinn Féin ministers facing no-confidence vote after Drumcree dispute
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sinn Féin ministers facing no-confidence vote after Drumcree dispute
The motion against Michelle O'Neill and three other Sinn Féin ministers will be debated after receiving the backing of unionist parties last week.
Nýjar tilkynningar og vísbendingar vegna skemmda á bílum
📅 12.10.2026 👁️ 1
Nýjar tilkynningar og vísbendingar vegna skemmda á bílum
Lögreglu hafa borist nýjar tilkynningar í morgun um að bílar hafi verið rispaðir. Þessu greindi Guðmundur Pétur Guðmundsson lögreglufulltrúi frá í Mor...
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
📅 12.10.2026 👁️ 2
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu
Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabit...
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“
Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þæt...
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
📅 12.10.2026 👁️ 2
Russell Brand arrives at court for start of rape trial
The 51-year-old actor and comedian denies charges of rape and sexual assault against six women.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
📅 12.10.2026 👁️ 2
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans
Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri he...
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka 
lækna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna - Vísir
Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks s...
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
📅 12.10.2026 👁️ 2
Dómari bannar Trump að nota skattfé í auglýsingar sínar
Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með...
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Þrettán þúsund hafa skrifað undir - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökum sem stóðu fyrir mótmælum gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði í gær. Fjöldi fólks kom saman til að...
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn - Vísir
Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægi...
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
📅 12.10.2026 👁️ 2
Áður ákærður fyrir að stinga tvo drengi – Stakk svo tveggja ára stúlku í andlitið þegar honum var sleppt
Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fék...
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
📅 12.10.2026 👁️ 2
What's Open in the Canary Islands Today? Bank Holiday Shopping Guide
Residents and holidaymakers across the Canary Islands face changes to supermarket, shopping centre and public service opening hours today, Monday 12th...
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 3
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 3
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 3
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 3
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 3
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 4
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 4
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 4
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 4
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 4
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 4
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 4
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 3
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...