„Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi - Vísir

„Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi - Vísir

„Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi - Vísir

Í upphafi þáttarins hrósaði Ásdís sigri yfir afrekum bæjarstjórnar á kjörtímabilinu sem hún segir meðal annars felast í ánægju bæjarbúa með snjómokstur, þjónustu gagnvart barnafjölskyldum og eldri borgurum, íþróttastarf og menningu.

Hitnaði fljótt í kolum

Þegar hún vatt sér að ávinningi af rekstri bæjarins í formi bættrar þjónustu og lægri fasteignagjalda gerði Jónas Már atlögu að orðinu. 

„Ég verð að fá að leiðrétta því hún er að segja ósatt,“ segir hann og fær þau svör frá Kristjáni þáttarstjórnanda að hann komist senn að.

„Mér finnst þetta svo vondur ávani hjá Jónasi. Hann grípur alltaf fram í fyrir mér. Ég leyfi þér að tala, leyfð þú þá mér að tala,“ segir Ásdís. 

Jónas Már gerir aðra atlögu að orðinu meðan Ásdís vindur sér að fasteignagjöldum í Kópavogi, sem séu þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

Jónas Már segir að ýmislegt megi gera betur í bænum og nefnir sömuleiðis málefni barna og eldri borgara.

Hann segir barnafólk í Kópavogi greiða hæstu leikskólagjöld á landinu. Kópavogsbúar greiði hundruðum þúsunda meira en til dæmis Mosfellingar, þar sem Samfylkingin er í meirihluta, fyrir sambærilega leikskólaþjónustu. 

„Barnafólk er að flytja úr bænum og skyldi það nú vera að það sé vegna þess að það er sífellt verið að velta kostnaði yfir á þessar barnafjölskyldur?“

Segir Samfylkingu ætla að innleiða Reykjavíkurmódel

Ásdís grípur inn í og segir Jónas Má boða Reykjavíkurleiðina í leikskólamálum, sem hann skýtur inn í að sé ósatt.

„Það sem er verið að boða er að þá mun lokunardögum fjölga. Lokunardagar í Reykjavík hafa snert á 70% barna í Reykjavík á meðan þeir hafa ekki snert á neinum í Kópavogsmódelinu hjá okkur. Við erum líka með fullmannaða leikskóla og við erum að bjóða börnum leikskólavist frá tólf mánaða aldri. 

Hér er Samfylkingin að segja að við séum með hæstu leikskólagjöld á landinu. Á meðan þetta er jafnaðarmannaflokkur þá myndi ég nú halda að Samfylkingin myndi nú horfa til þess að við erum með mjög rúma afslætti,“ segir Ásdís og nefnir meðal annars að þriðjungur foreldra í Kópavogi nýti sér gjaldfrjálsa leikskólavist.

Jónas Már segir sífellt reynt að draga upp þrumuskýjamynd af Reykjavíkurmódelinu en það sé ekki ætlun Samfylkingarinnar að innleiða Reykjavíkurmódelið.

„Við erum í Kópavogi, við erum að reyna að takast á við áskoranirnar sem eru í Kópavogi og þar er það staðreynd að fólk borgar miklu hærri leikskólagjöld en víðast hvar annars staðar, jafnvel þar sem er verið að veita þjónustu til tólf mánaða. Við viljum bara mæta fólki þar sem það er erfiðast. Við erum að tala um 100 prósent systkinaafslátt. Það hefur ekki áhrif á mönnun,“ segir Jónas Már.

Sjálfstæðisflokkur vanræki lögbundin verkefni

Þá nefnir hann þjónustu við fatlaða sem einkennist af löngum biðlistum. Einungis sé verið að veita þeim þjónustu sem eru í fyrsta af þremur flokkum við mat á stuðningsþörf.

„Það er verið að vanrækja hérna lögbundin verkefni af því að foreldrarnir geta bara sinnt þeim,“ segir Jónas Már en Ásdís skýtur inn í að hann hafi ekki rétt fyrir sér.

„Þetta er bara nýupptekið, upp úr minnisblaði sem er bara nýbirt frá velferðarsjóði Kópavogsbæjar. Staðan er samt sem áður sú að það er ekki verið að veita sérþjónustu. Þetta er lögbundin þjónusta og ég á erfitt með að gefa stig fyrir það að hrósa sér fyrir góðan rekstur þegar lögbundin verkefni eru vanrækt,“ segir Jónas Már.

Sófinn seldur til að fjármagna PlayStation

Þá bendir hann á að rekstur bæjarins sé fyrst og fremst fjármagnaður af einskiptistekjum af lóðum, sem Ásdís skýtur enn og aftur inn í að sé rangt.

„Það er verið að fjárfesta umfram þessar tölur. Það er verið að selja lóðir á Vatnsendanum til þess að fjárfesta fyrir hitt og þetta. 

Það er verið að selja sófann úr íbúðinni til þess að kaupa sér PlayStation í staðinn fyrir að kaupa í matinn eða borga reikninga. Og það er bara ekki ábyrgur rekstur.

segir Jónas Már.

Kristján stillti til friðar

Ásdís segir dapurlegt að hlusta á orð Jónasar þegar forgangsröðunin hafi fyrst og fremst snúið að velferðarmálum á kjörtímabilinu. Hún segir bæjarstjórn hafa aukið útgjöld til velferðarmála um 36 prósent á kjörtímabilinu.

„Er það mikið eða lítið? Til annarra málaflokka hefur þetta verið undir 10 prósent. Þannig að það er rangt að halda því fram að við höfum ekki sett þessi mál á oddinn,“ segir Ásdís.

„Það er hægt að gera betur,“ skýtur Jónas Már inn í.

„Þú getur þá rætt það við Samfylkinguna sem er við völd hér vegna þess að þessi málaflokkur er vanfjármagnaður af hálfu ríkisins,“ segir Ásdís.

Þá vindur hún sér að ársreikningi bæjarins fyrir síðasta ár sem hún segir bestu afkomu Kópavogsbæjar í átján ár. Skuldir hafi sömuleiðis lækkað á kjörtímabilinu, skuldahlutfall farið úr 86% í 68 prósent.

„Veistu hvernig það er gert?“ spyr Ásdís og heldur áfram:

„Það er gert með því að hagræða á hverju einasta ári. Við erum búin að, ég er búin að lækka laun bæjarstjóra. Ég er búin að lækka laun bæjarfulltrúa.“

„Þetta er rangt. Þetta er lygi,“ segir Jónas Már.

„Vitið þið hvað, þetta er ekki hægt,“ segir Ásdís. „Ég er búin að sameina stofnanir...“

„Hvað lækkuðu launin þín mikið, Ásdís?“ skýtur Jónas Már inn í.

„Kristján, finnst þér þetta í lagi?“ segir Ásdís.

„Þið verðið að sýna hvort öðru kurteisi,“ segir Kristján þáttastjórnandi.

„Ég er búin að fækka pólitískum nefndum á fundum. Ég er búin að fækka stöðugildum í stjórnsýslunni. Þetta telur allt en þetta hefur ekki haft áhrif á þjónustu gagnvart bæjarbúum. Það skiptir nefnilega máli þegar verið er að standa vörð um góðan rekstur að vera ekki alltaf statt og stöðugt að auka þjónustuna, bæta í.“

#alltaf #fram #grípur #hann #oddvitar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262874346d/-hann-gripur-alltaf-fram-i-oddvitar-bednir-um-ad-syna-hvor-odrum-kurteisi

📰 Aðrar fréttir

Opnar sig um gróf um­mæli um hjóna­bandið - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
Opnar sig um gróf um­mæli um hjóna­bandið - Vísir
„Þessi manneskja ásamt eiginkonu sinni verður hengd á Austurvelli von bráðar fyrir landráð og andlegt og kynferðislegt ofbeldi gagnvart saklausum skól...
Ari þiggur stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur
📅 10.06.2026 👁️ 0
Ari þiggur stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Þessu greinir hann ...
US launches new strikes on Iran after Trump vows to hit 'hard'
📅 10.06.2026 👁️ 0
US launches new strikes on Iran after Trump vows to hit 'hard'
The US military has launched new strikes on Iran after President Donald Trump said US forces would hit the country "hard" after both sides exchanged f...
Ari þiggur stjórnarformennsku í OR – „Ég hlakka til samstarfsins“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 0
Ari þiggur stjórnarformennsku í OR – „Ég hlakka til samstarfsins“ - DV
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, hefur ákveðið að þiggja boð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að taka að sér stjórnarfo...
Watch: Fireworks illuminate Barcelona's Sagrada Família during Pope Leo visit
📅 10.06.2026 👁️ 0
Watch: Fireworks illuminate Barcelona's Sagrada Família during Pope Leo visit
Pope Leo XIV says Barcelona's iconic Sagrada Família is a masterpiece of "stones, colours and light" during his visit to Spain.
Ari þiggur stöðu stjórnar­for­manns - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
Ari þiggur stöðu stjórnar­for­manns - Vísir
Þetta tilkynnir hann í færslu á Facebook. „Það vakti athygli er nýr meirihluti D, C og B var myndaður í borgarstjórn 27. maí, að borgarstjóri sagðist ...
Samkeppnin eigi á brattann að sækja í litlu hagkerfi
📅 10.06.2026 👁️ 0
Samkeppnin eigi á brattann að sækja í litlu hagkerfi
Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem birt var í...
„Stað­reynd að matarkarfan mun lækka í verði“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
„Stað­reynd að matarkarfan mun lækka í verði“ - Vísir
„Vextir húsnæðislána á Íslandi eru níu til tíu prósent á meðan þeir eru þrjú til fjögur prósent á evrusvæðinu,“ sagði Pawel í eldhúsdagsumræðum sem fr...
NASA mun fylgjast með ís­lenska himin­hvolfinu - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 0
NASA mun fylgjast með ís­lenska himin­hvolfinu - Vísir
Þegar klukkan mun nálgast sex að kvöldi þann 12. ágúst næstkomandi mun athygli flestra á Íslandi beinast að almyrkvanum, sem er sá fyrsti sem er sjáan...
Um fjörutíu vísindamenn NASA væntanlegir til landsins
📅 10.06.2026 👁️ 1
Um fjörutíu vísindamenn NASA væntanlegir til landsins
Hátt í fjörutíu vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, koma hingað til lands í ágúst til að rannsaka áhrif almyrkva á sólu á andrúmslof...
Árásarmaðurinn í Belfast ákærður fyrir tilraun til manndráps – miklar óeirðir hafa brotist út í Írlandi
📅 10.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Belfast ákærður fyrir tilraun til manndráps – miklar óeirðir hafa brotist út í Írlandi
Árásarmaðurinn í Belfast ákærður fyrir tilraun til manndráps – miklar óeirðir hafa brotist út í Írlandi Fréttin10. júní 2026ErlentLeave a Comment Þrít...
„Er eitt­hvað til sem heitir Ís­lendingur?“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Er eitt­hvað til sem heitir Ís­lendingur?“ - Vísir
Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld og tók Snorri til máls fyrir hönd Miðflokksins í fyrri umferð umræðanna. Hann byrjaði á því að hrósa Kri...
Sakar ráð­herra um alræðistilburði í nafni mann­réttinda - Vísir

Vísbending um að lögreglumenn á Akureyri hafi beitt harðræði - Hné fór í háls á 17. júní - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Vísbending um að lögreglumenn á Akureyri hafi beitt harðræði - Hné fór í háls á 17. júní - DV
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur komist að þeirri niðurstöðu að mögulega hafi lögregla beitt harðræði og að lögreglumaður hafi gerst sekur um refi...
„Ríkis­stjórnin getur ekki flúið eigin vand­ræði inn í Evrópu­sam­bandið“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Ríkis­stjórnin getur ekki flúið eigin vand­ræði inn í Evrópu­sam­bandið“ - Vísir
„Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið,“ sagði Guðrún sem skaut föstum skotum að ríkisstjórninni. „Þegar ríkisstjórnin s...
Óeirðir annað kvöldið í röð
📅 10.06.2026 👁️ 1
Óeirðir annað kvöldið í röð
Óspektir halda áfram í Norður-Írlandi vegna hnífaárásar á mánudagskvöld. Um 200 söfnuðust saman í Newtonabbey þar sem fólk sást henda hlutum í átt að ...
Hvað veistu um… árið 2010? - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Hvað veistu um… árið 2010? - Vísir
Efnahagslífið var enn að jafna sig eftir fjármálakreppuna sem hófst árið 2008 og samfélagsmiðlar urðu sífellt mikilvægari í samskiptum fólks. En hvað ...
„Það má herma“ - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Það má herma“ - Vísir
Uppáhalds flík Ásthildar er í eigu Sóldaggar kærustu hennar og á undanförnum árum hefur Ásthildur þorað að fara meira út fyrir kassann í fatavali. Ást...
Bill Gates says Epstein wanted a personal relationship but he 'never reciprocated'
📅 10.06.2026 👁️ 2
Bill Gates says Epstein wanted a personal relationship but he 'never reciprocated'
Billionaire Bill Gates told a congressional committee on Wednesday that he never had a personal relationship with Jeffrey Epstein, and cut ties with t...
Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“ - DV
Hann Adam Jones hefur fyrir svo margt að lifa með konunni sinni, Gyðju Kolbrúnu Jones. Ekki síst er hann glaður yfir að verða afi og litla barnbarnið,...
Essex Police given new David Sullivan information
📅 10.06.2026 👁️ 2
Essex Police given new David Sullivan information
Police have been contacted with new information about David Sullivan following a BBC Panorama and Times investigation into the West Ham co-owner.Essex...
Eldhúsdagsumræður – Viðræður um þinglok ganga hægt
📅 10.06.2026 👁️ 2
Eldhúsdagsumræður – Viðræður um þinglok ganga hægt
Jóhann Páll Jóhannsson segir að ríkisstjórnin ætli ekki að hvika frá stefnu um hallalaus fjárlög árið 2027. „Meðalið er ábyrgur ríkisrekstur eftir ára...
Eldhúsdagsumræður – ESB og efnahagsmálin í brennidepli
📅 10.06.2026 👁️ 2
Eldhúsdagsumræður – ESB og efnahagsmálin í brennidepli
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, segir ríkisstjórnina hafa stuðlað að versnandi efnahagsástandi og ekki staðið við loforð um að lækka vex...
Tyggjóklessubaninn söðlar um og ræðst á veggjakrot
📅 10.06.2026 👁️ 1
Tyggjóklessubaninn söðlar um og ræðst á veggjakrot
Guðjón Óskarsson, tyggjóklessubaninn, hefur bætt um betur og hreinsar nú einnig krot af veggjum miðborgarinnar. Listaverk sem hann lét vinna á útkrota...
ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla reynir á styrk fjölmiðla segir fyrrverandi utanríkisráðherra
📅 10.06.2026 👁️ 2
ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla reynir á styrk fjölmiðla segir fyrrverandi utanríkisráðherra
Alþingi hefur samþykkt að þjóðaratkvæðagreiðsla verði hér á landi laugardaginn 29. ágúst um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.Stæ...
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Al­þingi - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Al­þingi - Vísir
Eldhúsdagsumræður fara venju samkvæmt fram undir lok þingvetrar og halda þingmenn úr öllum flokkum ræður. Samkvæmt starfsáætlun verður þingi slitið á ...
20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík - Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB - „Lífið líka fullt af áskorunum“ - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík - Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB - „Lífið líka fullt af áskorunum“ - DV
Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir kynntust fyrst í borgarstjórn fyrir 20 árum, Segjast þær hafa átt gott samstarf, þrátt fyrir að v...
Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun
📅 10.06.2026 👁️ 1
Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun
Hvammsvirkjun verður gangsett árið 2030 gangi allt eftir, segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli landeigenda sem...
World Cup expected to be the biggest betting event in history
📅 10.06.2026 👁️ 1
World Cup expected to be the biggest betting event in history
The Fifa Men's World Cup is set to be the biggest betting event of all time, with more than $50bn (37.4bn) in wagers placed globally. The tournament w...
„Það skortir enn úrræði fyrir börnin sem eru í mestum vanda“
📅 10.06.2026 👁️ 2
„Það skortir enn úrræði fyrir börnin sem eru í mestum vanda“
Ríkisendurskoðandi skilaði í morgun stjórnsýsluúttekt á innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Málið var rætt á...
Stur­laugur nýr bæjar­stjóri Akranessbæjar - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Stur­laugur nýr bæjar­stjóri Akranessbæjar - Vísir
Sturlaugur er fæddur og uppalinn á Akranesi en hefur að mestu búið í Bretlandi síðustu tvo áratugi. Hann lék á árum með knattspyrnuliði ÍA, fagnaði fj...
Whale graveyard dating back five million years discovered
📅 10.06.2026 👁️ 1
Whale graveyard dating back five million years discovered
An enormous whale graveyard around 1,200km (745 miles) long has been discovered in the south-eastern Indian Ocean.The site, which is 7km (four miles) ...
Sturlaugur ráðinn bæjarstjóri á Akranesi
📅 10.06.2026 👁️ 2
Sturlaugur ráðinn bæjarstjóri á Akranesi
Ný bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að ráða Sturlaug Haraldsson sem bæjarstjóra. Hann hefur formlega störf 19. ágúst.Sturlaugur hefur star...
Evrópu­met í matvöruhækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Evrópu­met í matvöruhækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir
Rússar virðast byggja upp hernaðargetu sína nálægt landamærum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Sameiginleg rannsókn norrænna ríkisfjölmiðla og e...
Evrópu­met í verð­hækkunum og víg­búnaðar­kapp­hlaup - Vísir

Krónan léleg til að varðveita verðmæti og verðtrygging býr til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Krónan léleg til að varðveita verðmæti og verðtrygging býr til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar verðbólgu - DV
Íslenska krónan hefur reynst lélegt tæki til að varðveita verðmæti og víðtæk notkun verðtryggingar hefur búið til sjálfvirkt gangvirki til hækkunar ve...
Fangi á Litla-Hrauni ekki sáttur - Ófullnægjandi eldhús og vanstilltar sturtur - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Fangi á Litla-Hrauni ekki sáttur - Ófullnægjandi eldhús og vanstilltar sturtur - DV
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun fanga á Litla-Hrauni yfir aðbúnaði í fangelsinu. Var hann ósáttur við aðbúnað í eldhúsinu á s...
Changing visa rules for care workers is wrong, says Rayner
📅 10.06.2026 👁️ 2
Changing visa rules for care workers is wrong, says Rayner
Former Deputy Prime Minister Angela Rayner has said changing visa rules for migrants already living in the UK would be "the wrong thing to do", repeat...
Mál Steinu fer fyrir Hæsta­rétt - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 3
Mál Steinu fer fyrir Hæsta­rétt - Vísir
Steina var ákærð fyrir að hafa banað sjúklingi á geðdeild Landspítala árið 2021 með því að hella næringardrykk upp í munn hans. Sjúklingurinn var kona...
Ekki næg vinnsla til að halda öllum í heilsársvinnu
📅 10.06.2026 👁️ 1
Ekki næg vinnsla til að halda öllum í heilsársvinnu
Varaformaður AFLs stéttarfélags segir uppsagnir hjá Brim á Vopnafirði hafa verið þungt högg því fyrirtækið sé stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélagin...
Sofandi á ak­braut - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Sofandi á ak­braut - Vísir
85 mál voru skráð í kerfi lögreglunnar í dag og voru tveir vistaðir í fangageymslu nú síðdegis samkvæmt dagbók lögreglu.  Meðal tilkynninga var umferð...
Trump says US will hit Iran 'hard' again today
📅 10.06.2026 👁️ 1
Trump says US will hit Iran 'hard' again today
President Donald Trump has said the US will hit Iran "hard" on Wednesday, after the two sides exchanged strikes overnight."We hit them hard yesterday ...
Þarf að borga sekt þrátt fyrir að hafa bara stoppað í tvær mínútur - DV
📅 10.06.2026 👁️ 2
Þarf að borga sekt þrátt fyrir að hafa bara stoppað í tvær mínútur - DV
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekkert sé athugavert við að Bílastæðasjóður Reykjavíkur hafi lagt gjald á bifreið sem stöðvu...
Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM - Vísir
Hver og ein þeirra sem sauma kjóla í starfsteyminu valdi sér lið sem hún taldi sigurstranglegast og úr varð að sex kjólar voru saumaðir. Þeir eru í fá...
Heitavatnslaust í mið­borg í kvöld - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 2
Heitavatnslaust í mið­borg í kvöld - Vísir
Þetta segir í tilkynningu frá Veitum. Heitavatnsleysið stafar af viðhaldi á tengingu við dælustöð í Öskjuhlíð.  Einnig má búast við þrýstingsfalli á h...
Vets advise ban on over the counter flea treatment for pets
📅 10.06.2026 👁️ 1
Vets advise ban on over the counter flea treatment for pets
Over the counter flea treatments which are used by pet owners in the UK should be banned, a panel of vets has told a parliamentary inquiry.Some enviro...
Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló
📅 10.06.2026 👁️ 2
Høiby fær ekki að vera með veikri móður sinni segir áfrýjunardómstóll í Osló
Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, verður ekki leystur úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið móður sinnar sem er alvarlega ve...
Forstjóri Kviku óskar eftir að láta af störfum
📅 10.06.2026 👁️ 2
Forstjóri Kviku óskar eftir að láta af störfum
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá bankanum. Þetta kemur f...
Flytja aftur út sökum myglu
📅 10.06.2026 👁️ 1
Flytja aftur út sökum myglu
Fiskistofa hefur beðið starfsfólk sitt að vinna heima eftir að mygla greindist á nýjan leik í húsnæði þeirra á Borgum, við Norðurslóð á Akureyri. Fisk...
Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar - Vísir
📅 10.06.2026 👁️ 1
Enn bólar ekkert á fleiri á­kærum vegna net­verslunar - Vísir
Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Hildur segist ekki geta grein...