Sigrún Kristín Jónsdóttir, lögreglufulltrúi á lögreglustöðinni í Kópavogi, segir vegfarendur hafa gert lögreglu viðvart um konu vopnaða hnífi.
Vegna þess að konan var vopnuð var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til. Konan hafi verið í annarlegu ástandi og undir áhrifum vímuefna og ekki sýnt mótþróa við lögreglu þegar hún var handtekin. Hún gistir nú á lögreglustöð þar til rennur af henni að sögn Sigrúnar.
Veistu meira? Áttu myndir eða myndbönd af vettvangi? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira? Áttu myndir eða myndbönd af vettvangi? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.