Handtekinn við heimkomu á Keflavíkurflugvelli: Vara sem fjölmargir ferðast með talin grunsamleg - DV

Handtekinn við heimkomu á Keflavíkurflugvelli: Vara sem fjölmargir ferðast með talin grunsamleg - DV

Handtekinn við heimkomu á Keflavíkurflugvelli: Vara sem fjölmargir ferðast með talin grunsamleg - DV

Damian Andrzejewski, sem flutti hingað til lands fyrir ári síðan, var handtekinn á Keflavíkurflugvelli eftir sólarhringsferð til Póllands. Ástæðan var að hans sögn líklega útlit hans, auk þess sem tollvörðum fannst ferðakoddi sem hann keypti á vellinum og var með um hálsinn grunsamlegur og töldu þeir Damian vera að flytja fíkniefni til landsins.

Í samtali við DV segir Damian kíminn að það að vera handtekinn á flugvellinum sé ein leið til að fá athygli. Hann var beðinn afsökunar og látinn laus eftir þrjár klukkustundir og segist ekki ætla lengra með málið.

Damian flutti fyrst til Íslands fyrir um 12 árum. „Fyrir um fimm árum fór ég aftur til Póllands, reyndi að byggja upp eitthvað þar og mistókst. Oftar en einu sinni. Ég átti nokkra veitingastaði, fór á hausinn, tapaði eiginlega öllu,“ segir Damian hreinskilinn aðspurður um af hverju hann hefur valið að búa á Íslandi.

Þurfti til Póllands að ganga frá málum vegna gjaldþrota fyrirtækis

Ástæða ferðarinnar til Póllands var sú að hann þurfti að fara og ganga frá málum vegna gjaldþrotamáls hans þar.

„Ég þurfti að takast á við mikilvægt mál sem tengdist gjaldþroti fyrirtækisins míns í Póllandi, svo ég flaug út, tókst á við það og kom beint til baka. Ég var stressaður í marga daga vegna málsins áður en ég flaug út.“

Damian flaug til Póllands á sunnudagskvöldi og eftir nær 30 klukkutíma ferðalag, þrjár flugvélar og millilendingu í öðru landi, lenti hann aftur heima á Keflavíkurflugvelli. Þar var hann stöðvaður af tollgæslunni.

Aðspurður um af hverju hann var stöðvaður á vellinum við komuna hingað til lands segir Damian að hann haldi að hann hafi bara litið út eins og „fullkominn sökudólgur“ (e. Perfect Suspect.)

„Hávaxinn, húðflúraður, úrvinda, pólskur. Flýg út og tilbaka innan sólarhrings, enginn farangur, bara lítil taska. Ef þú skrifaðir þetta atvik sem kvikmyndahandrit, þá myndirðu nú þegar vita hvernig það endar.“

Það var þó ekki bara útlit hans sem vakti athygli við komuna til landsins og varð til þess að hann var handtekinn.

„Það kom í ljós að ferðakoddinn sem ég átti gaf sömu niðurstöðu og það sem þeir voru að athuga. Svo var ég settur í líkamsleit og sagt að ég væri handtekinn, grunaður um að hafa flutt fíkniefni til Íslands. Jafnvel þótt engin fíkniefni fyndust. Bara þessi niðurstaða úr prófi á kodda.“

Damian og ferðakoddinn sem vakti grunsemdir tollgæslunnar

Damian var enn með kvittun fyrir kaupunum á ferðakoddanum, sem betur fer segir hann.

„Eftir að hafa talað við mig, komu þeir með annan kodda frá flugvellinum til að prófa hann og hann sýndi nákvæmlega sömu niðurstöðu. Þá báðust þeir afsökunar. Ég ætla ekki að fara lengra með þetta. Ég vildi bara fara heim og fara aftur í bakaríið mitt.“

Damian gekk því út af Keflavíkurflugvelli að verða tvö um nóttina gjörsamlega búinn á því.

Damian segir að sannleikurinn sé sá að þetta hefði getað farið allt öðruvísi. Ef að atvikið hefði átt sér stað í öðru landi væri hann mögulega ekki til staðar til að segja sögu sína.

„Ef þetta hefði gerst í öðru landi held ég að ég væri ekki hérna að segja sögu mína. Ég sæti líklega í herbergi í marga klukkutíma, eða verra, og að reyna að sanna eitthvað sem ég gerði ekki einu sinni. Og það er sá hluti sem mér finnst ekki alveg í lagi. Vegna þess að ekkert við þetta var eitthvað sem ég bar ábyrgð á. Ein handahófskennd vara. Ein prófun. Eitt skipti. Og skyndilega ertu grunaður um glæp. Þetta ætti ekki að vera hægt,“ segir Damian.

„Ég vona bara að eitthvað hafi verið gert í þessum kodda, svo þetta gerist ekki einhvern tíma aftur, annars staðar, þar sem slíkt atvik sem þetta endar ekki með afsökunarbeiðni.“

Finnst Ísland vera heima og vonast til að ná íslenskunni einn daginn

Damian segir aðspurður að honum líki vel að búa á Íslandi og finnst landið meira heimili hans en aðrir staðir sem hann hefur búið á. Ekki vegna þess að það sé auðvelt að búa hér, þvert á móti.

Heldur vegna þess að hér getur hann loksins gert hlutina með sínum eigin hætti og fólk virðir það.

„Fyrir ári síðan kom ég aftur til Íslands og byrjaði frá grunni. Núna rek ég lítið bakarí á landsbyggðinni, á Flúðum. Á hverjum morgni baka ég brauð og sætar bollur fyrir heimamenn og fólk sem dvelur í sumarhúsum í nágrenninu. Ég geri líka mínar eigin vörur úr hráefnum úr héraði eins og pestó, súrum gúrkum og jarðarberjasultu. Þetta er einföld vinna, en hún er alvöru vinna. Og fólkið hérna kann virkilega að meta gæði, sem var ekki alltaf mín reynsla þegar ég starfaði í Póllandi.“

„Ég elska náttúruna, fólkið, kyrrðina, jafnvel ringulreiðina stundum. Það sem fer alveg með mig enn þá er tungumálið. Ég skil mikið, en að tala íslensku er erfitt. Einn daginn mun ég ná henni,“ segir Damian brosandi.

#fjölmargir #grunsamleg #handtekinn #heimkomu #keflavíkurflugvelli


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/22/handtekinn-vid-heimkomu-a-keflavikurflugvelli-vara-sem-fjolmargir-ferdast-med-talin-grunsamleg/

📰 Aðrar fréttir

„Ég elska verðbólgu…“
📅 11.06.2026 👁️ 0
„Ég elska verðbólgu…“
Í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 var fjallað um klípuna sem Trump hefur komið sér í þar sem hvorki gengur né rekur að fá Írani til að semja u...
Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar - Vísir
Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki sagt til um það hvers eðlis hótunin var. Það ...
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag
📅 11.06.2026 👁️ 0
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag Fréttin11. júní 2026InnlendarLeave a Comment Ivan Nicolai Kaufmann. Ivan Nicolai Ka...
Gerði alvarlega atlögu að tveimur mönnum með hnífi á Mónakó
📅 11.06.2026 👁️ 0
Gerði alvarlega atlögu að tveimur mönnum með hnífi á Mónakó
Lögreglan handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um að hafa stungið tvo með hnífi í spilasalnum Mónakó.Þetta staðfestir Guðmundur Ásgeirsson lögreglu...
Cramlington crash police officer, 19, dies in hospital
📅 11.06.2026 👁️ 0
Cramlington crash police officer, 19, dies in hospital
A 19-year-old police officer hurt in a crash while responding to a report of a separate collision has died of her injuries.Northumbria Police said Jes...
Segir af sér vegna fjárskorts í varnarmálum
📅 11.06.2026 👁️ 0
Segir af sér vegna fjárskorts í varnarmálum
John Healey sagði í dag af sér sem varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir að auknar fjárveitingar þurfi til að byggja upp hernaðargetu breska hersin...
Vara við minni hagvexti og vaxandi verðbólgu
📅 11.06.2026 👁️ 0
Vara við minni hagvexti og vaxandi verðbólgu
Stjórnvöld hafa hert taumhald í hagstjórn með viðeigandi hætti til að bregðast við aukinni innlendri eftirspurn. Þrátt fyrir það hafa launahækkanir ve...
Ráð­stöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Ráð­stöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi - Vísir
Ferðaþjónustuaðilar og íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum og á Breiðafjarðareyjum hafa viðrað óánægju sína með að Breiðafjarðarferjan Baldur verði tekin...
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu - Vísir
Samtök Iðnaðarins benda á að laun hafi hækkað umfram matvælaverð og að skjalið dragi upp skakka mynd af verðinu. Þá fjöllum við um ólgu innan Samfylki...
Jeffrey Donaldson: Former DUP leader takes the stand in sex abuse trial
📅 11.06.2026 👁️ 0
Jeffrey Donaldson: Former DUP leader takes the stand in sex abuse trial
Former DUP leader Sir Jeffrey Donaldson has taken the witness stand at his trial on sex abuse charges.He was called to give evidence by his defence ba...
Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út - Vísir
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef þeirra en útboðið stendur til klukkan 14, 14. júlí á þessu ári. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að brúin verð...
Varnar­mála­ráð­herra Breta segir af sér - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Varnar­mála­ráð­herra Breta segir af sér - Vísir
Varnarmálaráðherrann greinir frá þessu í færslu á X og birtir þar bréf stílað á forsætisráðherrann þar sem hann segist finna engra annarra kosta völ e...
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu - Vísir
Til viðbótar við þá sem týndu lífi hafa milljónir Evrópubúa þjáðst líkamlega og andlega af völdum hitabylgja á síðustu árum. Henri Kluge, yfirmaður Al...
Boðar hallalaus fjárlög „sama hvað það kostar“
📅 11.06.2026 👁️ 0
Boðar hallalaus fjárlög „sama hvað það kostar“
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þingmenn stjórnarandstöðunnar tókust á um það á Alþingi í dag hvort uppfæra þyrfti fjármálaáætlun vegna brostinna fors...
Björn Þorláksson segist hafa verið skammaður fyrir að taka viðtal við Margréti Friðriksdóttur
📅 11.06.2026 👁️ 0
Björn Þorláksson segist hafa verið skammaður fyrir að taka viðtal við Margréti Friðriksdóttur
Björn Þorláksson, blaðamaður á Samstöðinni, segir að viðtal hans við Margréti Friðriksdóttur í þættinum Rauða borðinu hafi vakið með ólíkindum ólík vi...
Íris ósátt: „Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Íris ósátt: „Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi“ - DV
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, bendir á að reglur um aldurslágmark barna sem mega starfa í vinnuskólanum í Vestmannaeyjabæ leiði til þ...
Her­mann Nökkvi verður að­stoðar­maður Vil­hjálms Árna­sonar - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Her­mann Nökkvi verður að­stoðar­maður Vil­hjálms Árna­sonar - Vísir
Hermann greinir frá vistaskiptunum í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann að áætlunin hafi verið að hefja aftur störf á Morgunblaðinu eftir að haf...
Strictly Come Dancing: Dani Dyer returns a year after pulling out with broken ankle
📅 11.06.2026 👁️ 0
Strictly Come Dancing: Dani Dyer returns a year after pulling out with broken ankle
Dani Dyer has joined the line-up for Strictly Come Dancing, a year after she was forced to withdraw from the BBC show when she broke her ankle.The med...
Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár - Vísir
Sænska þingið átti að greiða atkvæði um frumvarp minnihlutastjórnar Ulfs Kristersson, forsætisráðherra, um að lækka tímabundið sakhæfisaldur úr fimmtá...
Eyþór Eðvarðsson skrifar: ETS fyrir hugsandi einstaklinga - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Eyþór Eðvarðsson skrifar: ETS fyrir hugsandi einstaklinga - DV
Ef þú trúir einhverju af eftirfarandi er líklega betra að hætta lestrinum núna: að loftslagsvísindamenn hafi ekki áttað sig á því að áður hafa komið h...
Harbour rýfur þögnina - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Harbour rýfur þögnina - Vísir
David Harbour er þekktastur fyrir að leika Jim Hopper í Stranger Things (2016-25) og Rauða verndarann í nokkrum Marvel-myndum. Um þessar mundir leikur...
Sorg­legt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Sorg­legt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann - Vísir
„Það er sorglegt hve illa er tekið undir þennan undirskriftalista,“ skrifar Kolbeinn Reginsson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Facebook hópinn Vinir Hamra...
The Canary Islands sees highest number of new homes built in 14 years
📅 11.06.2026 👁️ 0
The Canary Islands sees highest number of new homes built in 14 years
The Canary Islands recorded their strongest year for private home builds in 14 years during 2025, but experts warn that construction levels remain wel...
Framleiðendur vilja lægri virðisaukaskatt á matvæli
📅 11.06.2026 👁️ 0
Framleiðendur vilja lægri virðisaukaskatt á matvæli
Verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði segir marga þætti koma til skoðunar þegar horft sé til hækkunar á matvælaverði en verð á matvöru á...
Lifetime cover and age of enrolment: what you should look for in a health insurance policy
📅 11.06.2026 👁️ 0
Lifetime cover and age of enrolment: what you should look for in a health insurance policy
Age often influences the conditions of medical insurance policies. For this reason, when choosing private health insurance, it is essential to review ...
Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna - „Ekkert af þessu varðar almenning“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna - „Ekkert af þessu varðar almenning“ - DV
Íslensk-norski þingmaðurinn Mímir Kristjánsson kallar eftir því að norskir fjölmiðlar sýni konungsfjölskyldunni þar í landi meiri tillitssemi og samúð...
Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“ - DV
Áhrifavaldur með tæplega 12 þúsund fylgjendur á Instagram hefur vakið athygli fyrir myndband þar sem hann fer býsna hörðum orðum um Ísland. Margir Ísl...
JD Vance says Netanyahu 'has got some things wrong'
📅 11.06.2026 👁️ 0
JD Vance says Netanyahu 'has got some things wrong'
Israeli Prime Minister Benjamin Netanyahu has "certainly gotten some things wrong", US Vice-President JD Vance has said, as ties between the two partn...
Segja afstöðu stjórnvalda gegn enduruppbyggingu í Grindavík fjandsamlega
📅 11.06.2026 👁️ 0
Segja afstöðu stjórnvalda gegn enduruppbyggingu í Grindavík fjandsamlega
Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn segir afs...
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
📅 11.06.2026 👁️ 0
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi Einu og hálfu ári frá al­þing­is­kosn­ing­um hafa fjór­ir áhrifa­menn úr Sjálf­stæ...
Hætta við að leyfa fangelsun 13 ára barna
📅 11.06.2026 👁️ 0
Hætta við að leyfa fangelsun 13 ára barna
Umdeild tillaga sænsku ríkisstjórnarinnar um að heimila að 13 ára börn verði sett í fangelsi hefur verið dregin til baka. Gunnar Strömmer dómsmálaráðh...
Serena Williams' Queen's run over as injured Victoria Mboko withdraws
📅 11.06.2026 👁️ 0
Serena Williams' Queen's run over as injured Victoria Mboko withdraws
Serena Williams' doubles campaign at Queen's is curtailed as her playing partner Victoria Mboko withdraws with a left knee injury.
Leggja til að mestu gljúfur­kerfi lands­grunnsins verði vernduð - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Leggja til að mestu gljúfur­kerfi lands­grunnsins verði vernduð - Vísir
Hafró leggur til að landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri verði friðlýstar til þess að koma í veg fyrir hnignun b...
Pope Leo visits Canary Islands to highlight perilous journeys of migrants
📅 11.06.2026 👁️ 1
Pope Leo visits Canary Islands to highlight perilous journeys of migrants
Bakary Jaiju was 19 when he climbed into a wooden boat in the Gambia and set out for Europe. He would be at sea for seven frightening days as his supp...
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins - Vísir
Þá er hún nauðsynleg fyrir fyrstu mönnuðu geimferðina til yfirborðs tunglsins frá árinu 1972. Randy Bresnik mun leiða ferðina. Með honum fara einnig þ...
Swae Lee heldur tón­leika á Ís­landi - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Swae Lee heldur tón­leika á Ís­landi - Vísir
Swae Lee tilkynnti í dag um Evróputúr sinn í kjölfarið á útgáfu breiðskífunnar Same Difference sem kom út í apríl. Á túrnum kemur Lee fram í Varsjá í ...
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ - Vísir
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúrugrið, Verndarsjóður villtra laxastofna og Íslenski náttúruverndarsjóðurinn gáfu frá sér tilkynningu í ...
Bresk stjórnvöld boða stórauknar takmarkanir á samfélagsmiðlum eftir óeirðirnar í Belfast
📅 11.06.2026 👁️ 2
Bresk stjórnvöld boða stórauknar takmarkanir á samfélagsmiðlum eftir óeirðirnar í Belfast
Breska ríkisstjórnin hyggst veita fjölmiðlaeftirlitinu Ofcom auknar heimildir til að grípa inn í dreifingu efnis á samfélagsmiðlum þegar talið er að „...
Skattfrelsi erlendra fjárfesta
📅 11.06.2026 👁️ 1
Skattfrelsi erlendra fjárfesta
Skattfrelsi erlendra fjárfesta Í al­þjóð­legri skatt­lagn­ingu gild­ir að ríki skatt­leggi heim­il­is­fasta og tekj­ur sem þar verða til. Dap­ur­legt ...
England midfielder Declan Rice on his sunburn and World Cup heat
📅 11.06.2026 👁️ 0
England midfielder Declan Rice on his sunburn and World Cup heat
Declan Rice says he and his England teammates are still getting used to the heat in the US, as he admitted he got a telling off from his mum for turni...
Overturned lorry caused major traffic jams on Tenerife’s TF-1 motorway
📅 11.06.2026 👁️ 1
Overturned lorry caused major traffic jams on Tenerife’s TF-1 motorway
Thousands of drivers faced lengthy delays on Tenerife’s TF-1 motorway yesterday after an overturned lorry brought traffic heading towards Santa Cruz t...
Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 2
Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“ - DV
Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, er nú staddur á Grænlandi í opinberum erindagjörðum sem þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins. Jón kom til Grænla...
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur
📅 11.06.2026 👁️ 1
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur Einmana, aldr­að fólk í Suð­ur-Kór­eu fær svo­kall­að­ar „umönn­un­ar­dúkk­ur“ frá rík­inu. Helm­ing­ur íbúa er yf...
Afkoma ríkisins versnar milli ára
📅 11.06.2026 👁️ 1
Afkoma ríkisins versnar milli ára
Afkoma hins opinbera hefur versnað milli ára samkvæmt bráðabirgðamatiHagstofunnar á afkomunni á fyrsta ársfjórðungi.Hallinn hjá hinu opinbera nam 23,7...
Nearly 3,000 patients a day face corridor care in NHS
📅 11.06.2026 👁️ 1
Nearly 3,000 patients a day face corridor care in NHS
Nearly 3,000 patients a day had to be cared for in hospital corridors or make-shift treatment areas rather in a bed on a ward in England last month, f...
Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 2
Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“ - DV
Stór hópur í Samfylkingunni, eða óflokksbundið jafnaðarfólk, hefur skrifað opið bréf þar sem nýju lögunum um brottfararstöð er mótmælt og krafist að f...
Öfund margra í Laugardalnum til sölu
📅 11.06.2026 👁️ 1
Öfund margra í Laugardalnum til sölu
Öfund margra í Laugardalnum til sölu Njörvasund 13 Glæsilegt einbýlishús við Njörvasund 13 í Reykjavík er komið á sölu. Um er að ræða sérhannaða eign ...
Segja viðræður þýðingarlausar í skugga árása
📅 11.06.2026 👁️ 2
Segja viðræður þýðingarlausar í skugga árása
Þrír indverskir farmenn særðust þegar bandaríski flotinn skaut á flutningaskip sem þeir voru á úti fyrir ströndum Óman. Siglingaráðherra Indlands grei...
Þrír Indverjar féllu í árás Bandaríkjahers
📅 11.06.2026 👁️ 1
Þrír Indverjar féllu í árás Bandaríkjahers
Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð um Hormússund. Stofnun sem Íranar settu á fót til að stýra umferð og innheimta gjöld sagði í dag a...
Íranar segjast hafa lokað Hormússundi
📅 11.06.2026 👁️ 0
Íranar segjast hafa lokað Hormússundi
Vaktin heldur áfram. Ég heiti Mist Grönvold og er hér með tekin við af Brynjólfi Þór.Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir brýnt að Evrópusam...