Kamala Harris, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, var ein þeirra fjölmörgu sem fögnuðu þegar ljóst varð að demókratar hefðu náð meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í þingkosningunum á þriðjudag. Harris birti á X fjögurra sekúndna myndband þar sem hún hrópar „Hallelujah!“ og myndbandið fór hratt á flug.
Harris deildi um leið færslu þar sem sagði að demókratar myndu endurheimta bæði fulltrúadeildina og öldungadeildina í „sögulegri blárri bylgju“. Samkvæmt NDTV er myndbandið af Harris á fundi fyrir Jon Ossoff, öldungadeildarþingmann frá Georgíu, sem var endurkjörinn á þriðjudag.
pic.x.com/x2f0764UTL https://t.co/Vszg23sBa4
— Kamala Harris (@KamalaHarris) 4. nóvember 2026
Lokatölur liggja ekki fyrir og talningu er ekki lokið í nokkrum kjördæmum.
Obama: „Skýr skilaboð“
Barack Obama, fyrrverandi forseti, sendi frá sér langa yfirlýsingu á X. „Tonight, the American people sent a clear message – they want a politics that brings people together rather than divides them, and leaders who offer concrete solutions to the challenges they face,“ skrifaði Obama. Á íslensku: „Í kvöld sendi bandaríska þjóðin skýr skilaboð – hún vill stjórnmál sem sameina fólk frekar en sundra því, og leiðtoga sem bjóða raunhæfar lausnir á þeim vanda sem hún glímir við.“
Obama þakkaði frambjóðendum sem buðu sig fram „in every region of the country – including in areas once considered long shots“, eða í öllum landshlutum, líka þar sem sigur þótti áður fjarlægur. Hann þakkaði einnig starfsfólki og sjálfboðaliðum beggja flokka sem sáu um framkvæmd kosninganna.
„While this administration has another two years in office, our job now is to roll up our sleeves, make changes wherever we have the power to do so, prevent further damage, and lay the groundwork for the future,“ skrifaði hann að lokum. Það er: „Þótt þessi ríkisstjórn eigi tvö ár eftir í embætti er verkefni okkar nú að bretta upp ermar, gera breytingar alls staðar þar sem við höfum vald til þess, koma í veg fyrir frekari skaða og leggja grunn að framtíðinni.“
Tonight, the American people sent a clear message – they want a politics that brings people together rather than divides them, and leaders who offer concrete solutions to the challenges they face.
— Barack Obama (@BarackObama) 4. nóvember 2026
„Nú hefst rauða brúðkaupið“
Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel fór yfir úrslitin í upphafsræðu sinni í Jimmy Kimmel Live! á þriðjudagskvöld. „What we do know for sure is that Democrats have officially taken the House,“ sagði Kimmel og bætti við: „The blue wave made landfall, and now the Red Wedding begins.“ Á íslensku: „Það sem við vitum fyrir víst er að demókratar hafa formlega náð fulltrúadeildinni. Bláa bylgjan er komin að landi og nú hefst rauða brúðkaupið.“ Þar vísaði hann í frægt fjöldamorð í þáttunum Game of Thrones.
Kimmel gerði líka grín að nýlegum ummælum Trumps um afturenda annarra. „After all the talk about Nicki Minaj’s ass, Jon Husted’s ass… the only ass on Trump’s mind tonight is the one that just got handed to him,“ sagði hann, eða að eftir allt talið um rassinn á Nicki Minaj og Jon Husted væri eini rassinn sem Trump hugsaði um í kvöld sá sem hann hefði sjálfur fengið á baukinn.
„Draumar rætast“
Leikarinn Henry Winkler, sem flestir þekkja sem Fonzie úr Happy Days, svaraði færslu á X þar sem spurt var hvernig fólki liði. „Dreams do come true,“ skrifaði Winkler, eða „Draumar rætast“.
Dreams do come true https://t.co/hlboEbDthM
— Henry Winkler (@hwinkler4real) 4. nóvember 2026
Söngkonan Bette Midler skrifaði á Instagram: „I am OVERJOYED! What a great, great night. Thank you, America! You’ve saved your beloved country!!“ Það er: „Ég er í skýjunum! Þvílíkt frábært kvöld. Takk, Ameríka! Þið hafið bjargað ástkæra landinu ykkar!!“ að því er Independent greinir frá.
Samkvæmt Billboard fylgdist leikkonan Mandy Moore grannt með talningunni á Instagram og skrifaði meðal annars: „Texas, this keeps getting better and better…“ Leikararnir John Leguizamo, Alyssa Milano og Molly Ringwald og spjallþáttastjórnandinn Stephen Colbert eru á meðal annarra sem fögnuðu á samfélagsmiðlum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, kenndi því hins vegar um að hann hefði ekki sjálfur verið á kjörseðlinum.
„Ef ég hefði verið á kjörseðlinum hefðum við unnið stórsigur“ – Trump kennir öðrum um ósigurinn