Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir að hvítháfur réðst á hann í hafinu við áströlsku borgina Perth. Björgunarsveitir og þyrla voru send manninum til bjargar. Lífgunartilraunir báru ekki árangur að sögn lögreglu. Fólk er varað við að fara í sjóinn.
Ástralir hafa haldið fremur nákvæma skrá um hákarlaárásir allt frá árinu 1791. Síðan þá hafa yfir 260 manns týnt lífi í næstum 1.300 atlögum hákarla. Seinasta dauðsfallið varð í janúar þegar hákarl varð tólf ára dreng að aldurtila í Sydney-höfn.
Skömmu áður drápu hákarlar tvo menn á sundi nærri borginni. Atlagan að drengnum var sú fjórða á aðeins tveimur dögum sem leiddi til þess að yfirvöld lokuðu tugum baðstranda við Sydney.
Þegar hákarlar ráðast á fólk án þess að þeim hafi verið ögrað má yfirleitt skýra árásina með umhverfisástæðum eða einhverju í sjónum sem laðar þá að. Ástralskir vísindamenn telja að aukna tíðni árása megi rekja til fjölgunar strandgesta og hækkandi hitastigs hafsins sem breytt hefur ferðamynstri hákarla.