Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað því að fresta gildistöku starfs- og rekstrarleyfa fyrir sjókvíaeldi sem til stendur að koma á laggirnar í Seyðisfirði, en eldið hefur verið vægast sagt umdeilt. Krafðist sá fjöldi aðila sem kært hafa leyfin til nefndarinnar þess að gildistöku yrði frestað á meðan kærurnar eru til meðferðar.Starfsleyfi og rekstrarleyfi eru til handa fyrirtækinu Kaldvík og ná til sjókvíaeldis á laxi í Seyðisfirði með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi.
Hafna því að fresta tímabundið gildistöku leyfa fyrir umdeilt sjókvíaeldi