Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Breiðafirði, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra á morgun vegna hvassra vindstrengja.
Viðvörunin tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og varir fram yfir miðnætti.
Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við 13 til 20 metrum á sekúndu og hviðum í kringum 30 metra á sekúndu við fjöll.
Vindurinn er einkum varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.