Rússnesk loftvarnarkerfi grönduðu hátt í 500 úkraínskum drónum sem stefndu að höfuðborg landsins í gær. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir Sergei Sobjanín, borgarstjóra Moskvu. Árásirnar voru gerðar skömmu eftir að vopnahléð í Oleshky rann út á sunnudaginn
Þá létust 26 manns í árás í Zaporizhzhia-héraði í suðausturhluta Úkraínu en hrina árása af hálfu Rússlandshers hefur dunið á Úkraínumönnum víða um landið í nótt svo að jafnvel loftvarnarkerfi Póllands fóru í gang.
Einnig greindu yfirvöld í borginni Kharkív í norðausturhluta landsins frá því að tuttugu og fimm manns hefðu slasast í árás á heilbrigðisstofnun.
Stefe Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjanna, greindi frá því fyrir skemmstu að viðræður milli Rússlands og Úkraínu, sem stjórnað er af Bandaríkjunum, hefjist að nýju í næstu viku.