„Það kemur mörgum á óvart hvað lögregluyfirvöld eru meðvituð um okkar tilgang,“ segir Jón Pétursson, rannsóknastjóri siglingasviðs Rannsóknanefndar samgönguslysa (RNSA), í samtali við 200 mílur. Í gær lauk fundi sjóslysarannsakenda á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum þar sem köfunarsveit ríkislögreglustjóra hélt meðal annarra erindi. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn á Íslandi.
„Það voru ýmsar ástæður fyrir því að við fengum köfunarsveitina til að vera með erindi. Við viljum sýna hvað þeir eru vel þjálfaðir, hafa mikla þekkingu á köfun og sérstaklega rannsóknarköfun, en við viljum líka sýna hversu mikinn skilning lögregluyfirvöld hafa á okkar starfi, það er að segja, muninn á öryggisrannsóknum og þeirra rannsóknum,“ segir Jón.
„Þetta þykir mönnum mjög óvenjulegt og það kemur þeim á óvart að við þurfum aldrei að beita fyrir okkur lagareglum eða neinu slíku. Þeir þekkja okkar hlutverk og vinna með okkur.“
Jón segir að fundurinn sé ekki opinn almenningi og helgist það af því að oft geti umræðuefnin verið viðkvæm. „Það kemur fyrir að verið sé að ræða viðkvæma hluti eða kynna rannsóknir sem eru í gangi,“ segir hann.
Smábátaslys óvíða rannsökuð
Jón útskýrir að heimur þeirra sem rannsaka sjóslys sé lítill og því sé mikilvægt að viðhalda góðum tengslum á milli landa. Til að mynda sé gott samstarf á milli Íslands og Noregs hvað varðar rannsóknir á sjóslysum smábáta, en það segir Jón vera óvíða viðhaft. Því var seinni dagur fundarins helgaður smærri bátum þar sem Ísland og Noregur gátu meðal annars miðlað af reynslu sinni.
„Af því að við höldum ráðstefnuna höfum við margt um það að segja hvað er tekið fyrir og aðaláhugi okkar hjá RNSA er að vera undirbúnir komi til þess að hér verði slys,“ segir Jón. „Þá er ég ekki að tala um björgunarþáttinn heldur rannsóknarþáttinn.“
Fyrri dag fundarins var sérstaklega rætt um stærri skip, með áherslu á skemmtiferðaskip, en slíkar rannsóknir geta verið töluvert flóknar. „Það er alltaf að aukast að skemmtiferðaskip leiti á norðurslóðir,“ segir Jón og nefnir í því samhengi að á fundinum haldi einnig sérfræðingur frá Bahamaeyjum erindi, en um helmingur skemmtiferðaskipa heimsins siglir undir fána Bahama.
Sjóslysarannsóknir Samúel Ólafsson, yfirmaður köfunarsveitar ríkislögreglustjóra, hélt erindi um samstarf sveitarinnar við siglingasvið RNSA.
Morgunblaðið/Eggert
Þróa sameiginlega verkferla
Eitt af því sem Jón segir RNSA geta tekið með sér frá svona viðburði er innsýn í rannsóknaráætlanir annarra landa, og á þá við það verklag sem farið er eftir við rannsóknir á stórslysum.
„Við höfum nú þegar fengið rannsóknaráætlanir hinna norrænu landanna og við erum að sjá að hvað miklu leyti við getum lagað þær að okkar módeli,“ segir hann en meðal þess sem fundurinn hefur leitt í ljós er að rannsóknaráætlanir séu víða orðnar gamlar og jafnvel úreltar.
„Þetta eru talsvert flókin mál en þess vegna erum við í sameiningu að reyna að hanna rannsóknaráætlun sem þessi hópur getur nýtt sér.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.