Gullregnið hjá Sólveigu Ósk, hárgreiðslumeistara og Gísla Þór, manni hennar er glæsilegt í alla staði og hefur aldrei blómstrað eins mikið og í sumar.
„Þetta er bara tré sem við settum niður í kringum 2006 og það hefur bara aldrei verið svona fallegt eins og núna. Það er algjört augnakonfekt,” segir Sólveig.
Hefur það aldrei blómstrað svona mikið eins og núna?
„Ekki svona en það hefur einu sinni verið alveg svakalega fallegt áður. Það er rosalega gaman þegar þetta er svona fallegt,” segir Sólveig.
Sólveig segir Gullregnið vekja mikla athygli enda sé það mikið myndað enda búa þau Gísli Þór við aðalgötuna, sem er Austurvegur í gegnum bæinn.
Það er rosalega mikið um gullregn núna blómstrandi eða hvað?
„Já, þau eru extra falleg í ár, ég veit ekki af hverju það er en einhver sagði mér af því að vorið var svo gott í fyrra en ég veit ekki hvort það er rétt,” segir Sólveig.
Það má víða sjá mjög falleg gullregn á Selfossi eins og þetta við Laxabakka, ungt og fallegt tré, sem blómstrar svona fallega og svo þetta gullregn við götuna Sigtún, sem er líka mjög fallegt.
En eru blómin ekki eitruð á gullregninu?
„Ekki á þessum, allavega ekki eins eitruð og á Fjallagullregni, þetta er Garðagullregn, það er öðruvísi,” segir Sólveg.
En mega bara allir koma og kíkja á Gullregnið ykkar?
„Já, já, það er alveg velkomið, bara að spyrja um leyfi áður.”