Íris Erlingsdóttir skrifar:
Nýlega átti ég samtal við vinkonu mína sem hefur skrifað barnabók. Ég lagði til að hún ræddi við ChatGPT um mögulegar myndskreytingar og hugmyndir að útliti bókarinnar, en nei, takk! Hún vildi geta sagt með stolti að ekkert AI hefði komið þar nærri. Ég reyndi að útskýra að ég væri ekki að segja að hún ætti að láta gervigreind myndskreyta bókina, heldur að nota AI til að velta fyrir sér hugmyndum og myndskreytingarstílum.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem ég fékk slík viðbrögð. Ég hef oft lagt til við fólk að það leiti til gervigreindar með spurningar og verkefni og viðbrögðin eru oft eins og ég sé að hvetja það til að fremja siðferðilegan glæp.
Fáfræði er ekki dyggð
Andstaðan við gervigreind er ekki alltaf sprottin af ótta við nýja tækni, heldur virðist henni oft fylgja siðferðilegur hroki. Fólk lýsir því yfir með stolti að það noti aldrei gervigreind, eins og það hafi þannig sýnt af sér einstakan mannkost.
Það er auðvitað hvers manns ákvörðun hvaða verkfæri hann notar. En hvað er göfugt við að neita að kynna sér ný tæki, að hafna verkfæri sem maður hefur ekki einu sinni reynt að læra að nota? Það er ekkert sérstaklega aðdáunarvert við að eiga ritvél og neita að nota tölvu. Enn síður er ástæða til að hreykja sér af því. Þessi viðbrögð eru þó síður en svo ný af nálinni. Mannkynið á sér langa og skrautlega sögu af ótta við tækniframfarir.
Sókrates og stórhættulegt ritmál
Fyrir 2.400 árum hafði Sókrates verulegar áhyggjur af nýjung sem hann taldi geta haft skaðleg áhrif á hugsun manna: ritmálinu. Í samræðunni Fædrosi eftir Platon segir Sókrates sögu af egypskum guði sem kynnti ritlistina sem leið til að efla minni og visku manna. Konungurinn Þamus var ekki hrifinn því hann taldi að ritmál myndi veikja minni fólks. Menn myndu hætta að reiða sig á eigin huga og treysta þess í stað á skrifað orð. Ritmálið myndi ekki skapa visku, heldur aðeins yfirborðslega þekkingu. Menn myndu halda að þeir vissu ýmislegt án þess að skilja það.
Hljómar kunnuglega, ekki satt? Það skemmtilega er auðvitað að við þekkjum þessar áhyggjur Sókratesar vegna þess að lærisveinn hans, Platon, skrifaði þær niður. Þegar prentlistin breiddist út á 15. öld urðu enn meiri breytingar. Bækur, sem áður höfðu verið afritaðar í höndunum og voru dýrar og sjaldgæfar, urðu aðgengilegar almenningi. Þekking sem áður hafði verið á fárra valdi gat nú borist til fjöldans. Prentlistin auðveldaði útbreiðslu hugmynda sem valdhafar gátu ekki lengur stjórnað með sama hætti og áður.
Þetta hljómar líka kunnuglega. Sex öldum síðar hafa stjórnvöld enn áhyggjur af því að almenningur hafi aðgang að upplýsingum sem þau ráða ekki yfir. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur ítrekað varað við „upplýsingaóreiðu“ og beitt sér fyrir sérstökum aðgerðum ESB til að fylgjast með og sporna gegn henni.
Skrattinn á reiðhjóli
Á 19. öld kom reiðhjólið til sögunnar og olli miklum áhyggjum, ekki síst þegar konur fóru að hjóla. Reiðhjólið veitti þeim áður óþekkt ferðafrelsi. Þessi nýjung kallaði líka á breytingar á klæðaburði, því síðu pilsin og þröngu lífstykkin hentuðu illa til hjólreiða. Þetta þótti sumum hin mesta ósvinna.
Þegar bifreiðin kom til sögunnar urðu viðbrögðin ekki síður skrautleg. Árið 1865 voru sett lög í Bretlandi sem kröfðust þess að maður gengi á undan sjálfknúnum ökutækjum með rauðan fána til að vara vegfarendur við hættunni.
Síminn – verkfæri djöfulsins
Margir voru óánægðir þegar síminn kom til sögunnar á síðari hluta 19. aldar. Fólk gat hringt inn á heimili annarra og truflað heimilisfriðinn. Síminn var sagður gera fólk latt og spilla mannlegum samskiptum. Margir litu á hina dularfullu og ósýnilegu símavíra sem „verkfæri djöfulsins“ eða farveg fyrir illa anda. Ritstjórnargrein í bresku dagblaði sagði árið 1899 að síminn skapaði óþarfa æsing í daglegu lífi og stuðlaði hvorki að heimilishamingju né þægindum. Bandarískur prófessor kvartaði yfir því árið 1929 að síminn, bifreiðin og aðrar nýjungar breyttu frítíma fólks í endalausar truflanir. Nú, rúmri öld síðar, heyrum við nánast sömu varnaðarorðin um snjallsíma.
Það er skondið að ofangreind dæmi um áhyggjur manna af símanum eru nefnd í grein Smithsonian tímaritsins frá 2016 um nýja ógn við mannleg samskipti: SMS-skilaboð. Tíu árum síðar er ég að vitna í sömu grein og enn á ný er varað við því að ný tækni muni gera okkur löt, heimsk og ófær um að hugsa sjálfstætt. Ég hlakka til að sjá hvað verður talið ógna mannlegri hugsun árið 2036.
Vissulega fylgja gervigreindinni raunverulegar hættur. Hún getur farið með rangt mál, búið til heimildir sem ekki eru til, verið notuð til blekkinga og haft mikil, jafnvel neikvæð áhrif á atvinnulíf, menntun og fjölmiðla. En það er engin röksemd fyrir því að neita að læra á hana.
Blaðamaður getur notað gervigreind til að finna rannsóknir, kanna mótrök, fá hugmyndir að spurningum og skipuleggja rannsóknarvinnu. Hann verður eftir sem áður að gera sér grein fyrir hvað hann vill skrifa og hvernig, sannreyna rök og heimildir og bera ábyrgð á því sem hann skrifar. Rithöfundur getur rætt persónusköpun, söguþráð og hugmyndir við gervigreind án þess að láta hana skrifa bókina. Ég nota sjálf gervigreind við rannsóknir, skipulagningu, þýðingar – allskonar skapandi vinnu og skemmti mér oft vel í leiðinni!
Það er ekkert siðferðilega göfugt við að skrifa bók án aðstoðar gervigreindar, fremur en að skrifa hana án tölvu, orðabókar eða internetsins. Þegar Sókrates hafði áhyggjur af því að ritmálið myndi veikja minni manna og skapa falska tilfinningu fyrir þekkingu hafði hann nokkuð til síns máls. Skrifað orð getur vissulega skapað þá blekkingu að sá sem les hafi öðlast skilning, rétt eins og gervigreind getur skapað þá blekkingu að sá sem fær svar hafi öðlast þekkingu.
Ég veit ekki hvort Sókrates hefði notað ChatGPT eða Grok. En ég efast um að maður sem helgaði líf sitt því að spyrja spurninga hefði talið það dyggð að neita að kynna sér nýtt verkfæri.
Höfundur er fjölmiðlafræðingur.