Gervigreind tekin í notkun á bráðamóttöku HSU – Hjálpar læknum að grein röntgenmyndir
Innleiðingin er liður í aukinni notkun á stafrænni tækni innan heilbrigðiskerfisins þar sem markmiðið er að bæta þjónustu við sjúklinga.
Sunnlenska.is sagði fyrst frá.
Mikilvægt fyrir landsbyggðina
Að sögn Díönu Óskarsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, getur tæknin haft veruleg áhrif á þjónustu utan stærri sjúkrahúsa.
„Þessi lausn skiptir sérstaklega miklu máli fyrir heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni þar sem oft er skortur á sérfræðiþjónustu utan dagvinnutíma. Með þessu móti tryggjum við aðgengi að sérfræðiþekkingu sem hjálpar okkur að veita mikilvæga þjónustu óháð staðsetningu,“ segir hún.
Hún bætir við að verkefnið sýni vel hvernig ný tækni geti haft bein áhrif á daglega þjónustu og stutt við fagfólk í krefjandi aðstæðum.
Niðurstöður bornar saman við sérfræðinga
Árangur verkefnisins verður metinn með því að bera niðurstöður gervigreindarinnar saman við niðurstöður röntgensérfræðinga. Þá verður einnig skoðað hvernig heilbrigðisstarfsfólk upplifir notkun kerfisins og hvort það geti skilað aukinni skilvirkni í þjónustunni.
Rannsóknir benda til þess að gervigreind í myndgreiningu geti greint bráðatilfelli með mikilli nákvæmni og næmni. Þrátt fyrir það halda röntgensérfræðingar áfram að fara yfir allar myndir, en tæknin er notuð sem viðbót og stuðningur frekar en staðgengill sérfræðinganna.