Lögreglan handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um að hafa stungið tvo með hnífi í spilasalnum Mónakó.
Þetta staðfestir Guðmundur Ásgeirsson lögreglufulltrúi. Hann segir manninn hafa gert alvarlega atlögu að mönnunum en að áverkar þeirra séu ekki alvarlegir. Annar mannanna hafi þó hlotið djúpan skurð í vör. Bæði gerandi og árásarþolar eru af erlendu bergi brotnir en búsettir á Íslandi og eru á þrítugsaldri.
Maðurinn er enn í fangageymslu lögreglu og skýrsla verður tekin af honum síðar í dag. Guðmundur segir manninn áður hafa komið við sögu lögreglu. Honum verði að öllum líkindum sleppt að skýrslutöku lokinni.