Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir í nýlegri skýrslu að það sé ekki mögulegt fyrir nefndina að skera úr um hvers vegna erlendur ferðamaður missti meðvitund við köfun í Silfru á Þingvöllum, í ágúst 2024. Segir nefndin helstu ástæðurnar fyrir því einfaldlega vera þá að starfsmenn hennar fréttu fyrst af þessu atviki í fjölmiðlum og að lögreglan hafi seint og um síðir orðið við beiðnum nefndarinnar um upplýsingar um slysið.
Gátu ekki komist að því af hverju leið yfir ferðamann við köfun í Silfru