Í dag eru fimm dagar til sveitarstjórnarkosninga. Í fimmta fjölmennasta sveitarfélagi landsins, Garðabæ, hafa Sjálfstæðismenn haft hreinan meirihluta í bæjarstjórn í 60 ár, frá árinu 1966. Þar eru sex flokkar í framboði og ýmislegt brennur á Garðbæingum.
Meðal annars eru það leikskólamál, umhverfismál og einn íbúi vill gjarnan að verslun verði opnuð á Álftanesi. Þá nefndi ungur Garðbæingur æskulýðsmál og málefni eldri borgara.
Bærinn hefur stækkað mikið síðustu ár. Íbúum hefur fjölgað um 43% síðustu tíu ár, þar hafa sprottið upp ný hverfi og fjölgað hefur í eldri hverfum.
Þessu fylgir aukin umferð og margir af þeim Garðbæingum sem fréttastofa tók tali segja þörf á betri almenningssamgöngum. Einn sagði að færri bílar væru lausnin.