Gæsluvarðhald yfir karlmanni vegna umfangsmikils eiturlyfjasmygls með Norrænu hefur verið framlengt til 1. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
56 kíló af amfetamíni, átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni og sitt hvort kílóið af kristal metamfetamíni og bleiku kókaíni (sem er blanda af ketamíni og MDMA) fundust í húsbíl sem kom til landsins með Norrænu.
Lögregla fylgdi húsbílnum þegar honum var ekið frá borði. Ökumaðurinn, erlendur karlmaður á sextugsaldri, var handtekinn á Norðurlandi í júní.