Magnús Kristjánsson verður fyrsti forstjóri Stofnunar atvinnuveganna sem verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs um áramót.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skipaði Magnús í embætti til fimm ára. Hann á að leiða undirbúning, móta skipulag og stýra starfsemi stofnunarinnar sem tekur til starfa um áramót. Tólf sóttu um starfið.
Magnús var forstjóri Orkusölunnar síðustu 18 árin. Þar áður var hann upplýsingatæknistjóri hjá Rarik og verkefnastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá TM Software - Business Solution.