Samfélag gyðinga á Íslandi hefur nú opnað menningarmiðstöð við Hverfisgötu 33 í Reykjavík í gamla Framsóknarhúsinu.
Húsið mun gegna margþættu hlutverki og rabbínin Avraham Feldman segir tímabært að hafa fastan stað fyrir samfélag gyðinga sem hefur búið á Íslandi í meira en 100 ár.
Húsið var keypt sumarið 2024 af félaginu LG50 sem er í eigu Avrahams. Mikil vinna var lögð í að gera húsið upp, en það er innblásið af íslenskri hönnun. Þann 7. júlí opnaði samfélag gyðinga það við formlega athöfn.
Avraham segir nokkur hundruð manns tilheyra samfélagi gyðinga á Íslandi. Hann segir húsið öryggisvaktað en að öll séu velkomin að koma í heimsókn og kynnast menningu gyðinga á Íslandi.
Húsið er rúmlega 1000 fm og kaupverðið var 325 milljónir. Avraham segir það fjármagnað með einkaframlögum.