Brotið var blað í sögu Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga á kjördaginn þegar Sóley Sif Jónsdóttir lauk framhaldsprófi í píanóleik frá skólanum, fyrst nemenda í 55 ára sögu skólans.
Ein af ástæðum þess að ekki eru fleiri framhaldsnemar við skólann er að unglingar fara gjarnan að heiman um 16 ára aldur til að fara í framhaldsskóla annars staðar
Úr tónlistarfjölskyldu
Sóley Sif er 19 ára nýstúdent og Skagstrendingur. Hún kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu því móðir hennar er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, sem er skólastjóri tónlistarskólans, organisti við nokkrar kirkjur og stjórnandi kirkjukórs Hólaneskirkju og mjög frambærileg söngkona. Pabbi Sóleyjar er Jón Ólafur Sigurjónsson, bassaleikari og söngvari í hljómsveitinni „Steinliggur“, en hann hefur komið víða við í hljómsveitabransanum. Bróðir hennar, Ísak, sem er 15 ára, er svo að læra á bassa og að byrja sinn feril sem slíkur.
Sóley byrjaði að læra á píanó fimm ára gömul hjá móður sinni í tónlistarskólanum. Síðan hóf hún svo nám hjá Eyþóri Franzsyni Wechner, kennara við skólann, og naut leiðsagnar hans þar til hún var orðin 14 ára. Þegar Sóley fór í Menntaskólann á Akureyri hélt hún áfram píanónáminu í Tónlistarskólanum á Akureyri. Þar var hún í læri hjá Þórarni Stefánssyni píanókennara.
Bauð á tónleika
Í tilefni af prófinu sínu bauð hún bæjarbúum á tónleika í kirkjunni og voru þeir fjölsóttir. Þar spilaði hún prógrammið sitt af miklu öryggi við mikla hrifningu gesta, sem fögnuðu henni ákaft með lófaklappi.
Sóley er, eins og móðir hennar, ákaflega hæfileikarík á tónlistarsviðinu og hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur sungið í kórum og spilar á trommur og hljómborð í stúlknahljómsveitinni „Skandall“, sem sigraði í söngkeppni framhaldsskólanna 2025. Þá hefur hún leikið á hljómborð í leiksýningum MA og komið fram á fjölmörgum atburðum.
Í einu lagi á tónleikunum settist Hugrún Sif við flygilinn og spilaði undir og raddaði þegar Sóley söng Dylan-lagið „Make You Feel My Love“. Jón Ólafur, pabbi Sóleyjar, spilaði með á bassann. Var það svo áhrifamikill flutningur að margur gestanna þurfti að þurrka burt tár að flutningnum loknum.
Það er því full ástæða fyrir tónlistarunnendur að leggja á minnið nafn Sóleyjar Sifjar Jónsdóttur, sem ekki er ólíklegt að muni gera sig gildandi á tónlistarsviðinu á næstu árum.
