Lögreglan í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur fundið líkamsleifar eldri manns sem hvarf árið 2020. Málið er samt enn þá talið óupplýst og lögreglan óskar eftir upplýsingum sem gæti varpað ljósi á hvað kom fyrir.
Málið er reifað í tímaritinu People.
Tilkynnt var um hvarf hins 78 ára gamla Porter Albert þann 21. janúar árið 2020. Hann hafði þá síðast sést versluninni Big Lots í North Fort Myers, á vesturströnd fylkisins, þann 15. janúar.
Kona flúði Flórída
Fjölskylda Albert sagði að hann hafi verið að reyna að hjálpa konu og móður hennar þegar hann hvarf skyndilega.
Lögreglan hafði afskipti af konu, sem keyrði um próflaus á Lexus bíl og sagðist vera að leita að Albert. Í yfirheyrslum um hvarfið var Albert tvísaga en engu að síður var hún ekki handtekin. Skömmu seinna fór hún frá Flórída.
Engin merki um innbrot
Þegar lögregla fór á heimili Albert fann hún hurðina opna en engin merki um innbrot. Farsíminn hann fannst á heimilinu. Málið þótti allt hið dularfyllsta en engu að síður var enginn handtekinn og grunaður um illvirki. Ekki var einu sinni ljóst hvort að illvirki hefði verið framið eða hvort Albert hefði látið sig hverfa eða orðið fyrir slysi.
Nú, næstum sex og hálfu ári seinna, þann 18. maí síðastliðinn birti lögreglan tilkynningu um að fundist hafi hluti af líkamsleifum Porter Albert. Það hafi verið sannreynt með aðferðum réttarmeinafræðinnar. Ekki var þó greint frá því hvar leifarnar fundust eða hvenær.
Minnstu smáatriði hjálpa
Málið er hins vegar enn þá jafn dularfullt því að ekki kemur fram hvort að lögregluna grunar fólskuverk eða ekki.
„Vegna þess hve langt leið frá því að Albert hvarf og þar til líkamsleifar hans fundust, biðja rannsóknarlögreglumenn alla sem kunna að hafa upplýsingar um hvarf hans, ferðir eða dvalarstaði að gefa sig fram,“ segir í tilkynningunni. „Jafnvel minnstu smáatriði geta hjálpað rannsókninni.“