Hluti landsmanna býr við hvíta jörð næstu daga. Kuldi er í veðurkortunum og ekki að sjá að sumarið sé á næsta leiti á landinu austan- eða norðanverðu. Næturfrost verður víða um land fram yfir helgi, en Suðurlandið og höfuðborgarsvæðið sleppur þó að mestu.
Fréttamaður tók þessar myndir á Akureyri í morgun, þar snjóaði í nótt - líkt og víðar.
Farið með gát á sumardekkjunum
Snjóþekja eða hálka er víða á vegum á landinu norðanverðu eftir kulda síðustu daga. Hálka eða hálkublettir eru á vegum um Vestfirði og snjóþekja á Ströndum. Hvít jörð er víða um Norðurland, en nyrst á Tröllaskaga er éljagangur og vetrarfærð.
Hálka er á veginum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og á Austurlandi og Austfjörðum ættu vegfarendur eins að fara með gát. Hálka er víða og skafrenningur á Fjarðarheiði.
Landsmenn eru líklega flestir búnir að setja sumardekk á bíla sína eða hjól - og ættu að fara með gát næstu daga, sérstaklega snemma á morgnana eftir næturfrost.