Frönsk kona er í öndunarvél á sjúkrahúsi eftir að hún sýktist af hantaveirunni um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Læknar konunnar segja hana mikið veika.
Þrír farþegar á skipinu létust af völdum veirunnar og níu önnur tilfelli hafa verið staðfest. Allir farþegar hafa verið fluttir frá borði og smitrakning stendur yfir í nokkrum löndum. Hondius er á leið til Hollands þar sem skipið og farangur verða þrifin og sótthreinsuð.
Tedros Ghebreyesus, forstjóri WHO, varar við því að fleiri tilfelli hantaveirunnar eigi eftir að greinast, en telur ekki hættu á að faraldur brjótist út. Embætti landlæknis Íslands fylgist enn grannt með stöðu mála.