Framsóknarflokkurinn hefur lokið máli sínu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður flokksins, greindi frá þessu í umræðum á Alþingi.
Stefán sagði málið vera illa undirbúið, samningsmarkmið væru óljós og að þingnefnd hefði fengið takmarkaðan tíma til að ræða það.
„Framsókn telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins,“ sagði Stefán. Hann sagði flokkinn þó treysta þjóðinni til að segja nei í atkvæðagreiðslunni.
Þingmenn ræða nú þingsályktunartillögu um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Til þess að svo verði þarf að samþykkja hana eigi síðar en á föstudag.