„Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ - Vísir

„Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ - Vísir

„Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ - Vísir

Fyrsta ómskoðunin leiddi þó ekki í ljós blóðtappa og segir Sif lækni í kjölfarið hafa ráðlagt henni að „láta fólkið sitt knúsa sig“, með vísan til barnsmissisins sem hún hafði nýlega gengið í gegnum. Fjórum dögum eftir að einkennin hófust fannst stór blóðtappi í nára hennar.

Sif glímir að eigin sögn við verki enn í dag og segir reynsluna hafa skilið eftir sig þá tilfinningu að ekki hafi verið hlustað á hana, hvorki sem sjúkling né móður í sorg.

Fjórði blóðtappinn

Saga Sifjar af blóðtöppum nær fjórtán ár aftur í tímann. Þegar sonur hennar fæddist fékk hún blóðtappa í lungun, þá 28 ára gömul. Tveimur mánuðum síðar fékk hún annan í fótinn. Eftir að hún eignaðist dóttur sína árið 2014 fékk hún þriðja tappann, aftur í fótinn.

Þann 9. janúar síðastliðinn var Sif stödd á uppistandssýningunni Púðursykur ásamt eiginmanni sínum, Svavari Péturssyni. Hún fann þá fyrir verk í vinstri mjöðm og niður í fótinn og þegar leið á kvöldið varð henni ljóst hvað væri líklega á seyði.

„Ég sagði við manninn minn: „Ég held ég sé komin með blóðtappa í fótinn.“ Hann varð auðvitað mjög stressaður en ég sagði að við skyldum keyra heim á Akranes og sjá til. Þegar við komum heim var fóturinn orðinn bólginn og blár og mér var hryllilega illt. Ég gat varla gengið og var farin að haltra.“

Sif vill ekki fullyrða að seinkun greiningarinnar hafi valdið núverandi vandamálum, en veltir því fyrir sér hvort staðan væri betri ef meðferð hefði hafist fyrr.Vísir/Anton Brink

Einkennin voru að sögn Sifjar nákvæmlega þau sömu og hún hafði fundið fyrir í fyrri þrjú skiptin sem hún fékk blóðtappa. Hún leitaði á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún segir hafa verið vel tekið á móti sér. Blóðprufur voru teknar og sýndu niðurstöðurnar hækkun á gildi sem gaf til kynna að eitthvað væri að. Sif var send heim með blóðþynningarsprautu og átti að mæta í ómskoðun á Landspítalanum í Fossvogi daginn eftir.

Þrátt fyrir fyrri sögu um blóðtappa segir Sif að það hafi ekki verið fyrr en eftir atburðina nú í janúar sem farið var að skoða almennilega hvers vegna hún væri svona útsett fyrir blóðtappa. Þá kom í ljós að hún er með æðaklemmu vinstra megin í náranum.

„Ég sprauta mig með blóðþynningu alla meðgönguna til að reyna að koma í veg fyrir tappa, en það virðist ekki virka hjá mér. Ég fæ alltaf tappa þrátt fyrir það. Þar sem ég hafði fengið þrjá áður vissi ég alveg hvað var að gerast þarna í fjórða skiptið, þegar ég var á uppistandssýningunni. Það fer ekkert fram hjá manni þegar maður fær blóðtappa.“

Daginn eftir komuna á sjúkrahúsið á Akranesi mætti Sif í ómskoðun í Fossvogi. Hún hafði í gegnum tíðina farið í nokkrar slíkar rannsóknir og segir þessa hafa verið ólíka þeim sem hún hafði áður upplifað.

Að hennar sögn var ómtækinu þrýst við hnésbótina og síðan við nárann. Rannsóknin hafi tekið örfáar mínútur og að henni lokinni hafi niðurstaðan verið sú að enginn blóðtappi væri til staðar.

„Ég sagði við lækninn: „Veistu, þetta er versta ómun sem ég hef fengið.“ Ég hef farið oft í svona ómun vegna sögunnar minnar og mér fannst þetta ekki vera gert eins og áður. Þá sagði hann við mig að þetta væri bara „það sem honum hefði verið sagt að gera“. Svo fór ég þaðan með þau svör að það væri enginn tappi.“

Sif og Svavar eiga saman stóra fjölskyldu með fjórum eldri börnum sem öll misstu systur, auk þess sem foreldrar, systkini og vinir þeirra syrgja Elísabetu Rut.Vísir/Anton Brink

„Láttu fólkið þitt bara knúsa þig“

Læknir á Akranesi hringdi í Sif síðar sama dag og ræddi niðurstöður ómskoðunarinnar. Hún segist hafa ítrekað að þrátt fyrir að rannsóknin hefði ekki sýnt blóðtappa væri augljóslega eitthvað að. Hún ætti erfitt með gang, fóturinn væri bólginn og blár og verkirnir miklir.

Sif hafði aðeins rúmum tveimur mánuðum áður misst dóttur sína.

„Þá sagði læknirinn við mig: „Auðvitað er enginn tappi. Láttu fólkið bara knúsa þig.“ Af því að ég hafði misst barnið mitt. Ég varð svo ofboðslega reið og sagði við hann: „Ég skal alveg segja þér það að fólkið mitt knúsar mig.“ En fóturinn á mér er ekki bólginn og blár af því að ég missti barnið mitt.“

Svavar, eiginmaður Sifjar, var erlendis þessa helgi og börn Sifjar hjá föður sínum. Hún var því ein heima á meðan verkirnir jukust og fóturinn hélt áfram að bólgna.

Á sunnudeginum segist hún varla hafa getað gengið og hafði aftur samband við heilbrigðiskerfið. Henni var ráðlagt að taka Íbúfen og Panodil og nota aðhaldssokk. Sif sagðist þegar hafa prófað það og að fóturinn væri orðinn það bólginn að hún gæti ekki lengur verið í sokknum.

„Ég var með ofboðslega verki alveg frá náranum og niður og var hætt að geta gengið. Þá sagði læknirinn við mig: „Það er sunnudagur og við gerum hvort sem er ekkert á sunnudögum.“ Þarna var ég orðin rosalega reið. Ég tala yfirleitt ekki svona við fólk en þarna var mér nóg boðið.“

Mörgum spurningum ósvarað

Á mánudeginum hafði ástandið enn versnað. Sif hringdi í 1700 en fékk að eigin sögn þau svör að allir lausir tímar á Akranesi væru uppteknir þann dag. Hún fékk tíma morguninn eftir. Á þriðjudeginum var hún send aftur í ómskoðun á Akranesi.

Í þetta sinn segir Sif rannsóknina hafa tekið um 20 mínútur og í kjölfarið hafi fundist stór blóðtappi í náranum vinstra megin, á þeim stað þar sem hún hafði fundið fyrir miklum verkjum frá upphafi.

„Þarna var ómunin framkvæmd með þeim hætti sem ég hef áður kynnst. Ég held að ég hafi verið í um 20 mínútur í ómun bara á fætinum. Á Landspítalanum var ég kannski í fimm mínútur, ef það náði því. Mér finnst svo galið að með mína sögu skuli þetta hafa gerst.“

Meðferð með blóðþynningu hófst í kjölfarið. Frá því fyrstu einkennin komu fram höfðu þá liðið fjórir dagar.

Sif vill þó ekki fullyrða að töfin á greiningunni beri ábyrgð á þeim vandamálum sem hún glímir við í dag. Hún situr engu að síður eftir með spurningarnar.

Mánuðum síðar er fóturinn enn slæmur. Hún er með mikla verki og rannsóknir hafa að hennar sögn sýnt lítið blóðflæði. Hún hefur verið í eftirliti hjá æðalækni og myndir hafa verið sendar til frekari skoðunar hjá öðrum sérfræðingi erlendis.

„Ég hugsa stundum hvort ég væri svona slæm í dag ef ég hefði verið meðhöndluð strax. En ég veit það ekki og enginn læknir mun segja við mig að það sé örugglega þannig. Kannski er eitthvað farið að skemmast af því að ég hef fengið þrjá tappa í fótinn. Ég sit samt eftir með verkina og þessa upplifun af því að ekki hafi verið hlustað á mig.“

Tabúumræða

Reynslan af blóðtappanum kom ofan á áfall sem fjölskyldan var enn að vinna úr.

Dóttir Sifjar og Svavars, Elísabet Rut, fæddist andvana þann 4. nóvember 2025. Sif var komin 37 vikur á leið og segir meðgönguna fram að því hafa verið eðlilega. Skyndilega fannst enginn hjartsláttur. Elísabet hafði flækst í naflastrengnum. Sif segir ekkert hafa verið að dóttur sinni og lýsir því sem hræðilegu slysi.

„Það er náttúrulega mjög mikið áfall út af fyrir sig og eitthvað sem enginn á að þurfa að upplifa. Ég er rosalega opin og tala mikið um missinn minn. Mér finnst þessi umræða nefnilega þurfa að eiga sér stað í samfélaginu okkar. Það þarf að tala um það að missa barn því þetta er enn svolítið tabú.“

Sif var komin 37 vikur þegar í ljós kom að Elísabet Rut hafði látist eftir að hafa flækst í naflastrengnum. Missirinn hafði djúp áhrif á alla fjölskylduna.Aðsend

Sif segir þó mikilvægt að sorgin verði ekki sjálfkrafa skýringin á öllu sem komi upp í kjölfar slíks áfalls. Þegar hún leitar læknis vegna líkamlegra einkenna vill hún að þau séu metin sem slík en ekki sjálfkrafa tengd við það að hún sé nýbúin að missa barn.

Hún segist einnig áður hafa upplifað að ekki væri hlustað nægilega á hana. Hún hafði um tveggja ára skeið glímt við bólgur og sýkingar í eyrum og ítrekað rætt við lækna um sýklalyfjagjöf í æð. Að hennar sögn fékk hún slíka meðferð loks þegar hún mætti með Svavar sér við hlið.

„Hann sat bara þarna. Þá fékk ég tvo eða þrjá skammta af sýklalyfjum í æð. Ég var búin að vera að biðja um þetta í tvö ár. Mér finnst þetta bara svo galið.“

„Við erum ekki að keppa“

Sif hefur kosið að tala opinskátt um dauða Elísabetar. Fljótlega eftir áramót stofnaði hún Instagram-síðuna Lífið eftir missi, þar sem hún fjallar um eigin sorg og ýmsar hliðar barnsmissis.

Hugmyndin kviknaði meðal annars vegna þess að henni fannst sjálfri erfitt að finna íslenskt efni til að styðjast við eftir missinn. Hún leitaði að hlaðvörpum, frásögnum og síðum þar sem einhver gæti með reynslu sinni sýnt henni að hægt væri að halda áfram að lifa. Einbeitingin var lítil og hún treysti sér ekki til að sækja mikið af slíku efni á ensku.

Sif starfar sem snyrtifræðingur og fótaaðgerðafræðingur en hefur einnig lokið námi í andlegri einkaþjálfun. Í haust hóf hún síðan háskólanám í iðjuþjálfun. Hún segir áhugann á að hjálpa fólki hafa fylgt sér lengi en eftir missinn hafi löngunin til að vinna með fólki í sambærilegri stöðu orðið enn sterkari.

„Þegar ég missti fannst mér svo mikið vanta. Ég var alltaf að leita að hlaðvarpi eða síðu sem ég gæti lesið og sem gæti einhvern veginn sagt við mig: „Ókei, þetta verður allt í lagi.“ Þess vegna ákvað ég að gera síðuna. Hún er bæði fyrir mig, af því mér finnst gott að tala um þetta, og líka í von um að geta hjálpað öðrum.“

Eitt af því sem Sif vill ræða er hvernig við tölum um sorg og hvort samfélagið geri stundum upp á milli missis eftir því hvenær á meðgöngunni hann á sér stað.

Sif hefur ákveðið að ræða barnsmissinn mjög opinskátt. Eftir dauða Elísabetar stofnaði hún Instagram-síðuna Lífið eftir missi þar sem hún fjallar um sorg, úrvinnslu og reynslu foreldra sem missa hafa barn.Vísir/Anton Brink

Þar er afstaða hennar skýr.

„Ég segi alltaf að þetta sé ekki keppni. Öll sorg á rétt á sér. Það er bara mismunandi hvernig fólk tekur á henni.“

Myndirnar af Elísabetu

Á Instagram og Facebook hefur Sif meðal annars birt myndir af Elísabetu Rut. Hún hefur fengið spurningar um þá ákvörðun og heyrt athugasemdir á borð við: „Guð, settirðu mynd af henni á Facebook?“

Sjálf sér hún málið öðrum augum. Elísabet er dóttir hennar. Það breytist ekki þótt hún hafi látist áður en fjölskyldan fékk tækifæri til að kynnast henni.

Elísabet Rut er fædd og dáin þann 4.nóvember 2025Aðsend

„Þegar ég horfi á myndina sé ég barnið mitt. Hún er látin á myndinni en hún lítur út eins og hún sé sofandi. Ég set myndir af börnunum mínum sem ég á, af hverju má ég þá ekki líka birta mynd af henni? Ef þú getur ekki horft á þetta þá verðurðu bara að sleppa því.“

Á heimilinu eru myndir af Elísabetu í minningahillu og uppi á vegg, rétt eins og myndir af öðrum börnum fjölskyldunnar. Fyrir Sif er mikilvægt að Elísabet verði ekki að einhverju sem ekki má nefna eða sýna.

Heil fjölskylda syrgir

Sif á tvö börn, þau Agnar Inga og Alexöndru Mjöll og svo á hún þrjú bónus börn úr fyrra hjónabandi, Hafþór Örn, Heiði Söru og Aldísi Ósk.  Hún eignaðist síðan þrjú bónusbörn í viðbót þegar hún og Svavar tóku saman; þau Freyja Björt, Jóhann Nökkva og Marínu.

Sif og Svavar gengu í hjónaband í maí síðastliðnum, eftir tveggja ára samband.

„Við tókum ákvörðun á sjúkrahúsinu með hana í kælivöggu um að við myndum ekki bíða með að gifta okkur því núna sjáum við hversu lífið er stutt og hvernig það getur verið.“

Elísabet Rut var að sjálfsögðu hluti af deginum þegar Sif og Svavar gengu í hjónaband.Aðsend

Fjölskyldan hefur leitað til samtakanna Gleym mér ei eftir missinn og börnin hafa einnig fengið eða eru að fara í ráðgjöf. Sif segir sorg barna ekki endilega koma fram strax og úrvinnslan geti tekið tíma. Fjölskyldan tók jafnframt þátt í Reykjavíkurmaraþoninu þar sem hópur hennar safnaði 617 þúsund krónum fyrir Gleym mér ei.

Hún segir sorgina eftir barn aldrei einskorðast við foreldrana. Foreldrar þeirra, systkini, önnur börn fjölskyldunnar og vinir hafi líka beðið eftir Elísabetu.

Dagana á fæðingardeildinni kom stór hluti fjölskyldunnar og vina að hitta hana.

„Það var aldrei þannig að við værum ein í herberginu. Börnin okkar, foreldrar, systkini og vinir komu og fengu að hitta hana. Það er svo dýrmætt af því að nú getum við talað saman um hvernig eyrun á henni voru, hvernig hún lá og hvernig lyktin af henni var. Annars hefðum bara ég og maðurinn minn átt þessar minningar.“

Hjónin hafa staðið þétt saman í sorginni en líkt og Sif bendir á þá þýðir það ekki að þau syrgi alltaf á sama hátt eða á sama tíma.

Megintilgangur Sifjar með því að segja frá er að opna umræðuna. Hún vonast bæði til að reynsla hennar verði til þess að betur verði hlustað á fólk í heilbrigðiskerfinu og að foreldrar sem missa barn finni minna fyrir þögn, skömm eða einangrun.Vísir/Anton Brink

„Það koma til dæmis dagar þar sem hann er alveg niðurbrotinn en ég er ekki þar. Svo kemur annar dagur þar sem þetta er öfugt. Þegar maður lendir í einhverju svona skiptir ótrúlega miklu máli að bera virðingu hvort fyrir öðru og tilfinningum hvors annars. Það er gott að geta gengið í gegnum þetta saman.“

Vill opna umræðuna

Það var önnur saga úr heilbrigðiskerfinu sem varð til þess að Sif ákvað að birta Facebook-færslu þar sem hún sagði frá blóðtappanum. Færslan fékk mikil viðbrögð og henni var deilt víða. Sif segir það hafa styrkt sig í þeirri trú að mikilvægt sé að fólk segi frá.

Hún vonar að frásögn hennar geti orðið til þess að eitthvað breytist; að fólk sem þekkir líkama sinn og leitar aftur og aftur eftir aðstoð fái áheyrn, en líka að foreldrar sem missa barn þurfi ekki að finna fyrir því að sorg þeirra sé eitthvað sem eigi að fela.

Þessir tveir þræðir, sem við fyrstu sýn virðast ólíkir, mætast þannig í sögu Sifjar. Í báðum tilvikum snýst málið um að fá að segja hvað maður upplifir og að á mann sé hlustað.

„Ég vil opna þessa umræðu. Það er fólk sem hefur farið í gegnum heila ævi án þess að fá nokkurn tímann að tala um barnið sem það missti. Þetta hjálpar mér og ég vona að það hjálpi öðrum líka. Það er tilgangurinn með þessu.“

#bólginn #ekki #fóturinn #mér #því


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262936731d/-foturinn-a-mer-er-ekki-bolginn-af-thvi-ad-eg-missti-barnid-mitt-

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að elska vindmyllur
📅 20.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að elska vindmyllur
Mynd Pistlahöfundur var lengi hrifin af vindmyllum, en
Eldsneytisverð í hæstu hæðum – annan daginn í röð
📅 20.09.2026 👁️ 1
Eldsneytisverð í hæstu hæðum – annan daginn í röð
Dísilverðið hækkaði í Frakklandi í dag og hefur aldrei verið hærra. Lítrinn kostaði að meðaltali 2,41 evru í morgun, samkvæmt útreikningum franska við...
Forsætisráðherra Póllands greinir frá gríðarlegu mannfalli úkraínskra hermanna
📅 20.09.2026 👁️ 1
Forsætisráðherra Póllands greinir frá gríðarlegu mannfalli úkraínskra hermanna
Forsætisráðherra Póllands greinir frá gríðarlegu mannfalli úkraínskra hermanna Fréttin20. september 2026Erlent, Skýrslur, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Vill þyngja refsingu fyrir vændiskaup af barni í fjögur ár
📅 20.09.2026 👁️ 1
Vill þyngja refsingu fyrir vændiskaup af barni í fjögur ár
Dómsmálaráðuneytið birti á föstudag drög að frumvarpi til breytinga á refsiákvæðum við vændiskaupum. Þar er lagt til að fangelsisdómur verði lágmarksr...
Tuttugu lögðu ó­lög­lega - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 1
Tuttugu lögðu ó­lög­lega - Vísir
Þar segir að alls hafi 8 gist í fangageymslu lögreglu í nótt. Þá skráði lögregla samtals um 175 mál skráð í kerfinu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgu...
Hægur vindur en víða blautt
📅 20.09.2026 👁️ 1
Hægur vindur en víða blautt
Í dag dropar aðeins á landsmenn en vindur verður með hægara móti. Meiri kraftur verður í veðrinu á morgun þegar austan- og suðaustan átt gengur yfir l...
Fegurðar­drottning drepin eða ein­hver myrtur á hjólhýsasvæðinu - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 1
Fegurðar­drottning drepin eða ein­hver myrtur á hjólhýsasvæðinu - Vísir
Eigendur Morðgátufélagsins og algjörlega spilasjúk hjón. „Síðan týndum við því miður blaðinu með stigagjöfinni en þá var skorið komið langt yfir tíu þ...
Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
📅 20.09.2026 👁️ 1
Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk Heiða Ósk í Áfram stelpur fagnar sigri Mynd: Facebook/Aðalheiður Rannsókn á meintu ærumeiðingarmáli gegn Aða...
Svanasöngur jöklanna
📅 20.09.2026 👁️ 2
Svanasöngur jöklanna
Svanasöngur jöklanna Bráðn­andi jökl­ar ferð­ast á ógn­ar­hraða inn í for­tíð­ina. Ég er með rímu á heilanum. Dáleiðandi söng eldri konu en ég heyri þ...
Kviknaði í tölvu á eldavél
📅 20.09.2026 👁️ 2
Kviknaði í tölvu á eldavél
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þar hafði kviknað í tölvu sem hafði verið skilin eftir á eldavél. ...
Brutust inn hjá fyrir­tæki - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Brutust inn hjá fyrir­tæki - Vísir
Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en þar segir að gerendur hafi fundist síðar um nóttina og verið fluttir á lögreglustöð vegna málsins. Málinu er ...
Skipu­leggur eigin jarðar­för - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Skipu­leggur eigin jarðar­för - Vísir
Dagný ólst upp í Mosfellsbæ og Vestmannaeyjum og lýsir því að fjölskyldulífið hafi tekið nokkuð snemma við. Hún var rétt skriðin yfir tvítugt þegar hú...
Hvessir all­veru­lega á morgun - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Hvessir all­veru­lega á morgun - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag sé spáð suðvestlægri átt 3-8 m/s og dálítilli rigningu eða stöku skúrum víða um land. Styttir upp sunnanla...
Óttast að eitur hafi orðið tíu ljónum á verndarsvæði að aldurtila
📅 20.09.2026 👁️ 2
Óttast að eitur hafi orðið tíu ljónum á verndarsvæði að aldurtila
Grunur leikur á að eitrun hafi valdið dauða tíu ljóna á Ngorongoro-verndarsvæðinu í Tansaníu, samkvæmt upplýsingum yfirvalda. Svæðið er á heimsminjask...
Battle intensifies to stop demolition of historic coastal home in Fuerteventura
📅 20.09.2026 👁️ 1
Battle intensifies to stop demolition of historic coastal home in Fuerteventura
A last-minute battle is continuing to prevent action against a historic coastal property in Cueva de la Negra, Fuerteventura, ahead of a demolition da...
553km undersea cable completed linking three Canary Islands
📅 20.09.2026 👁️ 2
553km undersea cable completed linking three Canary Islands
A major new underwater communications network linking three of the Canary Islands has reached an important milestone after 553 kilometres of cable wer...
Ungt jafnaðarfólk hvetur borgarstjórn til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni
📅 20.09.2026 👁️ 1
Ungt jafnaðarfólk hvetur borgarstjórn til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni
Ungt jafnaðarfólk skorar á meirihlutann í Reykjavík að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni og kallar jafnframt eftir því að ríkisstj...
Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt
📅 20.09.2026 👁️ 2
Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt
Að minnsta kosti tvennt var drepið í umfangsmikilli drónaárás Úkraínuhers á rússnesku höfuðborgina Moskvu í nótt. Það voru kona á fimmtudagsaldri og r...
Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Eldur slökktur í bíl nærri Rauðhólum
📅 20.09.2026 👁️ 2
Eldur slökktur í bíl nærri Rauðhólum
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um bíl í ljósum logum við Rauðhóla nærri Suðurlandsvegi um klukkan eitt í nótt. Samkvæmt upplýsingum...
Yfirvöld rannsaka dularfullt drónaflug yfir alþjóðaflugvellinum
📅 20.09.2026 👁️ 2
Yfirvöld rannsaka dularfullt drónaflug yfir alþjóðaflugvellinum
Rannsókn er hafin á tildrögum þess að stöðva þurfti umferð um alþjóðaflugvöllinn í Lúxemborg tímabundið á föstudagskvöldið vegna flugs óþekktra dróna....
Diana’s brother says Harry and Meghan face 'cancerous' press
📅 20.09.2026 👁️ 2
Diana’s brother says Harry and Meghan face 'cancerous' press
Earl Spencer says that he can see echoes of Princess Diana's treatment from the press in the way Harry and Meghan are scrutinised.
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, says Russia
📅 20.09.2026 👁️ 2
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, says Russia
An oil refinery was also reportedly hit in Moscow, and flights were suspended at two capital airports.
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, Russia says
📅 20.09.2026 👁️ 1
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, Russia says
An oil refinery was also hit in the Russian capital and flights were suspended at two airports.
Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana, Earl Spencer tells BBC
📅 20.09.2026 👁️ 1
Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana, Earl Spencer tells BBC
Princess Diana's brother describes the press coverage of the Duke and Duchess of Sussex as a "cancerous influence in their life".
Earl Spencer tells BBC Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana
📅 20.09.2026 👁️ 1
Earl Spencer tells BBC Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana
Princess Diana's brother says she was "really brought low by all that criticism" and he saw her in "tears of despair".
Eldflaug grandað á leið til Riyadh
📅 20.09.2026 👁️ 2
Eldflaug grandað á leið til Riyadh
Yfirvöld í Sádi Arabíu segja herinn hafa grandað langdrægri eldflaug sem uppreisnarmenn Húta í Jemen skutu í átt að höfuðborginni Riyadh í dögun. Húta...
Aukið fylgi flokka yst til hægri og vinstri veldur titringi í herbúðum kanslarans
📅 20.09.2026 👁️ 1
Aukið fylgi flokka yst til hægri og vinstri veldur titringi í herbúðum kanslarans
Niðurstöður kosninga til þinga tveggja sambandslanda í Þýskalandi í dag gætu valdið miklum titringi í Berlín og veikt stöðu ríkisstjórnar kanslarans F...
Eldur í bíl í Heið­mörk - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 3
Eldur í bíl í Heið­mörk - Vísir
Af myndbandinu sem sjá má að neðan að dæma er bíllinn gjörónýtur.  Vegurinn inn í Heiðmörk frá Suðurlandsvegi var lokaður á meðan slökkviliðið sinnti ...
FÍB: fátt breyst varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum
📅 20.09.2026 👁️ 3
FÍB: fátt breyst varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum
FÍB segir litlar breytingar hafa orðið varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum nema að ítarlegri texti með smærra letri hefur verið settur á...
Ed Sheeran addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
📅 20.09.2026 👁️ 3
Ed Sheeran addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
The mega-star singer held his first concert since rapper Macklemore was removed from his tour and other artists dropped out.
Ed Sheeran admits 'mistakes' as he addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
📅 20.09.2026 👁️ 3
Ed Sheeran admits 'mistakes' as he addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
The mega-star spoke about the issue and about Israel and Gaza at his first concert since rapper Macklemore was removed from his tour and other artists...
Ed Sheeran admits 'mistakes' at first show since Macklemore controversy in Philadelphia
📅 20.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran admits 'mistakes' at first show since Macklemore controversy in Philadelphia
The mega-star spoke about Israel and Gaza at his Philadelphia show after rapper Macklemore was dropped from his tour.
Minnst 24 handteknir við mótmæli gegn innflytjendastefnu stjórnvalda
📅 19.09.2026 👁️ 3
Minnst 24 handteknir við mótmæli gegn innflytjendastefnu stjórnvalda
Lögregla handtók 24 mótmælendur í hollensku borginni Haag í dag við um 500 manna útifund samtaka yst á hægri kanti stjórnmálanna.Hollenska almannafrét...
Bannið skýlaust stjórnarskrárbrot
📅 19.09.2026 👁️ 3
Bannið skýlaust stjórnarskrárbrot
Félag þeirra fréttamanna sem starfa í Hvíta húsinu í Washington (WHCA) krefst þess að Bandaríkjaforseti afturkalli án tafar aðgangsmissi þriggja fjölm...
„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir
Eru það þau Þórður Pálmason og Auður Kristmundsdóttir sem eina ferðina enn standa að baki opnun staðarins en þau komu að fyrstu opnun hans á Lækjargöt...
Why growing older LGBTQ+ community in Britain fears losing identity
📅 19.09.2026 👁️ 2
Why growing older LGBTQ+ community in Britain fears losing identity
A report suggests older LGBTQ+ people experience more social isolation than their heterosexual peers.
Sex and dating in midlife - Sharon Horgan on her new comedy Youth
📅 19.09.2026 👁️ 1
Sex and dating in midlife - Sharon Horgan on her new comedy Youth
"It's really weird watching yourself age on screen because that's not fun," Horgan reveals.
Cultural treasures are being destroyed by war, and people want justice
📅 19.09.2026 👁️ 2
Cultural treasures are being destroyed by war, and people want justice
A cauldron of conflicts is bubbling across the world, with cultural monuments being destroyed. These people are fighting against it.
Not all AI workers think the tech could kill everyone
📅 19.09.2026 👁️ 3
Not all AI workers think the tech could kill everyone
In text exchanges and conversations, multiple people who have worked for leading companies are sceptical of the warnings.
Our head teacher was an abuser. We joined forces to get justice - now we're married
📅 19.09.2026 👁️ 4
Our head teacher was an abuser. We joined forces to get justice - now we're married
Students spent years collecting evidence against their Indonesian principal, before falling in love.
The deadly new drugs reshaping fight against addiction
📅 19.09.2026 👁️ 2
The deadly new drugs reshaping fight against addiction
Experts warn potent new substances are making an already deadly crisis more dangerous.
The deadly new drugs making Scotland's fight against addiction even harder
📅 19.09.2026 👁️ 2
The deadly new drugs making Scotland's fight against addiction even harder
Experts warn potent new substances are making an already deadly crisis more dangerous.
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ von bráðar - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ von bráðar - Vísir
Er þetta meðal þess sem hann greinir frá í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social en þar skrifar hann einnig að það séu einungis þeir allra róttækust...
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ - Vísir
Er þetta meðal þess sem hann greinir frá í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social en þar skrifar hann einnig að það séu einungis þeir allra róttækust...
Brutust inn í dýragarð og börðu krókódílinn Dangalabba með málmrörum
📅 19.09.2026 👁️ 3
Brutust inn í dýragarð og börðu krókódílinn Dangalabba með málmrörum
Tveir unglingspiltar í Ástralíu eru sakaðir um að hafa brotist inn í dýragarð. Þar réðust þeir á stóran saltvatnskrókódíl og börðu hann með málmrörum....
Stóð frammi fyrir skelfilegu vali á K2 – „Ég hefði aldrei átt að gera þetta“
📅 19.09.2026 👁️ 3
Stóð frammi fyrir skelfilegu vali á K2 – „Ég hefði aldrei átt að gera þetta“
Ný heimildarmynd varpar ljósi á eitt umdeildasta atvik fjallgöngusögunnar á síðari árum, þegar norska fjallgöngukonan Kristin Harila og félagar hennar...
Vinir Maliu sem grunuð er um hundanauðgun koma henni til varnar – „Ég bið fyrir henni, börnunum og hundinum“
📅 19.09.2026 👁️ 3
Vinir Maliu sem grunuð er um hundanauðgun koma henni til varnar – „Ég bið fyrir henni, börnunum og hundinum“
Vinir Maliu Nummerdor sem var handtekin fyrir kynferðislegt dýraníð gagnvart heimilishundi sínum koma henni til varnar. Segja þeir að hún hafi aldrei ...
Strictly is back with new hosts as celebrities discover pairings
📅 19.09.2026 👁️ 3
Strictly is back with new hosts as celebrities discover pairings
Emma Willis, Josh Widdicombe and Johannes Radebe take over from long-running presenting duo Tess Daly and Claudia Winkleman.
Sér­stakt veiði­leyfi gefið út eftir að há­karl banaði sundmanni á sjö­tugs­aldri - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
Sér­stakt veiði­leyfi gefið út eftir að há­karl banaði sundmanni á sjö­tugs­aldri - Vísir
Hinn 63 ára gamli Greg O´Neill lést í gærmorgun, þann 18. september, eftir að um 2,5 metra langur hvítháfur réðst á hann. Vitni lýstu því hvernig hann...