Persónuupplýsingum um 1,2 milljóna Letta og gögnum um það bil tvö hundruð þúsund fyrirtækja í landinu hefur verið stolið í umfangsmikilli tölvuárás.
Samgöngu- og fjarskiptaráðuneyti Lettlands greinir frá þessu og segir ekki liggja fyrir hver standi að baki árásinni. Forsætisráðherrann Andris Kulbergs segist ekki geta útilokað að árásin hafi verið gerð utan landsteinanna í samtali við lettnesku fréttaveituna Leta. Kulbergs hefur fyrirskipað ítarlega rannsókn.