Reykholtsmálið: „Ég hef ekki ímyndunarafl í svona ofbeldi“

Reykholtsmálið: „Ég hef ekki ímyndunarafl í svona ofbeldi“

Reykholtsmálið: „Ég hef ekki ímyndunarafl í svona ofbeldi“

Þrír menn gáfu skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð Reykholtsmálsins í dag. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.

Á meðal hinna ákærðu eru Andri Már Mortensen Birgisson, unnusta hans og tengdafaðir. Tengdafaðirinn er einn þeirra sem gáfu skýrslu fyrir dómi.

Í ákæru segir að það hafi verið að undirlagi tengdaföðurins að ráðist hafi verið í umrædda rukkun sem hafi leitt af sér atburðarásina sem á eftir fylgdi. Hann hafi einnig hótað og ógnað brotaþola.

Byrjaði á því að lesa frásögn sína upp úr bók en var stoppaður

Tengdafaðir Andra gaf skýrslu fyrir dómi eftir hádegishlé. Frásögn hans fór ekki af stað án vandræða þar sem hann byrjaði að lesa upp úr bók.

Verjendur annarra sakborninga gerðu athugasemdir við það þar sem enginn gæti fullyrt hver skrifaði textann. Áfram hélt hann að lesa úr bókinni og gerðar voru athugasemdir við að enginn gæti vitað hver hefði skrifað textann. Dómari leyfði honum að halda því áfram þar til einn verjendanna tók til máls og sagði að ef málið færi fyrir Landsrétt yrðu gerðar alvarlegar athugasemdir við að maðurinn hafi lesið úr bók, þar sem þetta væru frásagnir af öðrum ákærðum í málinu, og það myndi hafa afleiðingar.

Dómari tók undir það og bað manninn að loka bókinni og segja frá með eigin orðum.

Gamall maður sem hafi ekki ímyndunarafl í ofbeldið

Tengdafaðirinn kvaðst saklaus af öllu því sem hann væri sakaður um. „Ég er gamall maður og ég hef ekki ímyndunarafl í svona ofbeldi eins og lýst er í ákærunni,“ sagði maðurinn. Hins vegar hefði hann sagt dóttur sinni og unnusta hennar að hann væri í vandræðum með leigjandann sinn, brotaþola.

Sá hafi skuldað 11 mánaða leigu og ekki talið sig þurfa að greiða leigu þegar hann var ekki í íbúðinni, til að mynda þegar hann fór á sláturtíð á Húsavík í tvo mánuði haustið áður.

Brotaþoli hafi svo alltaf borgað 50 þúsund en ekki 75 þúsund í leigu eins og leigusamningurinn kvað á um og borið fyrir sig að vera fátækur og ekki getað greitt alla upphæðina.

Tengdafaðir Andra hafi hins vegar sagt parinu að þetta væri í lagi. Hann ætlaði að fara í húseigandafélagið eftir helgi og leysa málið þannig, segja samningum upp og rukka eftirstöðvar leigunnar samkvæmt leigusamningi.

„Hann sagðist alveg vita hvað hann væri að gera“

Andri hafi boðist til að tala við brotaþola, sem kallaður er Samúel í gögnunum, og skýra fyrir honum hvernig þetta virkaði.

„Hann sagðist alveg vita hvað hann væri að gera þar sem hann hefði verið kominn á þriðja ár í lögfræði fyrir nokkrum árum,“ segir tengdafaðirinn. Hann hafi samþykkt að Andri myndi tala við manninn.

Andri hafi síðan sagt að hann fengi greiðsluna daginn eftir, en það hafi ekki gengið eftir.

Svo hafi Andri sagt honum að hann myndi fá tvo vini sína með sér og fara með brotaþola í hraðbanka. „Ég veit ekkert hverjir þessir vinir hans eru og hef aldrei hitt þá,“ sagði tengdafaðirinn.

Bjuggu í sama húsi

Íbúðin sem brotaþoli leigði var í sama húsi og tengdafaðirinn og fjölskylda hans bjuggu í – lítil stúdíóíbúð sem hann hafði leigt í á fjórða ár. Tengdafaðirinn segist ekkert hafa orðið var við það sem var í gangi fyrr en dóttir hans og bróðir Andra komu á sunnudeginum. Hann hafi þó ekki vitað hvað var að gerast og hafi verið mikið í Reykjavík þessa daga.

Maðurinn sagðist þó hafa tilkynnt brotaþola einhverjum mánuðum fyrr að hann þyrfti að leita sér að öðru húsnæði því hann ætlaði að fá bróður sinn til að búa í íbúðinni, til að hjálpa honum.

Hann hafi ekki vitað að brotaþoli ætti margar milljónir inni á reikningi fyrr en eftir að málið kom upp. Það stangast á við framburð vitnis sem sagði að maðurinn hefði sagt sér að brotaþoli ætti hátt í 20 milljónir á tveimur reikningum helgina sem brotaþoli var sviptur frelsi sínu.

Andri fullyrt við hann að það yrði ekkert ofbeldi

Þegar Andri tengdasonur mannsins hafi boðist til þess að taka tvo menn með sér að heimsækja brotaþola á föstudeginum hafi honum ekki litist sérlega vel á það. Andri hafi hins vegar fullvissað hann um að það yrði ekkert ofbeldi.

Tengdafaðirinn sagðist fyrst hafa séð brotaþola á sunnudeginum. „Þá fór ég og kíkti inn í íbúðina til að sjá hvað var í gangi og þá voru þau þar. Ég stoppaði ekkert inni í íbúðinni, ég man ekki hverjir voru þarna. Þolandi var þarna og sat á gólfinu í eldhúsinu. Ég fór bara út.“

Hann vildi svo ekki tjá sig meira um þetta atvik þar sem dóttir hans hafði verið á staðnum.

Brotaþoli hafi sagt honum að hann væri góður maður

Hann hafi svo hvorki farið inn í íbúðina né séð brotaþola fyrr en á mánudeginum. „Þá voru þau að fara í bæinn með hann, mér var tjáð að hann væri að fara heim til sín. Ég var bara að kveðja hann. Ég fer inn í íbúðina til hans og faðma hann að mér og kvaddi hann.“

Engir áverkar hafi sést á brotaþola en hann virkað dapur. Þeir hafi ekki rætt saman en brotaþoli hvíslað í eyrað á honum: „Ég veit að þú ert góður maður.“

Svo hafi þrímenningarnir; Andri, bróðir hans og unnusta farið með brotaþola til Reykjavíkur.

Á keðjusög eða þvertekur fyrir að hafa notað hana til að ógna

Í ákærunni er tengdaföðurnum gert að hafa meðal annars ógnað brotaþola með keðjusög og hótað að henda honum í sjóinn við Grænland. Í svörum mannsins kom fram að hann væri garðyrkjufræðingur og í frítíma sínum væri hann stundum að höggva niður eldivið og notaði meðal annars keðjusög við það.

Hann þvertók þó algerlega fyrir að hafa nokkru sinni verið með keðjusögina innandyra. Brotaþoli vissi þó að hann ætti slíka því þeir bjuggu á sömu lóð.

Fær þær upplýsingar á þriðjudegi að maðurinn sé að berjast fyrir lífi sínu á Möltu

Hann hafi svo fengið þær upplýsingar á þriðjudeginum að brotaþoli væri stórslasaður á spítala á Möltu og að berjast fyrir lífi sínu. „Að ég og tengdasonur minn hefðum verið að berja hann,“ segir hann. „Þetta kom mér á óvart því ég vissi ekki af ofbeldi eða tók þátt í ofbeldi.“ segir maðurinn.

„Þetta var í fyrsta skipti sem ég vissi að hann væri eitthvað slasaður og varð bara fyrir sjokki að heyra það.“

Hann sagði Andra hafa sagt honum að brotaþoli hefði verið orðinn þreyttur og viljað fara til dóttur sinnar á Möltu.

Saksóknari spurði manninn talsvert út í það hvort hann hefði ekki raunverulega áttað sig á því sem var í gangi og að brotaþoli hefði ekki farið sjálfviljugur – meðal annars þar sem hann hafði ekki pakkað saman dótinu sínu eða ætlað að taka það með sér. Tengdafaðirinn sagðist í rauninni ekki hafa skilið neitt í þessu máli yfir höfuð.

Fékk hátt í tvær milljónir inn á reikninginn sinn

Fyrir Héraðsdómi Suðurlands kom fram að maðurinn hefði fengið millifærslu af reikningi brotaþola upp á tæpar tvær milljónir króna þann sama dag, á mánudeginum. Hann sagðist í kjölfarið hafa lagt 600 þúsund inn á Andra og 100 þúsund inn á dóttur sína.

Hann hafi lagt inn á tengdason sinn í „einhverju stressi“ og ekki viljað hafa meiri pening inni á sínum reikningi en hann átti af þessu – enda hafi leiguskuldin ekki verið nema um 550 þúsund.

Játar að hafa reynt að fá aðgang að heimabanka fyrir brotaþola

Eftir spurningar frá verjanda sínum ítrekaði maðurinn að hann hefði hvorki beitt né séð ofbeldi og ekki beðið um það. Hann kannist hins vegar við að hafa farið í Landsbankann og reynt að stofna heimabanka fyrir brotaþola – Andri hafi beðið sig um það.

Það hafi þó ekki gengið þar sem brotaþoli hafi ekki verið með rafræn skilríki. Hann hafi þá boðist til að sækja síma mannsins en það ekki verið í boði.

Hann játaði þó að hafa verið beðinn um og samþykkt að læsa íbúð brotaþola eftir að hann fór og halda fólki frá íbúðinni.

Þá sagðist hann ekki hafa séð brotaþola frá því að hann heyrði í honum í sturtu föstudagskvöldið sem fólk fór að spyrjast fyrir um hann. Spurður af hverju hann hefði ekki bara sagt frá því að maðurinn hefði farið úr landi sagðist hann hafa verið taugaóstyrkur.

Vinnuveitandi brotaþola hafi haldið ræðu yfir honum.

Dómari og saksóknari spurðu hann þá ítrekað hvers vegna hann hefði verið svona taugaóstyrkur ef hann hefði ekki vitað að neitt misjafnt hefði átt sér stað.

„Ég varð ekki var við þetta en fannst þetta kannski ekki alveg eðlilegt,“ sagði hann. „Ég var ekki mikið á staðnum.“ Svo vildi hann ekki tjá sig meira um það þar sem það tengdist dóttur hans.

Brotaþoli greindi frá því hjá lögreglu að maðurinn hefði ítrekað ógnað honum með keðjusög og hótað. Maðurinn sagðist ekki með neinu móti geta útskýrt hvers vegna brotaþoli héldi því fram. Hafi einhver verið með keðjusög í íbúðinni hafi það verið einhver annar.

Þegar maðurinn hafði gefið skýrslu á þriðju klukkustund fór hann að tala meira um að hann hefði verið taugaóstyrkur og liðið illa með það sem var í gangi – þótt hann hafi ekki vitað nákvæmlega hvað það væri. Hann hafi reynt að fá Andra til að hætta við áform sín um að innheimta skuldina þar sem honum leist ekki á hvernig hann ætlaði að gera það.

Skilaboð til dótturinnar og tengdasonarins sýnd í dómssal

Í skilaboðum milli mannsins og dóttur hans sést að hún lét hann vita á sunnudeginum að hann ætti ekki að koma inn í íbúðina. Þar sé í gangi „yfirheyrsla“ eins og hún kallar það.

Í öðrum skilaboðum segir hún að planið hafi gengið upp og maðurinn sé farinn úr landi til konu sinnar og dóttur. Hún ætli að útskýra allt betur fyrir honum seinna um kvöldið. Hann svarar þeim skilaboðum einfaldlega: „Góð“.

Í skilaboðum sem maðurinn sendi til Andra tengdasonar síns segir hann: „Ég fékk 550 út úr dæminu, þú 560“.

Andri svarar þeim skilaboðum með því að senda honum reikningsnúmerið sitt, en eins og áður sagði lagði hann tæplega 600 þúsund inn á Andra. Maðurinn ítrekaði að 550 þúsund krónurnar væru leiguskuldin og hann hafi ekki búist við meiru.

Dóttir hans sendi honum svo önnur skilaboð: „Eina verkefnið þitt í dag er að taka númeraplötur af bílnum hans, hafa íbúðina læsta og tækla utanaðkomandi gesti ef þeir skildu koma. Og halda þér við þína sögu, það er nkl ekkert stress. Ég kem í vikunni og hjálpa við að taka fyrstu djúphreinsun. Elska ykkur.“

Maðurinn segir dóttur sinni svo að fólk sé farið að spyrjast fyrir um manninn og vilji kalla til lögreglu.

Aðalmeðferðin heldur áfram í Héraðsdómi Suðurlands á morgun.

#ekki #hef #reykholtsmálið #svona #ímyndunarafl


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-18-reykholtsmalid-eg-hef-ekki-imyndunarafl-i-svona-ofbeldi-484263

📰 Aðrar fréttir

Segjast ekki ætla að skipta sér að at­kvæða­greiðslunni - Vísir
📅 19.08.2026 👁️ 0
Segjast ekki ætla að skipta sér að at­kvæða­greiðslunni - Vísir
„Það er tilgangslaust að leita að sönnunargögnum þar sem engin slík er að finna,“ segir í yfirlýsingu sem sendiráð Rússlands í Noregi birti opinberleg...
Sameiginlega heræfing stytt
📅 19.08.2026 👁️ 0
Sameiginlega heræfing stytt
Sameiginleg æfing herja Suður-Kóreu og Bandaríkjanna verður skammvinnari en upphaflega var áætlað. Yfirmenn herafla Suður-Kóreu greindu frá þessu í kv...
US condemns 'unnecessary escalation' after Israeli airstrikes on Syrian airbase
📅 19.08.2026 👁️ 0
US condemns 'unnecessary escalation' after Israeli airstrikes on Syrian airbase
Damascus called the attacks 'an unjustified act of aggression' that imperilled regional security.
Deaf patient given wrong jab due to sign language error, report says
📅 19.08.2026 👁️ 0
Deaf patient given wrong jab due to sign language error, report says
An ombudsman report says disabled people are being let down by a lack of accessible communication methods.
Does the September weather forecast suggest another UK heatwave?
📅 19.08.2026 👁️ 0
Does the September weather forecast suggest another UK heatwave?
Some long range forecasts are suggesting autumn could be hotter and drier than average. Simon King explores whether a warm spell might be on the cards...
Íslendingar eyða sífellt meira erlendis
📅 18.08.2026 👁️ 1
Íslendingar eyða sífellt meira erlendis
Nýjar tölur Landsbankans sýna að neysla Íslendinga færist í auknum mæli úr landi, en ríflega fjórðungur af allri neyslu landsmanna fór fram erlendis í...
Children's stunted lungs show recovery in ultra low emission zone
📅 18.08.2026 👁️ 0
Children's stunted lungs show recovery in ultra low emission zone
Children's lung capacity caught up with their peers in less polluted areas once a clean air zone came in, a study shows.
Queen admits it was 'difficult' to keep King's cancer diagnosis a secret
📅 18.08.2026 👁️ 1
Queen admits it was 'difficult' to keep King's cancer diagnosis a secret
In a video to mark the 30th anniversary of Maggie's cancer charity, Queen Camilla speaks for the first time about her husband's own diagnosis.
Fimm­tíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Fimm­tíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu - Vísir
Víða má sjá auglýsingar frá baráttuhreyfingum sem hafa tekið afstöðu til Þjóðaratkvæðagreiðslunnar framundan. Áfram Ísland sem berst fyrir neitun augl...
Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum - Vísir
Lee Jae Myung, forseti, sagði á hefðbundnum ríkisstjórnarfundi í Seoul að bandalag ríkjanna væri gífurlega mikilvægt fyrir Suður-Kóreu. Sterkt bandlag...
Mobile payments on the rise but cash decline slows
📅 18.08.2026 👁️ 0
Mobile payments on the rise but cash decline slows
Nine in 10 mobile wallet users have their debit card loaded as their default payment method, new data shows.
Þjóðminjasafnið safnar minningum um almyrkva
📅 18.08.2026 👁️ 1
Þjóðminjasafnið safnar minningum um almyrkva
Þrátt fyrir að skýjahula hafi aðeins spillt upplifun þegar sólmyrkvi gekk yfir landið í síðustu viku var stundin engu að síður eftirminnileg. Til að t...
Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 1
Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát - Vísir
Silja Rún hefur setið aðalmeðferðina síðustu tvo daga og útskýrði gang mála í kvöldfréttatíma Sýnar í kvöld. Annar dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmáli...
„Markmið mitt er fleiri litir í Reykjavík“
📅 18.08.2026 👁️ 1
„Markmið mitt er fleiri litir í Reykjavík“
Spænski listamaðurinn Juan Arctic, sem búsettur hefur verið á Íslandi í áratug, hefur sett sérstakan og litríkan svip á Reykjavíkurborg og nágrenni me...
Hótel­gestir þeirra eru fjórfætlingar - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 1
Hótel­gestir þeirra eru fjórfætlingar - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar fórum við að bænum Böðvarshólum í Vesturhópi en þar er rekið hundahótel og kallast Hólakot. Þar búa þau Ingveldur Ása Konráðsdótt...
Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar
📅 18.08.2026 👁️ 1
Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar
Æfingin er kölluð Norður-Víkingur og er haldin á Íslandi annað hvert ár að jafnaði.Æfingin verður tvískipt. Bandaríkin ætla að æfa viðbragð við vaxand...
Meta hooked children on Facebook and Instagram, court hears
📅 18.08.2026 👁️ 0
Meta hooked children on Facebook and Instagram, court hears
Meta argued social media addiction does not exist, as a trial stemming from a major lawsuit brought by US states got under way.
Djúp­fölsun nýtt til fjár­svika á gervi­fjar­fundum - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Djúp­fölsun nýtt til fjár­svika á gervi­fjar­fundum - Vísir
Margir hafa vafalaust séð myndbönd með Patreki Jaime þar sem hann talar um hverju hann ætlar að segja „já“ annars vegar og „nei“ hins vegar í þjóðarat...
Ævintýralegur þjófnaðarferill manns á höfuðborgarsvæðinu
📅 18.08.2026 👁️ 1
Ævintýralegur þjófnaðarferill manns á höfuðborgarsvæðinu
Erlendum manni um þrítugt hefur verið birt ákæra í Lögbirtingablaðinu þar sem honum eru gefin að sök alls 46 þjófnaðarbrot, 45 búðarþjófnaðir og ein þ...
Í­búar Bolungar­víkur urðu varir við borgarísjaka - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 1
Í­búar Bolungar­víkur urðu varir við borgarísjaka - Vísir
Þetta staðfestir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir náttúruvársérfræðingur Veðurstofunnar en hún segir þó nokkrar tilkynningar um hafís hafa borist síðastl...
Andy Burnham received £345,000 of donations ahead of becoming PM
📅 18.08.2026 👁️ 0
Andy Burnham received £345,000 of donations ahead of becoming PM
The prime minister lists his financial interests for the first time since returning to Parliament.
Why has Russia threatened the UK and what happens next?
📅 18.08.2026 👁️ 1
Why has Russia threatened the UK and what happens next?
UK Prime Minister Andy Burnham has said London will continue "to support Ukraine 100%".
'Everyone in for Christmas' - Burnham's rough sleeping plan
📅 18.08.2026 👁️ 1
'Everyone in for Christmas' - Burnham's rough sleeping plan
Rough sleepers in England will be offered housing, in a move likened to the “Everyone In” initiative during the pandemic.
Join EU migration pact to tackle small boats, says Ed Davey
📅 18.08.2026 👁️ 1
Join EU migration pact to tackle small boats, says Ed Davey
The Liberal Democrats say taking part in the scheme would "destroy the business model" of gangs arranging Channel crossings.
ABC kærir fjarskiptastofnun Bandaríkjanna
📅 18.08.2026 👁️ 1
ABC kærir fjarskiptastofnun Bandaríkjanna
Sjónvarpsstöðin ABC kærði fjarskiptastofnun Bandaríkjanna, FCC, í dag fyrir meintar hótanir í garð fyrirtækisins. Í kærunni er stofnuninni gefið að sö...
Three dead after family get into difficulty in sea near Shoreham Port
📅 18.08.2026 👁️ 1
Three dead after family get into difficulty in sea near Shoreham Port
A man, a woman and a teenage girl die and a younger girl is in a critical condition after swimming off the Sussex coast.
Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum - Vísir
Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandi...
Manndrápið í Vallargerði: Mennirnir sem sitja í gæsluvarðhaldi erlendis hafa enn ekki verið yfirheyrðir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Manndrápið í Vallargerði: Mennirnir sem sitja í gæsluvarðhaldi erlendis hafa enn ekki verið yfirheyrðir
Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna árásar á pólskan mann á heimili hans í Vallargerði á Kársnesi í Kópavogi, þar síðasta sunnudag, sem leiddi til and...
Haukur segir íslenska grunnskólakennara skulda þjóðinni afsökunarbeiðni: „Þessa afsökunarbeiðni þurfum við að sjá“
📅 18.08.2026 👁️ 2
Haukur segir íslenska grunnskólakennara skulda þjóðinni afsökunarbeiðni: „Þessa afsökunarbeiðni þurfum við að sjá“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að þjóðin hafi stutt grunnskólakennara í áratugi hvað varðar laun og menntun, nú skuldi grunnskólakennara...
Tracking USS Lincoln's months-long mission as concerns about conditions grow
📅 18.08.2026 👁️ 1
Tracking USS Lincoln's months-long mission as concerns about conditions grow
BBC Verify has used satellite imagery to monitor the warship on one of the longest ever US deployments.
Bróðir Díönu prinsessu gefur út bók um ævi hennar
📅 18.08.2026 👁️ 2
Bróðir Díönu prinsessu gefur út bók um ævi hennar
Spencer jarl, bróðir Díönu prinsessu, hefur tilkynnt um útgáfu nýrrar bókar um líf hennar sagða frá sjónarhorni hans. Bókin kemur út í Bretlandi í næs...
Frank Beard er látinn 77 ára að aldri - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Frank Beard er látinn 77 ára að aldri - Vísir
Kemur þetta fram í fjöldamörgum erlendum miðlum en bandaríski miðillinn Variety greinir frá því að í yfirlýsingu hafi Billy Gibbons, einn stofnmeðlimu...
Kviknaði í bíl í Hvalfjarðargöngum
📅 18.08.2026 👁️ 2
Kviknaði í bíl í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöngum var lokað um hríð í kvöld vegna bíls sem kviknaði í. Búið er að ráða niðurlögum eldsins og opna fyrir umferð um göngin. Engin slys u...
Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Austurbæ
📅 18.08.2026 👁️ 2
Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Austurbæ
Tekist verður á um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fer 29. ágúst í Austurbæ í kvöld. Fulltrúar andstæðra hreyfinga, Áfram Ísland og Já til að sjá, mæ...
Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Austurbæjarbíói
📅 18.08.2026 👁️ 0
Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Austurbæjarbíói
Tekist verður á um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst í Austurbæjarbíói í kvöld. Fulltrúar andstæðra hreyfinga, Áfram Ísland og Já til að sjá, mætast á...
„Ég vildi verða þrí­tug í Pucci“ - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
„Ég vildi verða þrí­tug í Pucci“ - Vísir
Sunneva var harðákveðin í því að fagna stórafmælinu með stæl. „Ég vissi að ég vildi halda eitthvað geggjað teiti til þess að fagna með öllu mínu fólki...
Hrund Rudolfsdóttir: Slæm staða ef við segjum nei og Norðmenn ákveða að fara inn í ESB
📅 18.08.2026 👁️ 2
Hrund Rudolfsdóttir: Slæm staða ef við segjum nei og Norðmenn ákveða að fara inn í ESB
Versta staða sem gæti komið upp fyrir okkur Íslendinga væri að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni og síðan ákvæðu Norðmenn að genga í ESB. Þá er EES...
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við - Vísir
Birgir Ármansson hefur snúið aftur að lögmennsku frá því að hann hætti á þingi árið 2024 eftir rúmlega tveggja áratuga þingsetu. Síðasta kjörtímabil v...
Reykholtsmálið: Kannast ekki við að hafa sent skilaboð um hníf, barnaníðsefni og sjálfsmorð
📅 18.08.2026 👁️ 2
Reykholtsmálið: Kannast ekki við að hafa sent skilaboð um hníf, barnaníðsefni og sjálfsmorð
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hélt áfram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hún hófst í gær þegar spilaðar voru upptökur úr síma Andra Más Mortensens Birg...
Verk­takar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Verk­takar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir stýrivaxtaákvörðun sína á morgun. Landsbankinn og Íslandsbanki spá því að vextirnir verði hækkaðir en Samtök ið...
Milljarða útgjöld til varnaruppbyggingar
📅 18.08.2026 👁️ 2
Milljarða útgjöld til varnaruppbyggingar
Ísland er á svo hernaðarlega mikilvægum stað að það er óumflýjanlegt að hafa hermenn hér áfram, bæði vegna æfinga og aðgerða, sagði Alexus Grynkewich,...
Tilkynningar um vasaþjófnað á hverjum degi en ferðamenn grunlausir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Tilkynningar um vasaþjófnað á hverjum degi en ferðamenn grunlausir
Lögregla fær tilkynningar um vasaþjófnað nánast á hverjum degi yfir sumartímann. Erlendir glæpahópar eru í flestum tilvikum að verki, og meðlimir þeir...
Minnast Ásgeirs í Bíó Paradís
📅 18.08.2026 👁️ 2
Minnast Ásgeirs í Bíó Paradís
Minnast Ásgeirs í Bíó Paradís Tékk­nesk kvik­mynd og ný ljóða­bók látna skálds­ins og menn­ing­ar­blaða­manns­ins Ás­geirs H. Ing­ólfs­son­ar verða í ...
Til­kynna refsi­að­gerðir gegn hátt­settum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Til­kynna refsi­að­gerðir gegn hátt­settum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins - Vísir
Greint er frá þessu í erlendum miðlum á borð við Reuters og breska ríkisútvarpið. Í umfjöllun Reuters um málið segir að skrefið sé þáttur í herferð rí...
Ye heldur tónleika í Rússlandi
📅 18.08.2026 👁️ 2
Ye heldur tónleika í Rússlandi
Bandaríski rapparinn Kanye West, sem gengur undir nafninu Ye, ætlar að vera með tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. Hann verður...
Réttar­höld í Reyk­holtsmáli halda á­fram og djúp­fölsunum fjölgar - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Réttar­höld í Reyk­holtsmáli halda á­fram og djúp­fölsunum fjölgar - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir stýrivaxtaákvörðun sína á morgun. Landsbankinn og Íslandsbanki spá því að vextirnir verði hækkaðir en Samtök ið...
Orðið á götunni: Trump ætlar að innlima Grænland – Er svo Ísland næst?
📅 18.08.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Trump ætlar að innlima Grænland – Er svo Ísland næst?
Íslendingar geta ekki verið rólegir vegna þróunar mála á Grænlandi. Trump Bandaríkjaforseti fer ekki lengur dult með það að hann ætli að innlima Grænl...
„Börn eiga ekki undir neinum kringumstæðum að geta keypt áfengi“
📅 18.08.2026 👁️ 2
„Börn eiga ekki undir neinum kringumstæðum að geta keypt áfengi“
„Miklar umræður hafa staðið um sölu áfengis á netinu um árabil og sitt sýnist hverjum. Óháð þeirri umræðu ætti eitt að vera hafið yfir allan ágreining...
Guðrún Tinna um hörð átök í ESB-umræðunni: „Er ég kannski fávitinn?“
📅 18.08.2026 👁️ 2
Guðrún Tinna um hörð átök í ESB-umræðunni: „Er ég kannski fávitinn?“
„Mér finnst áhugavert hversu oft við förum beint í manninn þegar við erum ósammála. Ekki í málefnið. Ekki að reyna að skilja hvers vegna viðkomandi ko...
Lindsay Clancy begged for help before her children's killings, mother-in-law testifies
📅 18.08.2026 👁️ 2
Lindsay Clancy begged for help before her children's killings, mother-in-law testifies
Lindsay Clancy has admitted killing her daughter and two sons but has pleaded not guilty to murder, saying she was experiencing postpartum psychosis.