Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum - Vísir

Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum - Vísir

Á­hyggju­fullir banda­menn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum - Vísir

Lee Jae Myung, forseti, sagði á hefðbundnum ríkisstjórnarfundi í Seoul að bandalag ríkjanna væri gífurlega mikilvægt fyrir Suður-Kóreu. Sterkt bandlag ríkjanna ýtti undir öryggi en Kóreumenn þyrftu að auka mátt sinn.

„Þegar við byggjum upp mátt okkar, eykst gildi og mikilvægi okkar sem bandamenn.“

Samkvæmt Yonhap-fréttaveitunni frá Suður-Kóreu, sagði Lee einnig að hann væri enn staðráðinn í því að tryggja að ráðamenn í Suður-Kóreu hafi stjórn á herafla landsins í stríði. Samkvæmt varnarsamkomulagi Suður-Kóreu og Bandaríkjanna myndu bandarískir herforingjar stýra herafla Suður-Kóreu í stríði.

Yonhap hefur einnig eftir þjóðaröryggisráðgjafa Lee að ríkisstjórnin eigi í viðræðum við Bandaríkjamenn um sameiginlegar heræfingar ríkjanna, sem hafa í gegnum árin snúist um að æfa varnir við innrás frá Norður-Kóreu.

Umræddur þjóðaröryggisráðgjafi heitir Wi Sung Lac en hann sagði einnig að ríkisstjórnin ætlaði sér að auka sjálfbærni Suður-Kóreu þegar kæmi að vörnum ríkisins.

Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, á ríkisstjórnarfundi í morgun.AP/Yonhap

Eins og þruma úr heiðskýru lofti

Yfirlýsing Trumps kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hún kom ráðamönnum í Seoul sérstaklega á óvart og þykir tilefni til þess að hafa áhyggjur.

Trump hafði ekkert samráð við yfirvöld í Suður-Kóreu áður en hann tilkynnti ákvörðun sína á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli.

Forsetinn sagði æfingarnar kostnaðarsamar og að þær sendu „algerlega óviðeigandi og óvinveitt“ skilaboð til Norður-Kóreu, sem Trump sagði að hefði ekki verið ógnandi og hefði sýnt virðingu síðan hann varð forseti.

Í Seoul hefur þessi yfirlýsing aukið á áhyggjur af því hve hægt er að reiða á Bandaríkjamenn, komi til stríðs á Kóreuskaganum. Slíkar áhyggjur hafa aukist verulega á undanförnum árum, meðal annars vegna tolla sem Trump hefur beitt Suður-Kóreu og vegna áhlaups í Georgíu í fyrra, þar sem hundruð starfsmanna Hyundai voru handteknir.

Í samtali við AP fréttaveituna segir Dan Fried, sem starfaði í ríkisstjórn George W. Bush á árum áður, að hann geti ómögulega séð hvernig Bandaríkin eigi að hagnast á ákvörðun Trumps.

„Á öllum stigum, meikar þetta ekki sens. Þetta grefur undan Suður-Kóreumönnum, grefur undan Japönum, hræðir Taívana, styggir NATO og gerir Kínverjana djarfari. Að maður tali nú ekki um Norður-Kóreumenn.“

Danny Russel, sem starfaði innan ríkisstjórnar Baracks Obama með sérstaka áherslu á Asíu, segir erfitt að sjá hvernig ákvörðun Trumps gæti hafa verið verri.

„Trump er að refsa bandamanni og hvetja andstæðing áfram. Hann er að vernda viðkvæmar tilfinningar Kims Jong Un á kostnað öryggis Bandaríkjanna og Suður-Kóreu.“

AP fréttaveitan vísar einnig til þess að ráðamenn í Suður-Kóreu hafi áhyggjur af kjarnorkuvopnavernd Bandaríkjamanna. Það er að segja að Kóreumenn óttist að ef nágrannar þeirra í norðri beiti kjarnorkuvopnum sínum gegn Suður-Kóreu, muni Bandaríkjamenn ekki bregðast við og beita sínum kjarnorkuvopnum til varnar Suður-Kóreu.

Á undanförnum árum benda kannanir til þess að sífellt fleiri íbúar Suður-Kóreu vilji koma upp eigin kjarnorkuvopnum. Það hafa Bandaríkjamenn ekki viljað.

Fór með fleipur og ósannindi um Suður-Kóreu

Trump ræddi ákvörðun sína við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. Þá hélt hann því fram að Bandaríkjamenn greiddu nánast allan kostnaðinn vegna viðveru bandarískra hermanna í Suður-Kóreu. Hann hélt því einnig fram að á sínu fyrsta kjörtímabili hefði hann fengið ráðamenn í Seoul til að greiða Bandaríkjunum þrjá milljarða dala á ári fyrir hernaðarstuðninginn.

Þá sagði Trump að eftir að Joe Biden varð forseti árið 2021 hefðu Suður-Kóreumenn sannfært hann um að Trump væri slæm manneskja og að þeir ættu ekki að þurfa að borga. Það hefði Biden samþykkt.

Nánast allt sem forsetinn sagði er rangt, eins og tekið er fram í grein CNN.

Trump sagði að 39 þúsund bandarískir hermenn væru í Suður-Kóreu. Í lok mars voru þeir 26.589.

Þá hafa yfirvöld í Suður-Kóreu tekið verulegan þátt í kostnaði Bandaríkjamanna í landinu frá árinu 1991. Barack Obama gerði samning við yfirvöld þar um að þau greiddu 800 milljónir dala á ári frá 2014 til 2018, sem er meira en ekkert þótt Trump þyki það of lítið.

Þar að auki er rangt að Trump hafi fengið Suður-Kóreumenn til að greiða Bandaríkjunum þrjá milljarða dala á ári, sem átti samkvæmt honum svo að verða meira með hverju árinu yfir þriggja ára tímabil.

Hið rétta er að ríkisstjórn Trumps fékk yfirvöld í Suður-Kóreu til að hækka útgjöldin vegna viðveru Bandaríkjamanna í landinu árið 2019. Þá vörðu Kóreumenn um milljarði dala í hernaðarstuðninginn en Trump vildi fimm milljarða.

Þá var gerður tímabundinn samningur um lítillega aukningu og yfirvöld í Seoul samþykktu árið 2020 að greiða 200 milljónir dala til að greiða þarlendum starfsmönnum herafla Bandaríkjanna. Þetta voru þó tímabundnar ráðstafanir þar sem frekari viðræður kláruðust aldrei. Þær voru ókláraðar þegar Biden settist að í Hvíta húsinu.

Hér að neðan má sjá myndefni frá fyrri æfingum Bandaríkjamanna í Suður-Kóreu, ummæli forsetans í morgun og stutt viðtal við sérfræðing um málefni ríkisins.

Að endingu felldi Biden ekki samninga Trumps við Suður-Kóreu úr gildi. Það voru engir langvarandi samningar í gildi og Suður-Kóreumenn höfðu aldrei samþykkt kröfur Trumps og áttu aldrei að greiða þrjár milljónir dala.

Ríkisstjórn Bidens gerði nokkra nýja samninga við Suður-Kóreu sem leiddu til aukinna útgjalda þar í landi á kjörtímabili hans.

Ekkert flugmóðurskip á svæðinu

Í forsetatíð Baracks Obama lýstu Bandaríkjamenn því yfir að til stæði að leggja minni áherslu á Evrópu og auka viðbúnað á Kyrrahafinu og sporna gegn auknum umsvifum Kína. Þessari stefnu hefur verið viðhaldið af bæði Trump og Biden sem vildu einnig draga úr umsvifum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum.

Á hans seinna kjörtímabili hefur Trump þó lagt mesta áherslu á svokallaðan „bakgarð“ Bandaríkjanna. Vestanvert Kyrrahafið hefur átt að vera í öðru sæti.

Á sama tíma og Trump skipaði hernum að draga úr æfingum með Suður-Kóreumönnum eru Bandaríkjamenn að sigla eina flugmóðurskipi þeirra á vestanverðu Kyrrahafi til Mið-Austurlanda vegna stríðsins gegn Íran.

Verið er að sigla flugmóðurskipinu USS George Washington úr Kyrrahafinu og til Mið-Austurlanda.Sjóher Bandaríkjanna/(Anthony Vilardi

Kínverjar nýta óreiðuna

AP fréttaveitan hefur eftir Greg Poling, yfirmanni Asíu-deildar hugveitunnar Center for strategic and international studies að skilaboðin frá ríkisstjórn Trumps hafi verið þau að Vestanvert Kyrrahafið væri gífurlega mikilvægt. Gjörðir fylgdu þó ekki orðum.

Annar sérfræðingur sagði bandamenn Bandaríkjanna í Asíu hafa miklar áhyggjur af stöðunni og óútreiknanlegri ríkisstjórn Trumps. Ráðamenn í Kína tækju óreiðunni fagnandi og notuðu hana með glöðu geði.

Bryan Clark, sem starfar hjá hugveitunni Hudson Institute, sagði að enginn byggist við því að Kínverjar myndu nota tækifærið til að gera innrás í Taívan. Flugmóðurskipsleysið sé þó tækifæri fyrir Kínverja til að sýna fram á óáreiðanleika Bandaríkjanna.

„Þeir nota þetta í skilaboðum til Filippseyja, Japan, Indónesíu og annarra til að sýna að Bandaríkin eru ekki lengur aðalkarlinn í vestanverðu Kyrrahafinu,“ sagði Clark.

„Þeir vilja frekar að ríkisstjórnir á svæðinu ákveði fyrir sig að Kína sé öflugra ríkið og að Bandaríkin geti ekki lengur ábyrgst öryggi þeirra.“
#asíu #bandamenn #taka #vilja #áhyggjufullir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262922564d/ahyggjufullir-bandamenn-i-asiu-vilja-taka-fulla-stjorn-a-eigin-vornum

📰 Aðrar fréttir

What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
📅 04.10.2026 👁️ 1
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
Polls suggest the election will be a closely run contest between the left-wing incumbent and his right-wing rival.
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
📅 04.10.2026 👁️ 1
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
Bandaríska utanríkisráðuneytið vísaði tveimur írönskum erindrekum úr landi, „sparkaði þeim brott“ eins og það er orðað. Þeir höfðu áður hunsað fyrirsk...
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
📅 04.10.2026 👁️ 1
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
Engan sakaði þegar olíuflutningaskip og tvö flutningaskip rákust saman í Valderhaugfirði skammt frá Álasundi í Noregi í nótt. Tvö skipanna eru komin t...
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
📅 04.10.2026 👁️ 1
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
The key policy idea announced by David Lammy when he was justice secretary will no longer go ahead.
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
📅 04.10.2026 👁️ 1
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
Allt útlit er fyrir að miðhægriflokkur forsætisráðherrans Andris Kulbergs hafi unnið sigur í þingkosningum sem haldnar voru í Lettlandi í gær. Þegar y...
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
📅 04.10.2026 👁️ 1
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, segist ekki hafa tekið nægilega hart á hópnauðgun sem framin var í skólanum árið 2024. Kotl...
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
📅 04.10.2026 👁️ 1
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
Lots of the stars have worked together, some are good friends - and that can impact the show's dynamics.
When parenting advice becomes too much
📅 04.10.2026 👁️ 1
When parenting advice becomes too much
Many parents feel overwhelmed by the amount of parenting information available
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
📅 04.10.2026 👁️ 2
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
Jarðskjálfti sem fyrstu tölur benda til að hafi verið af stærðinni 3,8 reið yfir austur af Brennisteinsfjöllum klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nó...
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, ...
Höfuð­borgar­svæðið skalf - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Höfuð­borgar­svæðið skalf - Vísir
Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, ...
UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
📅 04.10.2026 👁️ 2
UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
After highs of 28C in the final week of September, cooler air will arrive this week with temperatures falling closer to the seasonal norm.
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fyl...
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
Hin 51 árs Hammond stýrir þættinum This Morning á bresku stöðinni ITV en í þætti gærmorguns virtist hún skyndilega halda um brjóstið á sér á meðan með...
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
📅 03.10.2026 👁️ 1
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
Michael Kotlikoff described the allegations of a woman who says she was drugged and gang raped as "deeply disturbing".
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
📅 03.10.2026 👁️ 3
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
Lögreglan er með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi. Fréttastofu barst ábending um að lögreglubílar væru í götunni en ekki hefur fengist staðf...
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
📅 03.10.2026 👁️ 2
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
Prime Minister Mark Carney has said the military is running scenarios in the unlikely case the US invades Canada.
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Á plakati sem ...
Jarðskjálftar í Kötluöskju
📅 03.10.2026 👁️ 3
Jarðskjálftar í Kötluöskju
Nokkrir jarðskjálftar í kringum 3 að stærð hafa orðið í Kötluöskju í Mýrdalsjökli í kvöld. Einn 3 að stærð varð klukkan 21:44. Bjarki Kaldalóns Friis,...
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
📅 03.10.2026 👁️ 3
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
Ísraelsher segist hafa gert loftárás á Gaza í dag gegn leiðtoga Hamas, Ali al-Amoudi. Yfirvöld á Gaza segja fimm hafa verið drepna í árásinni. Ísraels...
Katla skelfur - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Katla skelfur - Vísir
Bjarki Kaldalóns Friis náttúruvársérfræðingur segir í samtali við Vísi að nokkrir skjálftar hafi mælst í kringum klukkan 21.30 í kvöld. Enn eigi eftir...
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
Lögreglan í finnsku höfuðborginni skrifar í yfirlýsingu að lögreglunni hafi borist tilkynning upp úr klukkan 19 að staðartíma (kl. 16 að íslenskum tím...
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
📅 03.10.2026 👁️ 5
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
Í 28 fjöldahjálparkerrum víðs vegar um landið er allt það helsta sem þarf til að opna fjöldahjálparstöð, til dæmis beddar, teppi, skyndihjálparbúnaður...
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
📅 03.10.2026 👁️ 5
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
Party leader Kemi Badenoch tells the BBC that she wants to see "people who work harder" not getting punished for doing so.
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu le...
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýkjörnum formanni. Salma, sem er 27 ára, hefur setið í stjórn hreyfingarinnar um nokkurt skeið en hún tekur nú við...
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
📅 03.10.2026 👁️ 1
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
Geraint Anderson says some modern workplaces reward psychopathic traits.
Sameinast um góð mál
📅 03.10.2026 👁️ 5
Sameinast um góð mál
Sameinast um góð mál Fréttin3. október 2026Geir Ágústsson, Innlent, PistlarLeave a Comment Borgarstjórn Reykjavíkur. Geir Ágústsson skrifar: Tillaga M...
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð
📅 03.10.2026 👁️ 5
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð Fréttin3. október 2026Erlent, Innlent, Jón Magnússon, PistlarLeave a Comment Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður. Jón ...
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
📅 03.10.2026 👁️ 4
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti fru...
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
Aðgerðum lögreglunnar á Austurlandi á Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á Austurlandi er lokið. Hópslysaáætlun var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag eftir fj...
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
📅 03.10.2026 👁️ 5
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
Ný ritrýnd rannsókn á rottum sýnir minni heilabjúg, minna magn óeðlilegs tau-próteins og breytingar á tengingum heilans eftir gjöf psilocybins. Vísind...
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
📅 03.10.2026 👁️ 5
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
Frá og með gærdeginum er bannað að selja og framreiða áfengi í sveitarfélaginu Kujalleq á Grænlandi. Heimastjórn Grænlands barst beiðni frá sveitarstj...
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
Stiklu úr La Gradiva má sjá hér að neðan. Í fréttatilkynningu frá hátíðinni er greint frá verðlaunahöfum hátíðarinnar en alls voru veitt sex verðlaun ...
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
📅 03.10.2026 👁️ 5
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. H...
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 5
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir
Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við h...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 5
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Sir Kevin Sinfield completes epic challenge ahead of Grand Final
📅 03.10.2026 👁️ 3
Sir Kevin Sinfield completes epic challenge ahead of Grand Final
Sir Kevin Sinfield crosses the finish line at Old Trafford after seven ultramarathons in seven days.
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 5
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu
📅 03.10.2026 👁️ 4
Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu
Vinir í Hafnarfirði tilkynntir til lögreglu HafnarfjörðurMyndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Víkingur Nokkur verkefni komu inn á borð lögreglun...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
📅 03.10.2026 👁️ 5
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
The 40-year-old died at the scene in west London from a gunshot wound, the Met Police said.
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 5
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 5
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 5
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...