Sameiginleg æfing herja Suður-Kóreu og Bandaríkjanna verður skammvinnari en upphaflega var áætlað.
Yfirmenn herafla Suður-Kóreu greindu frá þessu í kvöld eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað að minnka umfang heræfingarinnar. Hún hófst á sunnudaginn var og átti að standa fram í næstu viku. Herir ríkjanna hafa haldið sameiginlegar heræfingar áratugum saman og átt náið samstarf á öðrum sviðum.